Rúna Björg kom í heiminn miðvikudaginn 10. ágúst 2005. Ég hafði það svo voðalega gott í maganum á mömmu minna að ég ákvað að koma bara ekkert út. En ég fékk nú lítið um það ráðið og þegar að mamma var komin tvær vikur fram yfir settan dag fór hún upp á Landsspítala og lét bara pína mig út. Ég lét hana nú samt hafa smá fyrir mér vegna þess að ég kom með hausinn skakkan sem gerði henni töluvert erfitt fyrir. Þegar ég fæddist var ég 3480 grömm og 51 cm. Ég fæddist með blá augu og ég kom sko öllum á óvart með því að vera með ljóst hár með rauðum blæ.
Mamma mín og pabbi heita Inga Dóra og Sverrir og við búum í Keflavík. Ég er fyrsta barnabarn á alla kanta og er strax orðin pínu dekruð vegna þess að það vilja allir vera voðalega góðir við mig og knúsa mig stanslaust, mér finnst það nú heldur ekki leiðinlegt.
LYKILORÐIÐ TIL AÐ SKOÐA ALBÚMIÐ ER ENNÞÁ ÞAÐ SAMA NEMA Í STAÐINN FYRIR Ó ER O TIL ÞESS AÐ ÆTTINGJAR OG VINIR Í ÚTLÖNDUM GETI LÍKA SKOÐAÐ
ENDILEGA MUNIÐ EFTIR AÐ SKRIFA Í GESTABÓKINA, OKKUR MÖMMU ÞÆTTI VÆNT UM AÐ FÁ AÐ SJÁ HVERJIR HEIMSÆKJA MIG.