STÓRI AFMÆLISDAGURINN runninn upp loksins.

Hann á afmæli í dag

hann á afmæli í dag

hann á afmæli hann Dagur Þór

hann á afmæli í dag!´!!

 Ég var vakinn upp við þennan fína söng í morgun, mamma ,pabbi og Bjartur komu inn til mín og knúsuðu mig. Það fyrsta sem ég sagði var náttla bara...ég afmæli.....ég á þá að fá köku!! Og viti menn pabbi var búinn að baka súkkulaðiköku með kertum og nammi á. Við fjölskyldan fengum okkur því köku í morgunmat og sunginn var afmælissöngurinn aftur yfir kertaljósinu á kökunni. Ég fékk svo fínan pakka frá mömmu og pabba.....SPIDERMANbíl, rosalega flottann. Mamma og pabbi fóru svo í vinnuna sína en Bjartur stóri brósi passaði mig enda svooo duglegur. Pabbi kom í hádeginu til að gefa okkur svo að borða og reyna fá mig til að leggja mig en ég var sko ekki á því enda orðinn 3ja ára takk fyrir. Pabbi fór svo aftur í vinnuna en ég og Bjartur að leika okkur.....ég fékk meira að segja að fara í heimsókn til Andra vinar Bjarts. Þegar mamma kom hins vegar heim úr vinnunni var ég sofnaður í sófanum við baratímann, svo mamma vakti mig því Alla amma og Gunni afi komi í heimsókn til að segja til hamingju við mig.....ég er sko búinn að vera SÁ vinsælasti í dag....allir að hringja í mig og óska mér til hamingju.  Afmælisveislan verður hins vega ekki fyrr en í águst þegar allir í fjölskyldunni koma heim til Íslands aftur allir eitthvað út og suður en það er nú í lagi ......ég fæ þá bara fleiri afmælisdaga.........sagði nú í dag að ég ætti bara alltaf afmæli þar sem ég er nú búinn að fá 2 pakka fyrirfram einn frá Villa og fjölskyldu, rosalega flott pússl og svo frá Óla og fjölskyldu í USA en þau gáfu mér rosalega flott föt.

Eftir vinnu hjá mömmu fórum við Bjartur og Andri vinur hans í Ikea til að kaupa nýtt rúm handa mér enda ég orðinn OF stór fyrir rimlarúm enda 3ja ára!! En viti menn eins og vanalega þá var ekki rúmið sem mamma ætlaði að gefa mér í afmælisgjöf til né lakið flotta eða punt á það.....alveg er þetta magnað með þessa búð og hana nú. Við fórum þá bara og fengum ís og kaupum bara rúmið þegar það kemur í næstu viku.'

Jæja ritarinn ætar að láta þetta nægja í bili enda ekki skrifað í langan tíma en fannst kjörið að slá inn smá um daginn í dag. Takk allir sem hafið hringt í mig og hugsað til mín í dag

Kveðja Dagur Þór 3ja ára

31.7.2008 | 23:12
FULLT AF NÝJUM (AÐEINS ELDRI) MYNDUM Í ALBÚMI -MAI-JÚNÍ-SPÁNN-JÚLÍ OG AFMÆLISVEISLAN!!!! ENDILEGA SKOÐIÐ!!!
31.7.2006 | 23:25

ég á afmæli í dag

ég á afmæli í dag

ég á afmæli í dag

ég er 1. árs í dag!!!!

 

Fysti afmælisdagurinn runninn upp og ég vaknaði frekar þreyttur í morgun....ég mátti það nú ekki þar sem ég þurfti að mæta í leikskólann minn í fyrsta skiptið. Pabbi, mamma og Bjartur Þór brósi fóru með mér og fékk ég að borða morgunmat þar....var samt búin að borða hér heima en það var svo spennandi að fá svona kodda í skál og skeið. Ég fékk að halda sjálfur á skeiðinni og hjálpaði mamma mér að stýra henni rétt upp í munninn og tókst mér ótrúlega vel að koma öllum koddunum upp í mig vá hvað þetta var spennó og gott.  Þegar ég var búinn að borða morgunmatinn var kominn hópatími og fórum við inn í herbergi með fullt af boltum ég og 3 aðrir strákar (og auðvitað þau gömlu og Bjartur Þór). Ég lék á alls oddi þarna og var sko ekkert feiminn við að leika mér við hina strákana þó svo ég væri skríðandi og þeir labbandi.....ég mun ná að labba með þeim bráðum ....er alveg til í að fara labba ...þarf bara að æfa mig aðeins. Fóstran mín segir samt að það komi á næstunni því ég væri svo stöðugur.Wink Ég fór svo heim eftir hópatímann og fer aftur á morgun og þá mun mamma skilja mig eftir (kannski fer hún bara að rabba við Ídu leikskólastjóra um vinnuna sína á meðan eða fer aðeins í burtu...það kemur í ljós)

Amma Ása og afi Rúnar komu svo í heimsókn þegar ég kom heim einnig komu Eydís, Kristófer, Sara, Hrund og Viktor Karl og léku við mig með nýja dótið sem ég fékk í afmælisgjöf, ég var mjög sáttu við það enda mjög skemmtilegir krakkar þarna á ferð.

Jæja bless í bili, við munum láta heyra frá aðlöguninni í leikskólanum hér.

kv. Dagur Þór leikskólastrákur

31.7.2006 | 15:55

Halló halló

Nú er sko tími til að segja aðeins frá mér og mínum ekki verið gert í marga, marga mánuði.

Haldið var upp á fyrsta afmæið mitt í dag en ég verð 1. árs á morgun. Komu fullt af fólki úr fjölskyldu minni ásamt vinum í heimsókn til mín með pakka. Dagurinn var alveg frábær í alla staði og skemmti ég mér konunglega. Ég fékk að blása á kertið á kökunni en helst vildi ég nú bara taka þennan loga en fékk það nú ekki en Emilíana frænka mín hjálpaði mér við að blása kertið svo var sunginn afmælissöngurinn og ég var alveg stjarfur á meðan skildi ekki alla þessa athygli sem ég fékk þarna en það var nú gaman. Ég fékk svo fyrstu súkkulaði kökuna mína en ég var nú ekkert svakalega sólginn í hana heldur vildi nú frekar snakkið sem var í boði. Þegar ég var svo búinn að borða með krökkunum þá fór ég að leika mér að öllu dótinu sem ég fékk í afmælisgjöf og var það ekkert smá flott dót og vakti lukku meðal allra barnanna. Ég fékk nú svo nóg af því að vera inni í þessu góða veðri og skreið alltaf fram að útidyrahurðinni því ég vildi komast ÚT.....ég fékk svo að fara út í sandkassann minn ásamt Gabríel frænda mínum og fleirum krökkum það var alveg toppurinn á deginum. Mamma og pabbi skildu nú ekkert í því hvað ég var hress í allan dag þó svo ég hefði ekki sofið nema 30 mínútur í dag....en svona er það þegar gaman er og fullt af fólki er í kringum mig þá má ég bara ekkert vera að því að sofa geri það bara seinna.

Hér er listi yfir það sem ég fékk í gjafir:

Bangsimon eldhús frá mömmu og pabba, tjald frá Bjarti besta brósa, pening frá langafa, buxur, peysu og sokka frá langömmu, sparkbíl, fyrsta fótboltann og peysu frá Ásu ömmu og Rúnari afa, buxur, peysu og pening frá Öllu ömmu og Gunnari afa, sandvagn og fullt af sankassadóti frá Siggu frænku og fjölsk. Íþróttasandala frá Óla frænda og fjölsk. buxur, skyrtu og bók frá Gauja og Möggu, flugmannaskyrtu og píanó frá Vigni frænda og fjölsk. polarn o. pyret galla og sundskýlu frá Sigurgeir og fjölsk. Fötu, skóflu og fleirra og Bubba byggi karl frá Erlu vinkonu og fjölskyldu. Skyrtu og gallabuxur frá Viktori Karli besta vini og fjölskyldu. TAKK ÖLL SÖMUL FYRIR FRÁBÆRAR GJAFIR Í ALLA STAÐI.....ÉG VAR ALVEG SVAKALEGA GLAÐUR MEÐ ALLAR GJAFIRNAR!!! Og enn og aftur takk fyrir að koma í afmælið mitt, það er frábært að eiga svona stóra og góða fjölskyldu sem gleðst með manni á svona dögum Wink

Hér verður stiklað á stóru hvað hefur gerst undan farna mánuði:

Ég er kominn með 8 tennur, farinn að skríða út um allt, standa upp við allt og standa EINN. Ég er aðeins farinn að ganga með hlutum en ekkert einn en mamma heldur að það fari nú að koma að því. Ég  var 9090 gr. og 72,5 sm í 10  mán. skoðun en var eiginlega 11 mán. því ég var mældur 20 júní. Ég fer svo í 1. árs skoðun 18 ágúst og mun setja nýjustu tölur þá inn......hef ég því þyngst um 7384 gr. og lengst um 30,5 sm.....geri aðrir betur á einu ári Wink

Á morgun sjálfan afmælisdaginn þá mun ég byrja í aðlögun í leikskólanum Sjáland. Mamma ætlar svo að byrja vinna þar í næstu viku þegar ég er orðinn aðlagaður í leikskólanum.................já ég er bara að verða LEIKSKÓLASTRÁKUR....mamma og pabbi eru bara ekki að trúa þessu enda finnst þeim svo stutt síðan þau voru á fæðingardeildinni að eiga mig svo agnar smáan en ég er nú orðinn svaka stór Wink

 Jæja við látum þetta nægja í bili og setjum inn myndir sem fyrst úr afmælinu.

kv. Dagur Þór afmælis og leikskólastrákur

30.7.2006 | 23:40

Jæja þetta er nú meira veikindastússið á mér.....ég er búinn að vera með svakalegan hita og endalaus hóstaköst og virtust pústin ekkert vera hjálpa mér svo mamma ákvað að fara með mig aftur upp á spító...greyið mamma ákvað að sturta sig áður og setti mig í göngugrindina fyrir framan sturtuna og viti menn ég fékk þetta líka svaka hóstakastið að ég blánaði bara upp að mamma þurfti að hætta við sturtuna og kalla til Ásu ömmu til að hjálpa sér. Amma kom í kvelli til að mamma gæti sturtað sig áður en hún fór með mig upp á spító. Þegar þangað var komið sagði hjúkkan sem tók á móti mér að hóstinn í mér væri mjög RS legur en ég er búinn að fá RS eða við höldum það...alla vegana fékk ég þá greiningu áður en ég fór til Alabama.

Snorri læknir  kom svo inn og hlustaði mig og sagði að það væru enn þétt öndunarhljóð í mér og sennilega þyrfti ég bara stera til að ná þessu góðu. Mamma sagði þá við hann að sennilega væri ég komin með í eyrun aftur því ég væri svo pirraður og vildi ekki liggja mikið niðri heldur vera í fanginu á henni. Snorri skoðaði eyrun mín og sagði bara .....ég held ég þurfi nú bara að láta mömmu þína hafa lyfseðlablokk því hún veit sko alveg hvað hún segjir....þarf engann lækni til þess....svo auðvitað voru eyrun mín aftur orðin bólgin enda ekki skrítið þegar maður fær svona slæmt kvef þá bara veikist allt. Snorri sagði mig bara mjög óheppinn að fá svona pest ofan í aðra pest og ná mér ekkert á milli en vonandi læknast þetta allt núna þar sem ég er komin á steratöflur, sterapúst, astmapúst og svo pensilín jhii þvílíki meðalapakkinn hehe. Hjúkkan á spító gaf mér fyrsta steraskammtinn og setti sprautuna upp í mig og sagði við mömmu að það gæti vel verið að ég vildi þetta ekki en mamma bara nei nei hann vill allt....og auðvitað sýndi ég hjúkkunni að ég væri duglegur strákur og kláraði allt sem var í sprautunni og hún bara ...jhi þú þarft nú bara að kenna hinum börnunum sem koma hingað að vera svona dugleg!!! Svo eins og í byrjun lífs míns þá var ég í vaxtarækt og nú er ég bara kominn á sterana og kannski bara enn í vaxtarækt hehe.....mamma gleymdi nú að segja að á laugardaginn þegar ég fór á spító var ég vigtaður og vó ég 7300 gr. svo ég er alltaf að þyngjast!!

jæja ætla að láta þetta duga í bili .......er að reyna að fara sofa með pabba ...ekki alveg sátttur við karlinn sem fór svona í burtu frá mér en verð vonandi fljótur að jafna mig á þvi enda búin að sakna hans mikið.

kv. Dagur Þór sterakarl

20.3.2006 | 23:58

Hæ hæ

Þetta er nú búinn að vera meiri dagurinn. Ég byrjaði náttúrulega á því að sofa mjög illa í nótt, mamma vakti með mér frá kl 3 til 6:30 en svo svaf ég ágætlega til kl 10. Amma Alla kom svo í heimsókn til okkar um kl 15 og þá ákvað mamma að kalla til lækni því ég var með 39 stiga hita og fékk mjög slæm hóstaköst. Læknirinn kom svo og hlustaði mig og sagði strax að þetta væri sennilega lungnabólga og að ég þyrfti að fara strax upp á barnaspítala og láta mynda í mér lungun. Amma keyrði því mig og mömmu í snatri upp á spító þar sem lungun mín voru mynduð og kom þá í ljós að ég var og er ekki með lungnabólgu (sem betur fer) heldur einhverja ógeðslega pest. Mömmu var sett fyrir að pústa mig með sterapústi 2x á dag og með ventolíni (astmapúst) 4-6 sinnum á dag....enda mikil astmahljóð í mér. Amma keyrði svo okkur mömmu heim og tók Bjart með sér heim til sín til að leyfa honum að sofa þar. Anna Dögg og Óskar komu svo með mat handa mömmu og ætla að sofa hjá okkur í nótt svo mamma þurfi ekki að vera ein með mig þar sem pabbi er enn úti í Liverpool een hann kemur heim  á mánudaginn sem betur fer....við söknum hans alveg SVAKALEGA mikið. Vonum svo bara að nóttin verði betri en sú síðasta.....læt heyra á morgun hvernig mér líður þá.

KV. Dagur Þór Astmastrákur

19.3.2006 | 00:05

Hæ hæ

Jæja þá er maður orðinn lasinn AFTUR....já ég fékk þarna í annað eyrað áður en ég fór til Alabama og svo aftur þegar ég kom heim en þá bæði. Fór á sýklalyf áður en ég fór út og kláraði það úti kom heim og fékk annnan skammt. Í gær fór ég svo í skoðun til Ólafs Gísla læknis og skoðaði hann mig hátt og lágt og voru eyrun orðin voðalega fín og var hann bara mjög sáttur við mig. Ég hóstaði svolítið en hann heyrði ekkert ofan í mér....svo í morgun vaknaði ég eitthvað skrítinn og ákvað mamma bara að halda mér inni og hætti við að fara í heimsókn á leikskólann Kjarrið (sem mamma vann einu sinni á). Seinni partinn í dag fór svo að hitna í mér og í kvöld þegar Manni, Hrafnhildur og Alexandra voru hjá okkur í Idolpartýi þá var ég orðinn MJÖG heitur og mældi mamma mig undir holhönd og var ég með 40 stiga hita uffffffff já verulega heitur. Mamma gaf mér stíl og er ég mjög þreyttur. Er farinn að sofa núna en hósta alveg hrikalega og kúgast stundum af slíminu sem kemur upp úr mér. Mamma mun sennilega ekki sofa mikið í nótt og hlakkar hana og okkur bræðurna mikið til að fá pabba heim frá Liverpool á mánudaginn. Læt heyra meira um þessi veikindi á morgun og þá ætlar mamma líka aðeins að reyna skrifa ferðasöguna um Alabama.

kv. Dagur Þór Hitakall

17.3.2006 | 23:58

Hæ hæ,

Jæja ég fór til þórðar aftur í dag og viti menn ég er miklu skárri, lyfið greinilega að virka á eyrnabólguna og minni óhljóð ofan í mér þannig að ég fékk grænt ljós með að fara til Alibama, ohhh það verður ekkert smá gaman. Þórður spurði Bjart brósa hvort hann hefðir nokkurn tíman farið til Bandaríkjana áður og Bjartur bara já ég hef farið nokkrum sinnum (mamma sagði að það væri 4 skipti) ekkert smá veraldarvanur og ég er sko að fara í annað sinn VÁ geri aðrir betur 7 mánaða hehe. Jæja við vildum bara láta vita að ég er allur að koma til og fer út til Usa á morgun. Fyrst förum við til Boston og sofum þar eina nótt og svo fljúgum við til Atlanta og keyrum svo þaðan til Óla og Töshu.....já langt ferðalag en verður sko gaman....alveg þess virði að ferðast svona langt til að hitta fjölskyldumeðlimi:-)

Jæja læt þetta nægja í bili, enda kominn tími til að pakka

kv. Dagur Þór utanlandsfari

23.2.2006 | 23:06

Hæ hæ,

Ég fór til Þórðar Þorkels ungbarnasérfræðings í dag til að láta hlusta mig og kíkja í eyrun og viti menn ég er með RS vírusinn og kominn með sýkingu í vinstra eyrað. Pufffffffff og ég á leiðinni til USA. Þórður sagði nú við mömmu og pabba að við þyrftum nú ekki að blása ferðina af núna í dag en ef ég yrði verri þá er ekki víst að ég geti farið til USA.....ennnnn við skulum nú bara vona að sýklalyfið og pústin sem ég fékk virki vel og ég verði bara orðinn þokkalega góður þegar kemur föstudagur og ég fer í stóru flugvélina. Mamma og pabbi eiga að vera bara í sambandi við Þórð á fimmtudag upp á að láta hlusta mig og vonandi þurfum við það bara ekkert. Ég var alveg voðalega pirraður þegar ég vaknaði í morgun eftir samt ágætis svefn og var pirraður í allan dag þar til ég fór til læknisins. Mamma var alveg að sliga í höndunum að vera með mig og kom því pabbi heim snemma í dag og var það alveg rosalega gott.

jæja ætla að láta þetta nægja í bili læt heyra frá mér áður en ég fer í loftið á föstudag.

kv. Dagur Þór RS og eyrnabólgugaur.

 

21.2.2006 | 23:43

Hæ hæ allir,

Nú er ég í fyrsta skiptið LASINN.. já ég er með kvef sem er víst að hrjá landann. Ég er búinn að vera mjög slappur í dag og í gær, hósta mikið og endalaust hor. Mamma er búin að panta tíma hjá barnalækni fyrir mig á morgun og er ég því aðfara til læknis í fyrsta skiptið vegna þess að ég er lasinn... hef náttúrulega farið nokkuð oft bara svona til að láta fylgjast með hvað ég stækka og dafna. Mamma þorir ekki öðru en að láta hlusta mig og skoða í eyrun svona áður en við leggjum í hann til Alibama.....þurfum sko að fara fyrst í flug til Boston og sofa þar eina nótt og svo fljúga til Atlanta og keyra svo þaðan til Alibama til Óla, Töshu, Emilíönu og Gabríels. Já þetta er langt ferðalag svo ég verð að vera búinn að ná mér fyrir það.

Annars er það að frétta af mér að ég er kominn með 2 tennur. Mamma fann fyrstu þann 8. febrúar og svo þessa númer 2 í dag 20. febrúar. Þannig að nú get ég sko farið að bíta frá mér passið ykkur bara!! Ég fór svo í 6 mán. skoðun þann 8. feb. og hafði ég tekið þetta líka svaka stökk í kúrfunni enda orðinn sko 7135 gr. og 65,5 cm. þannig að ég er búinn að þyngast um 5429 gr. og stækka um 23,5 cm á 6 mánuðu....já nokkuð gott af pilti eins og mér.

Ég verð nú líka að segja frá því að ég er kominn í alvöru rimlarúm....náði sko að brjóta undan mér vögguna þann 9. feb. hehe. Já svona fer þegar maður stækkar svona mikið. Pabbi var að taka mig upp úr vöggunni um nóttina og þá bara brotnaðir fóturinn undan henni svo ég fékk að lúlla í mömmu og pabba rúmi það sem eftir var nóttu. Pabbi sótti svo bara rúmið sem systkini mín hafa verið í og eigum við öll saman, svo nú er nóg pláss fyrir mig að sprikla á nóttunni.

Ég er svo líka byrjaður í sundi....ohh það er ekkert smá GAMAN....mamma ætlar að setja inn myndir frá því sem fyrst ..kannski bara á eftir ef hún hefur tíma.

Jæja látum þetta nægja í bili, látum heyra frá okkur á morgun eftir læknisheimsóknina.

kv. Dagur Þór lasarus.

 

 

21.2.2006 | 00:16

Hæ hæ,

Það er nú alveg brjálað að gera hjá mér þessa dagana, á þriðjudaginn sá mamma á mér að ég þyrfti að gera stykki 2 svo hún skellti mér á koppinn og viti menn ég auðvitað bara setti stykki 2 í KOPPINN!! já já ekki orðinn 6 mán og bara byrjað að koppaþjálfa mann. Ég pissaði svo á miðvikudaginn í hann...ekkert smá duglegur og í gær gerði ég stykki 1 og 2 í hann!!

Í gær ákvað ég svo að velta mér yfir á magann....er búinn að vera gera það fyrir m/p í sófanum en þau ekki viljað telja það með svo í gær ákvað ég bara að sýna mömmu að ég gæti þetta líka á teppinu mínu..DUGLEGUR STRÁKUR!!

Annars er ég bara duglegur að halda mömmu við efnið...þ.e.a.s. að sjá um mig er ekkert að sofa yfir mig á daginn tek svona 10-20 mín. lúra en svo á nóttunni er ég farinn að sofa bara vel eða í 5-7 tíma sem er nokkuð gott af gaur eins og mér sem lagði það í vana minn að vakna á 2-3ja tíma fresti. En nú er ég að eldast og ætla að vera duglegur að stækka og þá þarf maður víst að sofa vel ekki satt!!

Jæja látum þetta nægja í bili, við setjum inn myndir af fyrr nefndum atburðum næstu daga.

Kv. Dagur Þór koppastrákur

27.1.2006 | 17:29

Jæja jæja, nú er sko tími til að uppfæra....uff langt síðan síðast!!

Í dag var ég loksins útskrifaður frá Gesti nýburasérfræðingi. Ég var vigtaður og vó 6530 gr. sem er 4824 gr. meira en þegar ég fæddist sem þýðir að ég hef þyngst um 201 gr. á viku sem er bara nokkuð gott af dreng eins og mér. Gestur var alveg svakalega ánægður með mig.....sagði mig vera ALHEILBRIGÐAN og að foreldrar mínir væru mjög heppnir. Hann spurði mömmu hvort ég væri búinn að vera hraustur og mamma bara JÁ, aldrei fengið hita...bara smá kvef sem ekki er hægt að kvarta yfir. Gestur skoðaði mig hátt og lágt, hlustaði mig og kleip mig hér og þar....hann meira að segja kleip mig í punginn og mér fannst það bara fyndið og hló og þá sagði hann að ég ætti að fá verðlaun fyrir að vera þægasta barn vikunnar hjá sér hehe já maður getur sko sjarmað þessa karla. Ég var líka í alveg extra góðu skapi þarna upp á spító enda fullt af fólki að skoða mig og segja mig flottan strák...það var líka að segja að ég líkist systur minni mikið ....enda hugsaði þetta fólk mikið um hana...ekki slæmt að líkjast henni. Þegar Gestur sagði mig svo útskrifaðan frá sér vildi hann nú bara kyssa mig bless því ég væri svo FRÁBÆR...ekki slæmt að fá svona útskriftarorð!!

Annars er bara allt gott að frétta af mér ég er búinn að fara í flugvél hér innanlands, fór með mömmu minni til Hrafnhildar vinkonu hennar eða með þeim í sumarbústað ásamt mörgum örum konum að föndra og viti menn ég var náttla knúsaður bak og fyrir þar sem og ég hitti þar eina skvísu á svipuðu reki og ég. Eins fórum við fjölskyldan ásamt Öllu ömmu og Gunnari afa til Boston. Ég var náttúrulega alger engill báðar leiðir í flugvélinni, sjarmaði alla í kringum mig og meira að segja þá komu konurnar fyrir aftan okkur til okkar í lok flugsins út og sögðust hafa kviðið fyrir fluginu með svona kríli fyrir framan sig en svo hafi ég bara ekki látið heyra í mér og þær svona svakalega ánægðar með mig. Í Boston var verslað og aftur verslað og vorum við bræðurnir alveg svakalega duglegir allan tímann...mamma og pabbi segjast ekki getað hafa átt stilltari börn. Við heimsóttum fjölskyldu Tasha hans Óla frænda og var það mjög gaman, allir ánægðir með að fá að sjá mig...nýja fjölskyldumeðliminn. Ég er svo að fara aftur í flugvél og það nokkrar því við fjölskyldan ætlum að fara til Alibama í febrúar og heimsækja Óla, Tasha, Emilíönu og Gabríel...það verður gaman að hitta þau því bara Óli hefur séð mig og það bara á Vökudeildinni.

Jólin og Áramótin gengu yfir og ég náttla eins og engill allan tímann enda mamma búin að vera fara með mig til höfuðbeina og spjaldhryggsfræðings því ég náði svo ílla að sofna og sofa vel. Ég fór í 4 tíma og er nú bara orðinn rosalega góður að sofa vakna svona u.þ.b. 1x á nóttu nema í fyrri nótt þá ákvað ég bara að sofa alla nóttina...ætla að reyna að halda áfram að taka slíkar nætur enda vaknaði ég bara svo sæll og glaður eftir góðan svefn. Ég fékk fullt af gjöfum á jólunum og skildi ekkert í öllum þessum pökkum en brósi, mamma og pabbi hjálpuðu mér að opna þá alla ...mér fannst nú pappírinn skemmtilegastur ;-)

Jæja ætla að láta þenna pistil nægja í bili, reynum að vera duglegri að skrifa hér inn í framtíðinni. Það eru líka nýjar og nýlegar myndir í albúminu mínu....endilega kíkið við þar.

Kv. Frábæri drengurinn Dagur Þór

 

18.1.2006 | 22:42

Hæ hæ,

Jæja loksins fékk ég nafn, já ég var skírður í dag á afmælisdegi stóru englasystur minnar, Dagmarar Hrundar og fékk ég nafið Dagur Þór. Bjartur Þór stóri brósi sagði sko við mömmu þegar ég var enn í maga hennar að ef barnið væri strákur þá vissi hann alveg nafn á hann og það var nafnið Dagur Þór. Hann sagði þetta því hann bæri nafnið Bjartur og svo systir okkar Dagmar og það væru bæði mjög björt nöfn svo ekki kæmi neitt annað til greina en Dagur, svo mamma og pabbi ákváðu bara að fara eftir því. Ég er bara mjög sáttur við það og svaf því nánast af mér athöfnina og var svo stilltur og prúður í allri veislunni.  Bjartur stóri brósi hélt á mér undir skírn og fékk að segja nafnið, ég var voðalega stillur hjá honum á meðan og sagði hann nafnið svo hátt að Óli, Tasha, Emilíana og Gabríel heyrðu það alla leið til Alibama í USA. Mamma og pabbi voru sko búin að setja upp webcameru og mikrafón til að leyfa þeim að vera með í athöfninni á msninu...já frábær tækni nú til dags. Ég fékk fullt af góðum gjöfum.

Allir veislugestirnir voru svo hrifnir af mér að ég gekk bara manna á milli enda ekki slæmt að knúsa svona fínan dreng eins og mig hehe.......sem stækkar bara og stækkar og er sko orðinn meira en 4 kg. á sko að fara í skoðun til Gests læknis á miðvikudag og þá kemur ný kg. tala í ljós.

Ætla að láta þetta nægja í bili.

Kv. Dagur Þór nýskírði

23.10.2005 | 23:45

Hæ hæ allir,

Jæja jæja, ég ætti nú bara að reka þennan ritara minn ;-) nei nei ritarinn er bara búinn að vera á fullu að sinna mér að ég get nú ekki kvartað en nú kemur uppfærsla um hvað hefur drifið á dagana hjá mér síðan ég kom heim.

Ég hef náttúrulega bara verið alveg svakalega duglegur að drekka brjóstamjólkina mína, hvort sem hún kemur úr brjóstinu mínu eða úr pelanum enda hef ég stækka og þyngst alveg svakalega síðan ég kom heim eða um 250ö gr. á viku. Ég er orðinn 5 vikna og 5 daga og kom hjúkkan í dag að vigta mig og er ég orðinn 3 kg. slétt!!! sem sagt orðinn þyngri en stóri brósi þegar hann fæddist en hann var 2860 gr. Einnig má líka segja að ég hafi þyngst um 1,3 kg. síðan ég fæddist en samt aðeins meira þar sem ég datt niður í 1637 gr. eftir fæðingu. Ég hef líka lengst töluvert en við vitum ekki alveg í sentimetrum það kemur í ljós næsta miðvikudag þegar ég fer á spító í tékk til Gests barnalæknis. Ég er alla vegana farin að passa betur í öll fötin mín. Eins og ég er nú duglegur að drekka þá er ég ekki eins duglegur að losa mig við loftið sem myndast við það í maganum mínum þannig að það tekur allt upp í klukkutíma eftir gjöf að banka úr mér loftið. Ljósan benti mömmu á að reyna gefa mér sitjandi úr pelanum og í fótboltastellingu með brjóstinu (það á strax að koma manni í fótboltann eins og stóra brósa), svo mamma ætlar að prufa það og vonandi er það lausnin því þetta er ferlega óþægilegt þó svo ég gráti nú ekki yfir því heldur umli mikið og garga svona eitt garg annað slagið. Mamma segjir þó að ég sé voðalega góður strákur.

Ég er farinn að vaka alveg fullt og skoða í kringum mig hjala svolítið við mömmu á morgnana þegar við kúrum saman þegar allt liðið á heimilinu er farið til vinnu eða skóla, það er ekkert smá notó að fá að kúra í pabbabóli með mömmu. Það er fullt af fólki búið að koma í heimsókn og skoða mig og gefa mér gjafir (takk kærlega fyrir það) og allir segja það sama "Guð hvað hann er lítill" en það finnst mömmu minni ekki en kannski er það bara af því hún er vön því að hafa svona lítið kríli.

Ég er búin að fá að fara í bíltúr að sækja brósa minn úr skólanum nokkrum sinnum og svo fórum við fjölskyldan upp í kirkjugarð í gær til stóru systur minnar. Það var í fyrsta skiptið sem við fjölskylda förum saman í bíltúr eftir að ég kom heim af spító, ég svaf nú mest allan tímann nema þegar upp í garð var komið þá ákvað ég að vakna og skoða í kringum mig enda mjög fallegt hjá stóru systur núna fullt af blómum og kertum.

jæja ég og ritari minn ætlum að láta þetta nægja í bili enda kominn tími á sjússs.

Kv. Vökur-prinsinn sístækkandi og síétandi

9.9.2005 | 17:09

HEIMFERÐ

Í fyrradag og svo aftur í gær fengum við alveg frábærar fréttir, þá var sagt að ég væri tilbúinn að fara heim, ég er búinn að vera svo duglegur að drekka og þyngjast að þeim á VÖKU finnst ekki þörf fyrir að ég sé lengur þar hjá þeim. Ég fæ því að fara heim í dag og ætla pabbi, mamma og Bjartur brósi að sækja mig og fara með mig heim til Öllu ömmu og Gunnar afa því þar búum við núna á meðan mamma og pabbi klára nýja húsið okkar.

Ég hef verið svo duglegur að drekka og er að drekka um 60 - 70 ml. í gjöf sem er um 30 -40 ml. meira en börn í mínum þyngdarflokki eiga að fá. Ég er því farinn að ráða hversu langt er á milli gjafa innan vissra tímamarka sem er um 4-5 tímar en ég er bara alltaf svangur og er því að vakna á svona 3-4 tíma fresti enda er ég sko að flýta mér að stækka svo ég geti farið í fótbolta með stóra brósa.

Við látum heyra hvernig heimferðin gekk seinna í dag.

Kv. Vöku-prins/heimferðarprins 

17.8.2005 | 09:38



júlí '08 | júlí '06 | mars '06 | febrúar '06 | janúar '06 | október '05 | september '05 | ágúst '05