| Velkomin(n) á heimasíðu mína |
| Ég heiti Dagur Þór |
|
|
Um mig:
Ég fæddist þann 31. júlí 2005 einum 4 vikum fyrir tímann. Mamma var komin með svo mikla meðgöngueitrun og ég því ekki að stækka nóg inni í henni að það var best að ég kæmi út. Mamma var sett af stað til að byrja með en það gekk svo seint og ég lækkaði annað slagið í hjartslætti að ákveðið var að taka mig með keisarskurði. Mömmu var því skutlað á skurðstofuna þar sem frábært fólk tók á móti okkur báðum. Allt gekk þetta mjög vel og kom ég í heiminn kl 6:43 að morgni. Mér var svo keyrt upp á vökudeild barnaspítalans eftir að mamma og pabbi fengu aðeins að sjá mig og hvers kyns ég væri. Nú ligg ég á vökudeildinni og bíð þess að stækka til að geta farið heim með mömmu, pabba og brósa, læknarnir segja mig vera í "LÍKAMSRÆKT" sem á nú bara nokkuð vel um ástand mitt ;-).
|
|
|
|
|
| Þú ert gestur nr. 24637 |