Ég heiti Íris Hrund


Ég fæddist í Rekjavík þann 16.september 1999 klukkan 17:53 í blíðskaparveðri.
Þegar ég fæddist vó ég 3210g (13 mörk) og var 51cm, ég var með mikið dökkt hár, gráblá augu og ekkert smá sæt... :)
Ég lét sko ekki bíða eftir mér, fæðingin gekk rosalega vel og ekki nóg með það en þá kom ég (eins og lýsir meyju best) á settum degi.
Ég bý í Árbænum þar sem best er að búa og er í Árbæjarskóla í 3.bekk.
Ég held auðvitað með Fylki og æfi fótbolta með þeim.
Ég á eina litla systur sem heitir Rakel Inga ('06) og einn lítinn bróðir sem heitir Jökull Skorri ('07) .



Meyjan
23.ágúst - 22.sept
Hér er kominn einstaklingur sem vill hafa hlutina í röð og reglu og er mjög íhaldssamur. Litla meyjan er að öllu jöfnu auðveld í umgengni, samviskusöm, dugleg og hlýðin en oft á tíðum alvörugefin. Skynsemi meyjarinnar kemur yfirleitt fljótt í ljós og ef kæruleysi er ríkjandi í kringum hana er ekki ólíklegt að hún fari að siða fólk til í kringum sig og hafa vit fyrir því. Hún byrjar snemma að hjálpa til á heimilinu og er oft mjög handlagin. Hún er yfirleitt ekki mikið gefin fyrir að draga athyglina að sér og lítil meyjubörn geta oft haft ofan af fyrir sér sjálf í langan tíma. Foreldrar þurfa að draga fram hið jákvæða því litlar meyjur hafa oft áhyggjur af því að hlutirnir séu ekki nægilega vel gerðir. Því þarf að hjálpa þeim að sjá bjartari hliðar tilverunnar og læra að trúa á eigin getu. Ekki er verra að ýta undir skopskyn þeirra.

Lilypie 6th to 18th Ticker










Áður en þú varst til þráði ég þig.
Áður en þú komst í heiminn elskadi ég þig.
Áður en þú hafðir lifað eina stund hafdi ég fúslega dáið fyrir þig.
Þú ert kraftaverk lífsins
Takk fyrir að vera til!


Rakel Inga
Jökull Skorri
Brynja Ísey
Emil Örn
Birgitta Marín
Matthildur Embla
Arngrímur Benedikt
Birta Rós
Guðrún Embla
Sóley Dögg

Þú ert gestur nr. 6460