Vefdagbók
Myndaalbúm
Kveðjur frá gestum
Gullkorn
Dagbók barnsins
Álfakot
Álfakot
Jæja þá er ég loksins farin að læra að setja inn myndir. Sumar myndir koma tvisvar en það gerir ekkert til þau eru svo sæt og fín að það er aldrei hægt að skoða þessi kríli og oft :)
Núna erum við farin að fara tvisvar á dag út að leika og börnin elska það. Núna má fara að pakka kuldagöllum og kuldaskóm og koma með sumarfatnað. Gott væri ef þið myndið bera sólarvörn á krílin á morgnana og ég eftir hádegi :) 
Endilega kvittið í gestabókina þegar þið kíkið hér inn ;) Kv. Viktoría dagmamma.
0 | Fyrir 3 vikum #

Brynjar Ingi 2 ára (mars og apríl)

0 | 0 | Fyrir 3 vikum #
Er að læra að setja inn myndir á þessa nýju síðu er ekki alveg að skilja hvernig það er gert en nýjar myndir koma fljótlega :)
0 | 16.4.2012 13:45:07 #

Þá er mars að vera búin og aðlögunin hjá Ylfu hefur bara gengið eins og í sögu. Allir hressi og kátir hér á bæ og ekki er verra að veðrið er orðið svo fínt að við erum farin að leika okkur úti á morgnana. Allir eru svo kátir að komat út að leika og matarlistinn hefur aukist :) Núna þarf ég bara að fara að koma mér í að yfirfara kerruna okkar fínu svo við getur farið að fara upp á róló :) Matartíminn og svefninn fara nú að breytast aðeins þegar við förum að fara svona út. Annars er bara allt gott að frétta hér í Álfakoti. Endilega kvittið í gestabókina þegar þig kíkið hér inn. 

Núna er komin nýtt útlit á síðuna sem ég er að læra á, það eru engar undirsíður lengur þannig til að minna ykkur á þá fer ég í sumarfrí 18. júlí kl. 13:00 og opna aftur 23. ágúst kl. 9:00. Þau börn sem koma ekki aftur eftir sumarfrí þurfa að segja upp með mánaðar fyrirvara og miðast það við 1. hvers mánaðar.
Kveðja, Viktoría dagmamma
0 | 29.3.2012 14:05:03 #

Dans ( myndband )

0 | 0 | 26.2.2012 21:02:35 #

Febrúar 2012

0 | 0 | 26.2.2012 20:52:19 #

2012 byrjar vel fyrir utan veikindi. Vonandi fer snjórinn að fara allur svo að við getum farið að fara aðeins út fyrir garð að labba og hitta aðra krakka.

Steinunn hættir hjá okkur í mars hún er að fara að flytja :(   En við fáum annan leikfélaga til okkar í staðinn hún heitir Ylfa Kristín og verður 1 ára í febrúar.

Bless í bili kv. Viktoría dagmamma :)

0 | 29.1.2012 17:57:04 #

Desember 2011

0 | 0 | 22.12.2011 23:10:04 #

Núna erum við komin í jólafrí og 4 af 5 krílum komin með hlaupabóluna. Þetta var annsi skrítin vika við sem ætluðum að hafa það svo kósí. Elín og Rojus komu á mánudaginn upp í Smárakot og skemmtu sér vel höfðu 4 aðra leikfélaga til að leika við :) þar sem hinn 3 krílin mín eru komin með hlaupabóluna. Síðan á þriðjudaginn var Rojus komin með bóluna. Foreldrakaffið var því annsi tómlegt bara Elín og mamma hennar en við vorum svo heppin að það voru 4 kríli hjá Dagrúnu dagmömmu að það fylltist í jólakaffið okkar.

Er að setja inn desember myndir, nokkrar jólamyndir það voru ekki allir kátir með að láta mynda sig en það gekk að lokum :) Afmælismyndir úr afmælinu hennar Elínar og nokkrar myndir úr Smárakoti. 

Gleðileg jól öll hlakka til að hitta ykkur aftur 2. janúar 2012  Laughing

1 | 22.12.2011 23:04:34 #

Hæ hæ, takk fyrir kveðjuna. Gaman að skoða síðuna hjá þér og öll fínu börnin! Sjáumst á miðvikudaginn og á opnum húsum :)
Kristín dagmamma | 0 | 14.11.2011 14:56:38 #

Nóvember 2011

0 | 0 | 14.11.2011 13:41:29 #

Október 2011

0 | 0 | 24.10.2011 19:55:22 #

Jæja ekki er ég neitt dugleg að uppfæra dagbókina okkar.

En allt gengur bara rosalega vel með hópinn allir svo duglegir að leika, borða og sofaSmile. Það er búið að vera rosalega mikið um veikindi í september en við skulum bara að vona að núna er veikinda tíminn búinn hjá okkur.

Núna er farið að kólna þá er gott að koma með allan vetrafatnað svo litlu krílunum verður ekki kalt.

Hef svo sem ekkert að segja meira þið erum svo duglega að spyrja um daginn og samskipti svo góð.

Kveðja, Viktoría dagmamma.

0 | 11.10.2011 12:41:10 #

September 2011

0 | 0 | 11.10.2011 12:33:52 #

Aðlögun í ágúst 2011

0 | 0 | 1.9.2011 12:29:58 #

Dagur 2 í aðlögun gekk líka vel. Bríet Sunna mætti til okkar og það var eins og hún hafi bara farið í helgarfrí. Greinilega alveg tilbúin að byrja aftur og leika við krakkana. Hún virtist ekkert kippa sér við að það voru komin 4 ný andlit Smile.

Dagur 3 í aðlögun gekk rosalega vel allir svo duglegir að leika og kynnast nýjum stað.

Hlakka til að sjá ykkur á mánudaginn.

Kv. Viktoría dagmamma

0 | 19.8.2011 16:45:28 #

 

Byrjuð aftur eftir sumarfrí

Dagur 1 í aðlögun gekk mjög vel. Kannski ekki skrítið því að allar mömmur voru á staðnum.Laughing Bríet Sunna var í fríi í dag en kemur á morgun að hitta nýju félagana.

Sjáumst á morgun.

0 | 17.8.2011 22:43:39 #

Í gær hættu Ásgerður, Hallur, Svanhildur og Sólveig þau eru öll að fara í leikskóla í haust. Bríet kemur aftur eftir sumarfrí ásamt 4 nýjum leikfélögum.

Gangi ykkur vel í leikskólanum dúllurnar mínar.

Komin í sumarfrí byrja aftur 17. ágúst

0 | 14.7.2011 09:34:00 #

Júní 2011

0 | 0 | 28.6.2011 23:46:55 #
Sæl Viktoría, ég var að senda þér fyrirspurn á netfangið: viktoria@internet.is Vonandi sendi ég þér á rétt netfang. Frábær síða sem þú ert með. Bkv. Ösp.
Ösp | 0 | 8.6.2011 19:30:15 #