"Ég er sko ekkert eins og einhver stelpa!"
Sagði Gísli þegar honum var sagt að litla systir væri alveg eins og hann........
Sko svo þurfum við að tala við "skíraramanninn" því að litla barnið þarf að heita eitthvað.
Gísli mundi ekki orðið prestur og reddaði sér svona......
Sko. Þessi api er eyrnalaus, þessi sér ekkert og þessi er máttlaus!
Gísli að útskýra fyrir ömmu styttu sem hann fékk í tombólu. Hún er af öpum sem sýna heyrnarlausa, blinda og mállausa apa.
Æi! Ég meiddi mig í skrítna beininu.......!
Gísli rak olbogan í og hann hafði heyrt um "vitlausa beinið" !
Mér fannst mörgu gæsirnar svo skemmtilegar.
Gísli búin að horfa á Madagascar.