![]() |
|
|
Um mig:
Ég fæddist fimmtudaginn 30 júní 2005 klukkan 23:14. Ég var tekinn með keisara og var 53 cm og 4140 gr. þegar ég kom í heiminn. Ég kom í heiminn 13 dögum eftir áætlaðan fæðingardag, auðvitað lætur maður bíða eftir sér. Mamma mín heitir Bryndís Mjöll Sævarsdóttir (77) og pabbi heitir Baldvin Jón Hallgrímsson (77). Ég á 2 kisur sem heita Perla og Birta og einn Labrador sem heitir Torres. Við búum öll saman í Mosfellsbæ.
Til þín Áður en þú varst til þráðum við þig. Áður en þú komst í heiminn elskuðum við þig. Áður en þú hafðir lifað eina stund hefðum við fúslega dáið fyrir þig. Þú ert kraftaverk lífsins Takk fyrir að vera til.
ELSKU BARN Ég mun annast þig, vernda þig þar til þú verður sjálfbjarga og þá læt ég þig fara frjálsan ferða þinna. En umhyggjan fyrir þér endist eilíflega.
|
|
|
Annað:
BIRKIR, NAFN ÞETTA ER AÐ ÖLLUM LÍKINDUM LEITT AF KVENNAFNINU BJÖRK SEM ER LEITT AF TRJÁHEITINU BJÖRK. ÖRN, FUGLSHEITIÐ ÖRN. SVONA FALLBEYGIST NAFNIÐ MITT. NF: BIRKIR. ÞF: BIRKI. ÞGF: BIRKI. EF: BIRKIS. NF: ÖRN. ÞF: ÖRN. ÞGF: ERNI. EF: ARNAR.
Börn í krabbamerkinu eru oft mjög viðkvæm og foreldrar mega búast við að mörg tár muni falla í bernsku. Þau hafa því ríka þörf fyrir hlýju og snertingu auk þess sem öryggi skiptir þau gríðarlega miklu máli. Líf þeirra þarf að vera í föstum skorðum og umhverfið gott. Foreldrar barna í krabbamerkinu ættu ekki að rífast mikið í þeirra návist því þau taka allt mjög nærri sér og eru oft lengi að ná sér á strik eftir áföll. Krabbar byrgja oft tilfinningarnar inni og því er mikilvægt að tala við þau um tilfinningar. Dæmigert krabbabarn man alltaf eftir því þegar það týndist í Hagkaup í tvær mínútur og tekur því sem höfnun. Krabbinn er oft mislyndur og misjafn í skapi, ýmist hress og jákvæður eða þungur og dregur sig inn í skel. Hann er oft rólegur og hlédrægur en getur gosið upp annað slagið vegna þess hve viðkvæmur hann er. Það þarf að umgangast hann af nærgætni og það er ekki sama hvað sagt er við hann og hvernig. Hann tekur margt nærri sér og er móðgunargjarn. Hann er gjarn á að geyma gremjuna innra með sér og láta á engu bera á yfirborðinu. Foreldrar þurfa því að hvetja litla krabbann til að segja frá því sem honum mislíkar. Mestu skiptir að skapa krabbanum öruggt heimilislíf, veita honum hlýju og gefa honum kost á að tjá tilfinningar sínar, t.d. með því að leyfa honum að eiga gæludýr. 22. JÚNÍ - 22. JÚLÍ ![]()
PERLA
BIRTA
Mamma er Konan Sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda. Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda. Þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til. Mamma er besta kona í heimi. ![]()
Pabbi er Maðurinn Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður en það tekur hann bara nokkra daga að komast niður á jörðina aftur. Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað sofið alla nóttina og kúkað í klósett eins og annað fólk. Samt veit hann allt !! Svo þegar maður verður aðeins eldri og þá er hægt að fara að leika við mann og kenna manni ýmislegt þá finnst honum rosa gaman. Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar á þarf að halda. Pabbi er besti maður í heimi.
Möggu og Sigga börn Victoría Elín Jens Bjarni Stefán Ingi Þórdís Lind Ari Gabríel Arnar Freyr Benjamín Margrét Gígja Jón Aðalsteinn Guðlaug Birta Sandra Sif Systraást Tristan María Björt
|
| Þú ert gestur nr. 12342 |