Við bræðurnir heitum
Jóhann Ísak og Níels Logi Ingimundarsynir









Um mig:
Jóhann Ísak fæddist 09.09.05, kl. 02:16 og var 16 merkur og 50,5 cm, eftir mjög langa og erfiða fæðingu. Hann lét bíða eftir sér í tvær vikur og eflaust með ráðum gert til að eigna sér þessa flottu dagsetningu ;). Hann fæddist með dökkskollitað hár og blá augu en er alveg ljóshærður í dag.
Hann var skírður 30.október 2005 í Kópavogskirkju og fékk það fallega nafn Jóhann Ísak. Hann var skírður í höfuðið á Jóhanni móðurafa sínum í Neskaupstað en Ísak nafnið er út í loftið, mömmu og pabba finnst það svo fallegt nafn.

Jóhann:
Nafn þetta er stytting á nafninu "Jóhannes" sem merkir Guð er náðugur.

Ísak:
Nafn þetta er leitt af hebresku sögninni "sahak" sem merkir að hlæja og þýðir nafnið í raun Guð mun hlæja.

Níels Logi fæddist 12.08.2009, kl. 15:17 og var 16 merkur og 52 cm. Þó hann léti einnig bíða eftir sér í tvær vikur lá honum samt að koma í heiminn og gekk fæðingin mjög hratt fyrir sig. Hann fæddist með dökkt og mikið hár og dökkblá augu.
Hann var skírður heima af séra Hirti Magna Jóhannssyni Fríkirkjupresti við yndislega athöfn á afmælisdegi móður sinnar þann 11. október 2009.




Annað:
MEYJA
23.ágúst- 22.sept.
Hér er kominn einstaklingur sem vill hafa hlutina í röð og reglu og er mjög íhaldssamur. Litla meyjan er að öllu jöfnu auðveld í umgengni, samviskusöm, dugleg og hlýðin en oft á tíðum alvörugefin. Skynsemi meyjarinnar kemur yfirleitt fljótt í ljós og ef kæruleysi er ríkjandi í kringum hana er ekki ólíklegt að hún fari að siða fólk til í kringum sig og hafa vit fyrir því. Hún byrjar snemma að hjálpa til á heimilinu og er oft mjög handlagin. Hún er yfirleitt ekki mikið gefin fyrir að draga athyglina að sér og lítil meyjubörn geta oft haft ofan af fyrir sér sjálf í langan tíma. Foreldrar þurfa að draga fram hið jákvæða því litlar meyjur hafa oft áhyggjur af því að hlutirnir séu ekki nægilega vel gerðir. Því þarf að hjálpa þeim að sjá bjartari hliðar tilverunnar og læra að trúa á eigin getu. Ekki er verra að ýta undir skopskyn þeirra.

Helstu einkenni meyja:
Snöggar, stundvísar, nákvæmar og skipulagðar, hafa fullkomnunarþörf, hógværar, hlédrægar, hagsýnar hafa minnimáttarkennd, vandvirkin, snyrtileg, eftirtektarsöm, líkamlega næm, raunsæ, hefur skarpa athyglisgáfu, dugleg og hjálpsöm, kröfuhörð ekki síst á sjálfa sig, tortryggin gagnvart nýjungum.



"Sú ákvörðun að eignast barn er einstök.

Að ákveða að um alla eilífð mun hjarta þitt

verða á gangi fyrir utan líkama þíns."

Þú ert gestur nr. 45486