Ég fæddist á Sjúkrahúsi Suðurlands, þriðjudaginn 29.nóvember 2005 kl. 06:14. Það var hún Herborg Pálsdóttir sem tók á móti mér ásamt pabba sem fékk að klippa á naflastrenginn. Ég var 53 cm löng og 16,5 merkur, algjör dúlla með dökkt hár og bara alveg eins og Gísli, bróðir minn. Mamma, pabbi og stóru bræðurnir mínir, Valdi og Gísli eru svo montin með mig. Vonandi finnst ykkur gaman að fylgjast með mér stækka og dafna. Endilega skrifið í gestabókina mína og kíkið á myndirnar mínar.
|