Velkomin á heimasíðuna mína.
Ég er Gísli Garðar


Um mig:
Ég fæddist á Sjúkrahúsi Suðurlands, mánudaginn 1.maí 2000. Pabbi og Agnes amma voru viðstödd. Ljósmóðirin var Sigurlinn Sváfnisdóttir. Kom í heiminn kl.16:37. Annað barnabarn Agnesar ömmu og Valda afa og sjötta barnarbarn Sirrý ömmu og Garðars afa. Ég var svo skírður í höfuðið á Garðari afa og þá gekk nú mikið á. Það var á þjóðhátíðardaginn og skjálftadaginn 17.júní 2000. Var um tíma kallaður Skjálfti litli Richter! Ég á einn bróður hann Valda og litla systur sem heitir Agnes Ósk.
Ég vona að þið hafið gaman af síðunni minni og verið dugleg að skrifa í gestabókina mína.