Vefdagbók
Myndaalbúm
Kveðjur frá gestum
Gullkorn
Dagbók barnsins
Sigurpáll Jens
Sigurpáll Jens

velkominn á heimasíðu Kraftaverkabarnanna Sigurpáls Jens og Ásdísar Þóru


Ég kom í heiminn 5vikur fyir tímann, fæddist á Landsspítalanum 11. janúar 2006 kl 12:37 - fæddist sitjandi og kom á 30 mín.

Litla systir mín var aðeins óþolinmóðari að koma í heiminn. Hún fæddist á Landspítalanum 2.júní 2007 kl 14:22 - eftir aðeins 28 vikna meðgöngu.

Mamma okkar og Pabbi heita: Guðbjörg Hulda Stefnisdóttir og Böðvar Ingi Sigurðsson














Til pabba míns...

Eg elska þig afþví að þú elskar mig.
Mér finnst þú frábær og æðislegur
og þú verður það alltaf
Eg elska þig vegna þess að þú vinnur
Svo mikið til að eiga mat handa okkur.
Og þak yfir höfuðið okkar.
Eg elska þig svo mikið vegna þess að
Þú skammar mig aldrei og
Gefur mér nammi.
Eg elska þig vegna þess að þú ert pabbi minn.



Mamma er Konan

Sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda.

Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda.


Þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til.

Mamma er besta kona í heimi.



Pabbi er Maðurinn

Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður en það tekur hann bara nokkra daga að komast niður á jörðina aftur.

Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað sofið alla nóttina og kúkað í klósett eins og annað fólk.

Samt veit hann allt !!

Svo þegar maður verður aðeins eldri og þá er hægt að fara að leika við mann og kenna manni ýmislegt þá finnst honum rosa gaman.

Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar á þarf að halda.

Pabbi er besti maður í heimi.



Boðorðin 10 fyrir foreldra

1. Meta skaltu börn þín eins og þau eru ekki eins og þú vilt hafa þau.
2. Líta skaltu á sérhvert barn sem sjálfstæðan einstakling en ekki sem "krakkann".
3. Þú skalt sinna þér vel en ekki lifa lífinu í gegnum börnin þín.
4. Taka skaltu vel eftir öllu sem vel er gert, hvort sem það er stórt eða smátt og viðurkenndu það.
5. Láttu börnum þínum í té óyggjandi upplýsingar af fremsta megni og treystu þeim til að vega þær og meta og draga af þeim eigin ályktanir.
6.Þú skalt ekki láta börn þín nota þig eða misnota því að slíkt skaðar þau.
7. Þú skalt fela börnum þínum ábyrgð hvenær sem færi gefst svo sjálfstæði verði þeim ekki um megn, því börn eru skammtímalán.
8. Gera skaltu börnum þínum ljóst að þú elskir þau án skilyrða, hvort sem ákvarðanir þeirra falla þér í geð eða ekki.
9. Gefðu börnum þínum ráðrúm til að gera sér grein fyrir afleiðingum gjörða sinna í stað þess að halda yfir þeim hlífskildi endalaust, eins og þú hefur tilhneigingu til.
10. Þú skalt gleðjast innilega þegar forsjár þinnar er ekki lengur þörf því þá hefurðu haft árangur sem erfiði.


Afi er...
maður sem á ekki börn sjálfur
svo að hann lætur sér þykja vænt um
drengi og stúlkur sem annað fólk á.
Afar hafa oft mikið að gera,
en hafa samt næstum því alltaf
tíma til að leika við mann,
þá láta þeir oft eins og algjörir kjánar,
og leyfa manni að gera næstum því allt
sem mann langar til að gera.
Mamma segir að afar geri börn óþæg.
Margir afar þurfa aldrei að greiða sér
af því að þeir eru með svo lítið hár.
Afar eru oft að kenna manni
hvað fuglar og fjöll og svoleiðis heitir.
Afar vita allt.
Allir ættu að eiga afa!


Amma...
Amma er kona sem sjálf á ekki börn
svo hún lætur sér þykja vænt um
drengi og stúlkur sem annað fólk á.
Ömmur hafa ekki neitt að gera, þær eru bara til.
Þær segja aldrei flýttu þér nú,
eða haltu áfram.
Flestar ömmur eru feitar
en þó ekki svo feitar
að þær geti ekki reimað skóna manns.
Þær geta sagt manni allt
sem mann langar til að vita,
eins og afhverju hundar hata ketti
og afhverju Guð er ekki giftur.
Ef þær lesa fyrir okkur
hlaupa þær aldrei yfir neitt.
Ömmur eru þær einu sem hafa tíma fyrir aðra.
Allir ættu að eiga ömmu!


Afa og ömmu boðorðin 10

1. Þú skalt alltaf vera að knúsa og kyssa barnabarnið þitt.
2. Þú skalt gefa því ótakmarkað af kökum.
3. Þú mátt ekki gleyma að kyssa á öll báttin.
4. Þú skalt alltaf vera í sambandi, í eigin persónu, símleiðis eða með pósti.
5. Þú skalt deila minningum og sögum.
6. Þú skalt alltaf vera tilbúin með nammiskálina.
7. Þú skalt verðlauna góðar einkunnir og íþróttasigra.
8. Þú skalt leyfa því að vaka lengur en háttatíminn segir.
9. Þú skalt vera örlát/ur á lof og hrós.
10. Þú skalt segja því, við hvert tækifæri sem gefst, að þú elskir það.


það sem ekkert barn getur fært í orð
Ég bað ekki um að verða til og það er ekki víst að ég geti orðið það barn sem ykkur dreymdi um að eignast. Það er ekki einu sinni víst að ég geti orðið það barn sem vísindin kalla heilbrigt og eðlilegt. Engu að síður vonast ég til að ykkur geti þótt vænt um mig, því að án þess get ég ekki náð fótfestu í lífinu. En hvernig sem ég er, þá er ég sérstætt undur náttúrunnar. Það hefur aldrei verið til annað barn sem er nákvæmlega eins gert og ég og það verður að líkum aldrei til. Þess vegna getið þið aldrei lært neitt um séreðli mitt af bókum eða fræðimönnum, heldur bara um það, sem ég á sameiginlegt með öðrum börnum svona í stórum dráttum. Reynið að virða séreðli mitt, því að það er hvorki á ykkar færi né mínu að breyta því. En gruni mig, að ykkur falli séreðli mitt ekki í geð, get ég reynt að fara að breyta því til að þóknast ykkur. En mér getur ekki liðið vel, ef mér finnst ég þurfa að lifa lífinu í andstöðu við mitt innsta eðli.

Því miður get ég ekki skýrt þetta séreðli mitt fyrir ykkur. Þess vegna á ég alla velferð mína undir skarpskyggni ykkar og athygli Það er svo auðvelt að horfa án þess að sjá og hlusta án þess að heyra eða sjá og heyra bara það, sem maður býst við að sjá og heyra. Ef þið festist í þeirri gildru, getur farið svo að þið uppgötvið aldrei hvernig ég er í raun og veru. Eða hvers vegna ég bregst við eins og ég geri. En þótt mig langi til að fá að vera bara svona eins og ég er, langar mig samt að geta þroskað þá hæfileika sem ég hef fengið í vöggugjöf. Til þess þarf ég á handleiðslu ykkar að halda. Það er ekki vandalaust verk. Það er ekki hægt að ýta svo á eftir mér, að mér verði fótaskortur á hraðanum og engan veginn víst, hve vel mér gengur að rísa aftur á fætur. Á hinn bóginn getið þið líka verið svo hrædd um mig að þið leyfið mér aldrei að spreyta mig nægilega til að ég geti haldið áfram að þroskast. Til þess þarf ég, að minsta kosti öðru hverju, helst sem oftast, að fá að spreyta mig við efri mörk minnar getu. Það er skaðlaust, svo framarlega sem þið hafið augun opin og fylgist með, hvenær ég er að þreytast eða verkefnin að vaxa getu minni yfir höfuð. Ef ég fæ ekki að spreyta mig, öðlast ég aldrei það öryggi sem reynslan ein getur gefið. Séu verkefnin hins vegar að staðaldri ofviða minni getu missi ég smá saman kjarkinn og sjálfstraustið bíður hnekki. Að sjálfsögðu vil ég gjarnan fá að ráða og þekki í raun ekki annan vilja en minn eigin. Í sjálfu sér langar mig mest til að sveigja alla og allt undir minn vilja. En það megið þið ekki leyfa mér, því það er of hættulegt. Þið verðið að passa mig fyrir hættum, því ég kann ekki að forðast þær af sjálfsdáðum.

En þið verðið líka að temja mig, hefla mig og siðfága. Reynið samt ekki að kenna mér þetta allt í einu, því þá ruglast ég í ríminu. Kennið mér fyrst að forðast hættur, því að það er mikilvægast. Siðfágunin getur beðið betri tíma. Ef ég finn að ykkur þykir fölskvalaust vænt um mig, vil ég ýmislegt fyrir ykkur gera, því mér fer að þykja vænt um ykkur á móti. Ég get meira að segja vel beygt minn vilja undir ykkar vilja, svo framarlega sem reynslan sannar mér, að ykkur er ávalt velferð mín efst í huga, þegar þið eruð að banna mér eða aga mig, en látið ekki stundarduttlunga eða augnablikshagsmuni ykkar ráða ferðinni. Finni ég glöggt að þið berið ávalt mína velferð fyrir brjósti kemur fyrr eða síðar að því að mér verður ljóst, hvers virði handleiðsla ykkar er þar að hún forðar mér frá glappaskotum, sem ég mundi gera, ef minn vilji réði einn. En viljið þið að ég hlýði til þess eins, að þið getið sýnt vald ykkar yfir mér, er ekki víst að ég verði svo mjög fús til samvinnu. Ég hlýði ykkur ef til vill af hræðslu meðan þið sjáið til, en þið skuluð ekki búast við, að ég hlýði til að sanna, hvað þið eruð góðir uppalendur. Þá bíð ég bara eftir tækifæri til að vera ykkur til skammar, þegar næsti gestur kemur í heimsókn. Síðast en ekki síst, vil ég biðja ykkur að muna, að þið eruð fyrirmynd mín í tilverunni.

Ég hermi eftir öllu, sem þið gerið, hvort sem það er gott eða vont. Það þýðir ekki fyrir ykkur að segja mér að gera eitt, ef þið gerið sjálf eitthvað annað. Ég tek ekki mikið mark á orðum, sérlega ekki ef ég finn að þau stangast á við allt sem ég sé fyrir mér. Ég skil ekki einu sinni alltaf það, sem þið eru að segja, en ég get alltaf hermt eftir því, sem ég sé fyrir mér, hvort sem ég skil það eða ekki. Þess vegna skulið þið aldrei gleyma þeirri einföldu en fjarskalega erfiðu staðreynd að það er ykkar hegðun sem mótar mig öllu öðru fremur.


Ó, Jesús bróðir besti
og barnavinur mesti,
æ, breið þú blessun þína
á barnæskuna mína.
Mér gott barn gef að vera
og góðan ávöxt bera,
en forðast allt hið illa,
svo ei mér nái' að spilla.
Það ætíð sé mín iðja
að elska þig og biðja,
þín lífsins orð að læra
og lofgjörð þér að færa.
Þín umsjón æ mér hlífi
í öllu mínu lífi,
þín líknarhönd mig leiði
og lífsins veginn greiði.
Mig styrk í stríði nauða,
æ, styrk þú mig í dauða.
Þitt lífsins ljósið bjarta
þá ljómi' í mínu hjarta.
Með blíðum barnarómi
mitt bænakvak svo hljómi:
Þitt gott barn gef ég veri
og góðan ávöxt beri

Meta skaltu börn þín eins og þau eru ekki eins og þú vilt hafa þau.
2. Líta skaltu á sérhvert barn sem sjálfstæðan einstakling en ekki sem krakkan".
3. Þú skalt sinna þér vel en ekki lifa lífinu í gegnum börnin þín.

4. Taka skaltu vel eftir öllu sem vel er gert, hvort sem það er stórt eða smátt og viðurkendu það.

5. Láttu börnum þínum í té óyggjandi upplýsingar af fremsta megni og treystu þeim til að vega þær og meta og draga af þeim eigin ályktanir.

6. Þú skalt ekki láta börn þín nota þig eða misnota því að slíkt skaðar þau.

7. Þú skalt fela börnum þínum ábyrgð hvenær sem færi gefst svo sjálfstæði verði þeim ekki um megn, því börn eru skammtímalán.

8. Gera skaltu börnum þínum ljóst að þú elskar þau án skilyrða, hvort sem ákvarðanir þeirra falla þér í geð eða ekki.

9. Gefðu börnum þínum ráðrúm til að gera sér grein fyrir afleiðingum gjörða sinna í stað þess að halda yfir þeim hlífskildi endalaust, eins og þú hefur tilhneigingu til

10. Þú skalt gleðjast innilega þegar forsjár þinnar er ekki lengur þörf því þá og aðeins þá hefurðu haft árangur sem erfiði.



0 | 12.3.2010 02:10:26 #
Hæhæ gaman að sjá nýjar myndir loksins. :)
Sigrún, Stefnir og Börn | 0 | 21.2.2009 23:07:31 #
Til hamingju með afmælið sæti Sigurpáll Jens... Stórt afmælisknús til þín... Hafdís María og fjölsk.
Hafdís María Jónsdóttir | 0 | 11.1.2009 01:23:48 #
Hæhæ það er svo gaman að leika við ykkur þig eigið svooo mikið af skemmtilegu dóti:) Vonandi sjáumst við bráðlega!
Hulda María | 0 | 29.11.2008 11:11:10 #
Nýjasta æðið hjá sigurpáli er Cars og Leiftur maqueen og á hann einn lítinn leiftur sem hann hefur með sér um allt nema í leikskólann og fylgir bílinn jafnt í bað sem að fara að sofa og einn morgunn sagði mamma við sigurpáll eigum við að kaupa nýjan leiftur því hann er orðinn soldið skemmdur þá dettur upp úr drengnum - segðu afsakið og mamma varð að segja fyrirgefðu við bílinn því honum sárnaði.
0 | 16.11.2008 11:48:10 #
Einn daginn vorum við á leiðinni í sveitina og mamma og pabbi eitthvað að tala saman og sigurpáll að reyna að fá að segja eitthvað líka og mamma var ekki að hlusta og þá sagði hann mamma hlustaðu á mig.... þetta heyrist stundum á heimilinu enda seig mamman í sætinu við þessi orð.
0 | 16.11.2008 11:44:40 #
  • hæ hæ sá síðuna ykkar inná fyrirburar og sá þar að við höfum verði á sama tíma á vöku langaði bara að kvitta fyrir innlitið kær kv Aníta
    Aníta og þríburarnir
    |
    28.8.2008 00:32:04
  • Hæ þið eruð glæsileg og falleg bæði tvö og eftir myndum að dæma yndisleg saman þegar þið eruð leika ykkur.Sigurpáll er örugglega duglegur og góður að leika við systur sína. kær kveðja Jenný frænka (systir Palla afa)
    jenny hjordis
    |
    16.8.2008 21:14:21
Hæ sætu Voða eruð þið fín. Það lítur út fyrir að það sé alltaf fjör á ykkar heimili. Kveðja Erla frænka
Erla Sævarsdóttir | 0 | 23.6.2008 17:40:39 #