|
Við erum systkinin Tryggvi Gautur og Fjóla Rannveig |
| Það þarf lykilorð til að komast á undirsíður og það er nafnið á fyrsta hamstinum okkar. |
|
|
Smá um okkur...
Tryggvi Gautur fæddist föstudaginn 15. júní 2001 kl. 09.40. Hann var 51,5 cm á lengd og 3580 gr. eða um 14 merkur sem er nokkuð flott. Við fæðingu var hann með dökkt frekar mikið hár og blá, stór og falleg augu. Hann átti í einhverjum erfiðleikum með að koma sér í heiminn og þess vegna þurfti að ná í hann með sogklukku. Eftir fæðinguna fóru nýbökuðu foreldrarnir með frumburðinn sinn í Hreiðrið og þar lúlluðu þau og kúrðu sig fram á næsta dag. Þá voru mamman og litli pjakkurinn færð niður á sængurkvennagang, þar sem þau eyddu næstu dögum. Strákurinn kom svo heim á 25 ára afmælisdegi föður síns.
Þennan fallega föstudagsmorgunn var alveg frábært veður, sólin skein inn um gluggann á fæðingarstofunni og mamman og pabbinn vissu að þau myndu eignast algjöran sólageisla í stíl við veðrið og það kom á daginn!!! Fjóla Rannveig fæddist aðfaranótt mánudagsins 20. ágúst 2007 kl. 02.33. Hún var 49, 5 cm og 3945 gr, sem er um 16 merkur, sem er ögn þyngra en bróðirinn. Við fæðingu var hún með mikið dökkt hár og stór og blá augu, jafnvel dálítíð skásett. Það þurfti að hjálpa Lillsunni í heiminn með því að koma mömmunni af stað og gekk það allt vel. Eftir fæðingu áttu hún og pabbinn smá kósýstund saman en svo fór hún með mömmunni á sængurkvennaganginn en pabbinn var sendur heim í bólið. Mamman og Lillsa komu svo heim tæpum 2 dögum seinna við mikinn fögnuð stóra bróður sem var búinn að bíða spenntur eftir systur sinni. Þessa fallegu ágústnótt, fæddist sem sagt lítið ljón en enn sem komið er hefur hún ekki sýnt það skap. Það er spurning hvort að það komi í ljós seinna meir. |
|
|
Fjölskyldan okkar
Við erum að sjálfsögðu dýrkuð og dáð af fjölskyldum okkar. Mamma og pabbi eru svo hrikalega stolt af okkur og finnst við best heppnuðustu börn á jarðríki!
Í móðurfjölskyldu okkar erum við fyrstu barnabörnin en litli frændi fæddist svo 11 vikum á eftir Fjólu Rannveigu. Hinsvegar erum við barnabarn númer 7 og 11 í föðurfjölskyldu okkar og það er sko stuð á þeim bæ, enda nóg af börnum. Mörg þeirra eru á aldur við okkur, meira að segja eru bara 4 dagar á milli barnabarna númer 10 og 11! Ef þið viljið fræðast um allt það nýjasta það getið þið kíkt í vefdagbókina okkar. Þar gefur að líta nýjustu fréttir og frásagnir af afrekum okkar í lífinu. Hér aðeins neðar eru krækjur inn á síður hjá vinum og fjölskyldumeðlimum okkar. Kíktu endilega í heimsókn til þeirra! Sumar síðurnar eru reyndar læstar- en ef þið þekkið fólkið þá getið þið bara beðið um aðgang. Það er örugglega minnsta málið!
FJÖLSKYLDUMEÐLIMIR Á BARNALANDI Berta Mjöll Birgir Orri Daníel Atli Elías & Emelía Hallgrímur Máni Hörður Gautur & Brynjar Gautur Snædís Sara & Elvar Ágúst Tinna Guðrún Tinna Mjöll & Mikael Úlfur
VINIR OG KUNNINGJAR Á NETINU Arndís María Auður Erla Árni & Bjarki Ásdís Hvönn, Katrín Edda & Jón Pálmi Benedikt Benedikt Snær Daníel Sverrir & Katrín Jana Eik & Mirra Elínrós Hildur Arney Hildur Vaka & Guðrún Nanna Hrafnkell Emil Iðunn Júlían & Lúkas Júlíus Arnar Kristófer Dagur, Aðalheiður Iða & Brynhildur Arna María Rún Naomí Sif & Lísbet Hekla Nína Rakel Rannveig Katrín & Jóhannes Árni Sigmundur Nói Þorri Æsa Sigurbjörg
|
| Þú ert gestur nr. 44709 |