Vefdagbók
Myndaalbúm
Kveðjur frá gestum
Gullkorn
Dagbók barnsins
Berglind Ósk
Berglind Ósk

//




Hæ hæ við erum litlu gullmolarnir þeira mömmu og pabba og þau elska okkur meira en allt. Mamma okkar heitir Ása Ingibjörg Sigurbjörnsdóttir og pabbi okkar heitir Lindberg Vignir Lúðvíksson, við eigum 2 hálfsistkyni Sesar Máni Jack og Katrín Tinna :)

Mamma er stoltasta mamman í heiminum:) og elskar okkur meira en allt :)



Berglind Ósk sem var tekin með keisara 28. febrúar 06
hún kom í heimin klukkan 09;34 ég var 51 cm og 16 merkur eða 3905gr :) ég var nú með solldið mikið hár :) og Blá falleg augu :)



Berglind: Nafn þetta er myndað af forliðnum "Berg" sem merkir hjálp, - frelsun og viðliðnum "lind" sem merkir tær, - hrein, - uppspretta.
Björt: Kvenmynd nafnsins Bjartur er merkir skær , - skínandi.

Ósk: Nafn þetta er fengið af nafnorðinu "ósk".



Hið dæmigerða fiskabarn er yfirleitt hæfileikaríkt og vel gefið en viðkvæmt og ekki ólíklegt að það missi stjórn á tilfinningum sínum og bresti í grát af engri sjáanlegri ástæðu. Fiskar eru gjarnir á að fórna sér fyrir aðra. Mikilvægt er að fara varlega að fiskunum og varast að særa tilfinningar þeirra með vanhugsuðum orðum. Fiskar eru mjög skapandi og þeir geta skapað sinn eigin heim þar sem þeir finna til öryggis þegar hinn harði heimur reynist þeim ofviða þá flýja þeir inn í sinn eigin. Því er mikilvægt að hvetja litla fiskinn til að koma út úr skel sinni og takast á við lífið, hvetja hann til að segja skoðun sína hreint út. Foreldrar ættu einnig að hlúa að listrænum hæfileikum barnsins ef þeir koma fram. Fiskurinn er í eðli sínu vingjarnlegur og skilningsríkur en jafnframt umburðarlyndur. Hann á t.d. erfitt með að trúa nokkru misjöfnu um aðra og er því alltaf jákvæður í fyrstu gagnvart ókunnugum.



Svo er það litli strákurinn okkar hann Sigurbjörn Bergmann. Hann fæddist 19. júlí 07 klukkan 06;39, hann var 54cm og 18 merkur eða 4415 gr. Með mikið svart hár og blá falleg augu eins og systir sín :)



Fann ekki hvað Sigurbjörn merkir.

Bergmann

Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Berg" sem merkir frelsa, - að hjálpa, - forða og viðliðnum "mann" sem merkir maður.

Bergmann er því verndari



KRABBINN

22. júní - 22. júlí
Börn í krabbamerkinu eru oft mjög viðkvæm og foreldrar mega búast við að mörg tár muni falla í bernsku. Þau hafa því ríka þörf fyrir hlýju og snertingu auk þess sem öryggi skiptir þau gríðarlega miklu máli. Líf þeirra þarf að vera í föstum skorðum og umhverfið gott. Foreldrar barna í krabbamerkinu ættu ekki að rífast mikið í þeirra návist því þau taka allt mjög nærri sér og eru oft lengi að ná sér á strik eftir áföll. Krabbar byrgja oft tilfinningarnar inni og því er mikilvægt að tala við þau um tilfinningar. Dæmigert krabbabarn man alla tíð eftir því þegar það týndist í Hagkaup í tvær mínútur og tekur því sem höfnun. Krabbinn er oft mislyndur og misjafn í skapi, ýmist hress og jákvæður eða þungur og dregur sig inn í skel. Hann er oft rólegur og hlédrægur en getur gosið upp annað slagið vegna þess hve viðkvæmur hann er. Það þarf að umgangast hann af nærgætni og það er ekki sama hvað sagt er við hann og hvernig. Hann tekur margt nærri sér og er móðgunargjarn. Hann er gjarn á að geyma gremjuna innra með sér og láta á engu bera á yfirborðinu. Foreldrar þurfa því að hvetja litla krabbann til að segja frá því sem honum mislíkar. Mestu skiptir að skapa krabbanum öruggt heimilislíf, veita honum hlýju og gefa honum kost á að tjá tilfinningar sínar, t.d. með því að leyfa honum að eiga gæludýr.



Mamma er Konan

Sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda.

Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda.

Þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til.

Mamma er besta kona í heimi.



Pabbi er Maðurinn

Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður en það tekur hann bara nokkra daga að komast niður á jörðina aftur.

Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað sofið alla nóttina og kúkað í klósett eins og annað fólk.

Samt veit hann allt !!

Svo þegar maður verður aðeins eldri og þá er hægt að fara að leika við mann og kenna manni ýmislegt þá finnst honum rosa gaman.

Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar á þarf að halda.

Pabbi er besti maður í heimi.



Dóttir mín

Elsku yndislega dóttir mín.

Ég veit að ég á ekki alltaf auðvelt með að tjá tilfinningar mínar.

En nú langar mig til að segja þér hvað ég elska þig mikið.

Mig langar til að segja þér hug minn.

Ég veit ekki hvar ég væri ef ég hefði ekki fengið þig inn í líf mitt.

Þú ert mér allt.

Þú ert súrefnið mitt, andardrátturinn minn og löngun mín til að lifa.

Hamingjan mín hófst með komu þinni í þennan heim.

Í dag horfi ég á þig og er hissa á því hvað þú ert raunveruleg.

Ég er svo ótrúlega heppin að hafa fengið þig inn í líf mitt, og að fá að hafa þig mér við hlið í gegnum lífið.

Þú ert gullið mitt, fjársjóðurinn minn.

Ég hef reynt að læra sem mest af þér í gegnum tíðina.

Ég reyni að meta þig að verðleikum.

Þú hefur kennt mér svo margt um lífið, sem ég annars hefði farið á mis við.

Hvar væri ég án þín?

Ég elska þig elsku dóttir mín, nú og að eilífu



Börnin læra af uppeldinu

Barn sem elst upp við gagnrýni lærir að dæma aðra

Barn sem elst upp við óvild lærir að berjast

Barn sem elst upp við háð lærir feimni

Barn sem elst upp við skömm lærir sektarkennd

Barn sem elst upp við hvatningu lærir sjálfstraust

Barn sem elst upp við hrós lærir þakklæti

Barn sem elst upp við sanngirni lærir réttlæti

Barn sem elst upp við öryggi lærir trúnað

Barn sem elst upp við virðingu lærir að meta sjálft sig rétt

Barn sem elst upp við viðurkenningu lærir að leita kærleikans í heiminum



ELSKU MAMMA OG PABBI

Ég er með svo litlar hendur,ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni.

Fæturnir á mér eru svo stuttir,farðu hægar svo ég geti fylgt þér.

Ekki slá á hendurnar mínar þegar ég snerti eitthvað fallegt,ég skil það ekki.

Horfðu á mig þegar ég er að tala við þig,þá veit ég að þú ert að hlusta.

Ég hef viðkvæmar tilfinningar,ekki vera alltaf að skamma mig.

Leyfðu mér að gera eitthvað vitlaust án þess að þér finnist ég vitlaus.

Ekki búast við því að myndin sem ég teikna eða rúmið sem ég bý um sé fullkomið.

Elskaðu mig bara fyrir að reyna


0 | 12.3.2010 02:10:10 #
  • Oooo,,ég sá myndina ,,æjjii sakna ykkar líka ,,elska ykkur! <3
    Ester Inga
    |
    14.7.2009 18:00:19
  • ja algjörar dúllur :) og til hamingju með skírnina flott nafn..
    Anna Egilsdóttir
    |
    13.7.2009 14:41:01
  • Hæhæ krúttmolar:) Þið eruð sko öll bara alveg æðisleg:) Og ekkert smá margar myndir að skoða, mamman bara dugleg:) Innilega til hamingju með skírnina hans Gísla Þórs, vonandi var dagurinn bara æðislegur hjá ykkur:) Knús frá Lovísu Ósk, Söru Dís og mömmu þeirra og pabba!
    Njóla Dagsdóttir
    |
    22.6.2009 14:14:41
  • Hæ hæ fallegu systkyni. Þið eruð alltaf jafn brosandi og yndisleg, svo gaman að kíkja á myndirnar frá ykkur. Múttan ykkar leyfir mér kannski að kíkja í heimsókn næst þegar ég kem til Íslands??? Knúz&Kossar til ykkar allra. kv Dóra frænka í dk
    Dóra
    |
    20.6.2009 04:38:10
  • Hæ hæ sætu systkini, Flottar myndirnar af ykkur, Vildum bara kvítta fyrir komunni, Kveðja Eygló, Íris og Guðlaug Emma:)
    Eygló ýr Ævarsdóttir
    |
    10.6.2009 12:38:39
Hæhæ fallegu :* bara að skilja eftir okkur spor kossar og knús á ykkur Gísli Steinn, María Lilja & mamma..
Brynhildur Ösp Þorsteinsdóttir | 0 | 1.6.2009 12:53:18 #
  • Bara falleg systkini:) Knús í kotið:* Kveðja Ella, Salóme Kristín og litla prinsessa.
    Ella
    |
    22.5.2009 18:31:35
  • Elsku Ása og fjölskylda Innilega til hamingju með litla guttan. Hann er alveg fullkomin. Vonandi heldur allt áfram að ganga vel. knús héðan frá Horsens Inga Lóa og Raggi
    Inga Lóa
    |
    21.5.2009 19:22:32
  • Hæhæ flottu systkini:) Þið eruð sko algjört æði öll þrjú og mamma ykkar ekkert smá heppin að eiga svona yndislega gullmola:) Vonandi gengur allt rosalega vel hjá þér Ása, frétti að litli væri voða vær og góður;) Knús frá systrunum Lovísu Ósk og Söru Dís og mömmu þeirra og pabba!
    Njóla Dagsdóttir
    |
    19.5.2009 10:58:11
  • Hæhæ sætu systkin :) Rosalega ertu orðinn stór og flottur strákur Gísli Þór, algjör gæji :D:D kv. Íris og Margrét Rún :)
    Íris Hrönn
    |
    17.5.2009 03:44:32
  • Hæhæ sætustu sætu ekkert smá flottar allar nýju myndinar ykkar Berglind ósk og Sigurbjörn Bergman ekkert smá dugleg að passa Gísla þór :D og Berglind Ósk ekkert smá dugleg lítil prinsessa á spítalanum :D alltaf gaman að kíkja á ykkur Kveðja Halldór Ingi Aþena Rún og mamma
    jóhanna ótta
    |
    13.5.2009 15:24:22
  • Til lukku með guttann Kveðja úr Grindavík
    Jóhanna og Valur
    |
    12.5.2009 15:58:55
  • Falleg börn sem þú átt Ása mín fer bráðum að koma í heimsókn gangi þér vel kv Berta
    Berta frænka Grindó.
    |
    10.5.2009 22:50:50
  • Þú ert ekkert smá heppin Ása, börnin þín eru alveg yndisleg. Sæt og góð. Berglind ekkert smá dugleg að hjálpa og passa litlu bræður sína. Þau eru ótrúlega falleg og sæt.
    Hildur Byström
    |
    8.5.2009 11:10:16
  • O my hvað þið eruð falleg börn :D ekkert smá yndisleg ! Og svo eruði svooo góð við Gísla Þór :) pottþétt flotustu stóru systkinin ! Ætla að reyna að kíkja á ykkur um helgina Kossar og knús brynhildur & börn ...
    Brynhildur Ösp Þorsteinsdóttir
    |
    8.5.2009 11:03:34
  • Æðislegar myndir! svo falleg börn sem þú átt! :) vantar að geta kommentað á margara myndir ;)
    Linda
    |
    7.5.2009 23:12:01
  • þú átt svo ótrúlega falleg börn Ása,jiii svo góð og sæt. Gangi ykkur vel,knús í kotið. Kv.Gulla og gemlingarnir
    Gulla
    |
    7.5.2009 22:17:33