Verið velkomin á heimasíðuna mína. Munið svo gestabókina.
|
| Ég heiti Ríkharður Axel og er tveggja ára gamall grallarapjakkur :)
|
|
Um mig:
Ég er Ríkharður Axel og er lítill grallari. Ég fæddist 27. febrúar 2006 og er þar af leiðandi rúmlega 2ja ára gamall. Mamma mín heitir Sigrún María (79) og pabbi minn heitir Magnús Pétur (78). Ég er annað barn mömmu minnar en fyrsta barn pabba. Ég á nefnilega stóra systur sem heitir Karen Björg og er 7 ára gömul. Hún er alveg ótrúlega góð við mig og er alltaf að leika við mig. Ég er rosalega brosmildur strákur og finnst ekkert skemmtilegra en að brosa og hlæja. Ég bý í Hafnarfirði ásamt mömmu og stóru systu. Pabbi minn býr í Mosó og fer ég oft í heimsókn til hans.
Mér finnst rosalega gaman að leika mér með bíla og bolta. Er með svakalega bíladellu og sofna stundum með bíl í fanginu ofaná bílakoddanum mínum. Ég er algjör baðsjúklingur, það má enginn fara í bað nema að ég fari með. Núna 2. júní byrja ég svo loksins á leikskóla, langþráður draumur mömmu. En leikskólinn minn heitir Hörðuvellir og er hann við hliðina á skólanum hennar Karenar. Það verður áræðanlega mjög gaman í leikskólanum. Emilía vinkona mín á pottþétt eftir að passa uppá mig.
Munið svo að skrifa í gestabókina. Alltaf gaman að sjá hverjir kíkja hingað til okkar :)
|
|
Spiderman
|
| Þú ert gestur nr. 8635 |