|
|
|
Um mig:
Ég heiti Jón Agnar og ég fæddist þann dýrðardag Miðvikudaginn 12.Apríl 2006 kl 17:05. Þegar ég fæddist þá var ég með rautt hár eins og pabbi minn og blá augu eins og mamma. Ég fæddist á Sjúkrahúsinu á Akranesi og var ég 3635gr (14,5 merkur) og 52 cm og var það hún Lóa Kristinsdóttir sem tók á móti mér og er hún algert æði;)
Mamma mín heitir Rut (84) og er frá Stykkishólmi, pabbi minn heitir Tóti (79) og er frá Húnaþingi vestra. Pabbi býr á Hvanneyri og ég fer reglulega til hans en ég bý með mömmu og Herði í Reykjavik. Ég á stórann bróðir sem heitir Ingi Þór og er 12 ára gamall (97) og ég lít rosalega mikið upp til hans. Ingi Þór býr í Borgarnesi með mömmu sinni. Ég er að verða stóribróðir í Október en þá eignast mamma lítið barn:) Þannig þið sjáið það að ég er rosalega ríkur strákur:)
HRÚTURINN 21. mars – 19. apríl Rambó leikfélaganna er mættur á svæðið. Með barn í hrútsmerkinu mega foreldrar búast við miklu fjöri á heimilinu því það ríkir engin lognmolla í kringum hrútinn. Ekki ætlast til þess að barnið sitji kyrrt með hringlu. Þetta er barnið sem veifar þér ofan af hæsta tré, alls óhrætt við að taka áhættu. Hrútsbarnið er allt annað en hljóðlátt og lætur oft vel í sér heyra. Sem eldsmerki er hrúturinn orkumikill og hefur ávallt eitthvað fyrir stafni. Verður erfitt að ráða við litla hrúta? Það er líklegra en ekki. Foreldrar ættu eins fljótt og hægt er að kenna þessu barni að vinna með öðrum börnum. Að deila einhverju með öðrum er eitthvað sem kemur ekki af sjálfu sér – það þarf að kenna litlum hrútum. Þeir eru einnig ákaflega tapsárir. Þeir þrá athygli og eiga mjög auðvelt með að verða sér úti um hana með ýmsum aðferðum. Hrútar eru fæddir leiðtogar og ef þú ætlar að hafa eitthvað að segja er betra að láta þá vita með afgerandi hætti hver er við stjórnvölinn því annars er eins líklegt að stjórnin verði tekin úr þínum höndum. Lítill hrútur er oft eins og ótemja, lítið gefinn fyrir að hlýða reglum og vera þægur nema þegar honum hentar. Vegna þess hve hann er orkumikill er nauðsynlegt að hann fái mikla hreyfingu. Hann verður að fá að hlaupa um og róta til heima hjá sér. Ef hann fær ekki útrás fyrir orkuna verður hann pirraður og ergilegur. Honum líður best í lifandi og fjörugu umhverfi. Þar sem fljótfærni og óþolinmæði eru meðal veikleika hans þarf að kenna honum að hægja á sér og telja upp að tíu áður en hann rýkur af stað. Einnig þarf að venja hann á að ljúka því sem hann byrjar á.
|
|
|
Vinir og ættingjar
Ingi Þór Stóri bróðir Ófætt systkini mitt Guðrún frænka Bjarney Birta frænka Sif frænka Mamma Ágúst Davíð Steinarsson Lilja Dögg Einarsdóttir Hjálmar Ingi Egilsson Hjaltalín Valur Snær Tryggvason Davíð Einar Davíðsson Aníta Sól Gunnarsdóttir Gabríel Ísak Hjaltason Jóel Helgi Reynisson Júlíus Már Halldórsson Kristín Mjöll Guðlaugardóttir börnfædd árið 2006 börn fædd í apríl 2006
|
| Þú ert gestur nr. 50458 |