Kubbabyssan
Við mæðginin vorum að leika okkur inn í herbergi Jóhanns Ísaks og litli mann var að kubba svaka byssu. Svo þegar hún var tilbúin þá setti hann hana á rúmgaflinn sinn og sagði við mömmu sína: Þú mátt alls ekki fikta í henni mamma, þetta er stórhættulegt!! (3. júní 2009).
Litla barnið
Við vorum að fara með Jóhann Ísak í mæðraskoðun og ég var að útskýra fyrir honum hjartsláttinn á litla krílinu. Þar sem einn er orðinn spenntur þá sagði hann: við gerum bara gat á magann og náum í litla barnið. Og ég ætla að gefa því hamborgara, ís og RJÓMA!!!! Svo kom upp nautnasvipur þar sem þetta er greinilega uppáhaldið hans og hann skyldi sko kenna litla systkini að borða það sem er gott ;) (25.05.09).
Beisli
Jóhann Ísak fann beisli í kommóðaskúffunni sinni og birtist með það fram og spurði mig hvort þetta væri fyrir hvolpana??? Ég gat nú ekki annað en hlegið og sagt: nei elskan við notuðum þetta beisli nú á þig þegar þú varst lítill!!!
Hugulsemi
Mamman var að svæfa Jóhann Ísak og átti að lesa eins og venjan er, en mamman var mjög þreytt og gat varla lesið svo hann las sjálfur bókina og svo náðist nú að fara með bænirnar áður en mamman datt alveg út af. Stuttu síðar kemur pabbinn inn og þá liggur mamman steinsofandi hjá litla kút í hans rúmi og Jóhann Ísak kúrandi upp að henni og segir svo við pabba sinn: ekki vekja mömmu! Pabbinn fór út með bros á vör og hlýju í hjarta yfir fallega og hugulsama syni sínum.. svo steinsofnaði litli kútur við hlið mömmu sinnar :)
(03.03.09).
Tómatur
Jóhanni Ísak þykir tómatar mjög góðir og þá sérstaklega það sem er inn í þeim, hann sýgur það glaður í bragði og kallar það: Úúst. Hann hefur gert það síðan hann var pínu pons og varla farinn að tala og enn í dag kallast þetta inn í tómatanum.. Úúst ;) (okt. 2008).
Maður lærir það sem fyrir manni er haft!
Já það eru orð að sönnu. Um daginn kom ég inn í eldhús þar sem feðgarnir voru að borða vínber við eldhúsborðið. Jóhann Ísak snýr sér við í stólnum og segir við mig: Viltu vínber elskan mín?
Hvað er fallegra en þetta ég bara spyr? :)

Svo er það annað... við mæðginin lágum upp í rúmi í sumar og mamman var nú svolítið þreytt. Þá klappar Jóhann Ísak mér á lærið og segir: Ástin mín, vaknaðu ástin mín.
Já börnin læra sko af manni, það er víst! Bara yndislegt :) (23.10.2008)
Ísblóm
Við mæðginin fórum að kaupa afmælisgjöf handa pabba. Ég spurði Jóhann Ísak hvort við ættum að kaupa blóm handa pabba. En þá svaraði hann: nei ekki kaupa blóm.. kaupa ísblóm og brosti. (19.05.2008).
Kom vel á vondan!
Við foreldrarnir reynum í öllum verslunarferðum að kenna barninu að koma ekki við dótið í hillunum, sem er að sjálfsögðu mjög erfitt fyrir lítinn 2 ára gutta. Í dag fór fjölskyldan í Europrise "að skoða" og mamman fór eitthvað að koma við dótið í hillunni og þá heyrðist í Jóhanni Ísak: ekki taka bara skoða, búðin á!!! Og það var endurtekið oftar en tvisvar sinnum svo mín þurfti að verulega að passa hendurnar :-). Já þarna kom sko vel á vondan sem sýnir að maður lærir það sem fyrir manni er haft. Sem einnig sýnir hversu vel þau skilja mann þó þau hlýði nú ekki allltaf í búðunum.. hehehe! (21.4.2008).
Öxar við ána
Sumarið 2007 þá syngur Jóhann Ísak mjög mikið, hann er mjög söngelskur og einnig mjög lagviss. Þetta sumar er Öxar við ána uppáhaldslagið hans og syngur það miklum og háum rómi :) En einnig syngur hann fleiri lög eins og róla róla...úr Brúðubílnum og einnig Hjólin á strætó snúast hring hring hring...
Bubbi byggir
Eins og sjá má á forsíðunni þá er Bubbi byggir í miklu uppáhaldi og Jóhann Ísak kallar hann : BUBBI BYBBI og syngur lagið hástöfum :)
Mac´Donalds
Fjölskyldan var svolítið dugleg að kaupa sjeik á Mac"donalds í sumar og Jóhanni Ísak þykir það bæði ofboðslega gott og gaman og hvert skipti sem við keyrum fram hjá eða í áttina að Mac"donalds þá er kallað: ÍSS, ÍSS... FORELDRUNUM TIL MIKILLAR AUMKUNAR ÞÁ ER BÚIÐ AÐ KENNA BARNINU HVAR mAC"DONALDSSTAÐIRNIR ERU;)
Orðaforði
Jóhann Ísak að fara á leiksskólann (5 dagar í 2 ára afmælið: LEILÓLANN!!

Hvert sem við keyrum sjáum við gröfur og krana því allstaðar er verið að byggja; og hann hljóðar yfir sig í hvert skifti MEÐ MIKLUM ÁHERSLUM: GAVA GAVA OG ANI ANI.
Svo má ekki gleyma strætó: DÆDÓ DÆTÓ!!