Ég heiti Rakel Inga


Ég fæddist í Reykjavík þann 1.febrúar '06 klukkan 09:36. Ég vó 3300gr.(13 mörk) og var 50cm.
Þegar ég fæddist var ég með mikið dökkt hár og mjög dökkblá augu.
Mamma mín heitir Erna Bryndís ('81) og pabbi minn heitir Ólafur ('80), svo á ég eina stóra systir sem heitir
Íris Hrund ('99) og svo á ég einn lítinn bróðir sem heitir Jökull Skorri ('07) .








VATNSBERINN

20. janúar - 18. febrúar

Vatnsberabarnið fer fljótt sínar eigin leiðir hvort sem það er í fataburði, hugsun eða hegðun. Það er uppfinningasamt, frumlegt og fullorðinslegt og lærir snemma að tjá sig og skilja heim fullorðinna. Litli vatnsberinn vill sjá um sig sjálfur og fara sínu fram og er oft á tíðum mjög dramatískur. Ef honum leiðist gæti hann átt það til að stofna til vandræða bara til að fá spennu og drama inn í líf sitt. Besta uppeldisaðferðin er fólgin í umræðu og skynsamlegum fortölum. Vatnsberinn er þrjóskur og lítið þýðir að skipa honum fyrir eða beygja hann til hlýðni með skömmum. Best er að koma fram við barnið sem vitsmunalegan jafningja því vatnsberinn er hugarorkumerki og því skipa umræður og skynsamlegar fortölur fyrsta sæti. Vatnsberabörnin geta sýnt ást og væntumþykju á frekar ópersónulegan hátt. Þau eru yfirleitt vingjarnleg og yfirveguð en ekki mjög tilfinningasöm og oft illa við mikið kjass.
Lilypie 3rd Birthday Ticker


ELSKU MAMMA OG PABBI...

Ég er með svo litlar hendur,ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni.
Fæturnir á mér eru svo stuttir,farðu hægar svo ég geti fylgt þér.
Ekki slá á hendurnar mínar þegar ég snerti eitthvað fallegt,ég skil það ekki.
Horfðu á mig þegar ég er að tala við þig,þá veit ég að þú ert að hlusta.
Ég hef viðkvæmar tilfinningar,ekki vera alltaf að skamma mig.
Leyfðu mér að gera eitthvað vitlaust án þess að þér finnist ég vitlaus.
Ekki búast við því að myndin sem ég teikna eða rúmið sem ég bý um sé fullkomið.
Elskaðu mig bara fyrir að reyna.


Láttu þessa litlu skeið
leika þér í munni.
Alltaf verði gatan greið
á göngu þinni í tilverunni.

höf: Fríða langömmusystir.



Íris Hrund
Jökull Skorri
Brynja Ísey
Emil Örn
Birgitta Marín
Matthildur Embla
Arngrímur Benedikt
Birta Rós
Guðrún Embla

Þú ert gestur nr. 10077