Það er búið að læsa síðunni og lykilorðið er nafnið á kisanum hennar mömmu :)


Ég fæddist á FSA þann 30. júlí 2005 kl.05:12, þá var ég 3390 grömm og 51 cm. Ég var bæði ljóshærður og dökkhærður, þ.e. ég var ljóshærður ofan á höfðinu en svo með dökkan krans. Mamma mín heitir Inga Dóra Jónsdóttir(81) og Pabbi minn Sigurður Brynjar Júlíusson(79).







Nafnið mitt merkir:


Atli



Atli er breyting á germönsku orðunum "Atta" sem merkir faðir/pabbi og "la" sem merkir lítill. Orðið Attala" gæti því útlagst sem litli faðir/pabbi.

Önnur skoðun er sú að orð þetta sé komið úr norrænu og þá dregið af orðinu "atall" sem merkir grimmur/harður.


Valur



Fuglsheitið valur.







Konungurinn í frumskóginum er mættur og vill einmitt vera meðhöndlaður í samræmi við tign sína. Litla ljónið þarfnast athygli (við erum að tala um að vera alltaf miðdepill athyglinnar!) og vill láta taka eftir sér og láta dást að sér. Það getur verið mikil vinna að eiga börn í ljónsmerkinu. Börnin eru oft hávaðasöm og mjög opin í tjáningu. Ef barnið er ánægt er það yndislegasta og fallegasta barn í heimi en ef það er óánægt öskrar það og lætur öllum illum látum. Heimilislífið kemur til með að snúast mikið í kringum kraftmikinn ljónsungann sem getur verið mjög stjórnsamur og frekur. Það þýðir ekki að segja ljóninu að læðast meðfram veggjum því slíkt er andstætt eðli þess og er ekki til annars en að brjóta það niður. Vingjarnleg ákveðni er það sem dugar best. Ljónið er merki stjórnunar og foreldrar þurfa að virða þörf þess fyrir persónulegt sjálfstæði og því er gott að fela því snemma ábyrgð. Mikilvægt er að kenna því að taka tillit til annarra. Það þarf að taka tillit til þess í uppeldi að ljónið er einstakt og veita því athygli, hvatningu og ekki síst að hrósa því þegar það hefur gert eitthvað jákvætt.






Gömul þjóðsaga
Segir frá barni sem var við það að fæðast.Barnið snýr sér að Guði og segir:

Mér er sagt að ég verði sendur á jörðina á morgun,en hvernig get ég lifað eins lítill og ósjálfbjarga sem ég er?

Ég hef valið engil fyrir þig úr hópi engla og hann bíður eftir þér.Þessi engill mun sjá um þig.

En segðu mér,hérna á himnum geri ég ekkert annað en að syngja og brosa og það er nóg til þess að vera hamingjusamur?

Engillinn þinn kemur til með að syngja fyrir þig,hann brosir til þín alla daga og þú verður umlukinn ást hans og þannig verður þú hamingjusamur.

En hvernig get ég skilið þegar fólkið talar við mig þar sem ég þekki ekki tungumálið sem mennirnir tala?

Engillinn þinn segir falleg orð við þig,fallegustu orð sem þú hefur nokkurn tímann heyrt og með mikilli þolinmæði og kærleik kennir hann þér að tala.

En hvað geri ég ef ég vil tala við þig?

Þá setur engillinn þinn hendurnar þínar saman og kennir þér að biðja.

Ég hef heyrt að á jörðinni séu til vondir menn.Hver getur varið mig?

Engillinn þinn mun verja þig,þó svo það kosti hann lífið.

En ég verð alltaf sorgmæddur því ég sé þig ekki oftar?

Engillinn þinn á eftir að segja þér frá mér og vísa þér veginn í áttina til mín,en þó mun ég alltaf vera við hlið þér.

Á þessu andartaki færðist ró yfir himininn og guðdómlegar raddir heyrðust og barnið sagði:

Kæri Herra,þar sem ég er að fara segðu mér,hvað heitir engillinn minn?

Nafn hans skiptir ekki máli,þú kallar hann

bara ,,mömmu"



















Þú ert gestur nr. 19454
0/2 Queries in 0/0 ms
0 ms
DomainInfoV3_barnaland.is(6969B)
ShouldBeLocal:True
IsLocal:True
System.Object get_Item(System.String, Boolean))
Barnaland.DomainInfo GetDomainInfo(System.String, Boolean))
Barnaland.DomainInfo get_Current())
Void OnBeginRequest(System.Object, System.EventArgs))
Void System.Web.HttpApplication.IExecutionStep.Execute())
System.Exception ExecuteStep(IExecutionStep, Boolean ByRef))
Void ResumeSteps(System.Exception))
System.IAsyncResult BeginProcessRequestNotification(System.Web.HttpContext, System.AsyncCallback))
System.Web.RequestNotificationStatus ProcessRequestNotificationPrivate(System.Web.Hosting.IIS7WorkerRequest, System.Web.HttpContext))
Int32 ProcessRequestNotificationHelper(IntPtr, IntPtr, IntPtr, Int32))
Int32 ProcessRequestNotification(IntPtr, IntPtr, IntPtr, Int32))
0 ms
TmxV3_is-barnaland(294312B)
ShouldBeLocal:True
IsLocal:True
T GetContract[T](System.String, Boolean, Boolean))
Frontur.Core.Tmx GetTmx(System.String, System.String, Boolean))
Void Page_Init())
Void ArglessFunctionCaller(IntPtr, System.Object))
Void OnInit(System.EventArgs))