Lilja Marín 4. ára


Um mig:
Ég er yndisleg stelpa sem kom í heiminn 29 október árið 2005 . Ég er fyrsta barn foreldra minn en þau heita Guðmundur Birkir Pálmason('80-Höfn í Hornarfirði) og Rakel Mánadóttir('83-Garðabæ). Við búum núna í Stokkhólmi þar sem pabbi er að læra Chiropractic, mamma er í meistaranámi í Alþjóðastjórnun og ég er í fullri vinnu við að leika við krakkana á leikskólanum mínum.
Ég er ekkert venjulega flott og skemmtileg stelpa sem er brosandi út í eitt. Sjálfstæð og ákveðin ung dama. Mamma og pabbi eru alveg rosalega stolt af mér.
Afi og amma á Höfn heita Pálmi og Elín og ég er barnabarn númer þrjú hjá þeim (af 7)
Afi og amma í Garðabæ heita Máni og Helga og ég er þeirra fyrsta og eina barnabarn enn sem komið er.
Á síðunni minni eru ávallt nýjar myndir og mamma og pabbi skrifa reglulega inná vefdagbókina fyrir mig svo endilega fylgist með mér stækka og dafna:)






Þú ert gestur nr. 35739