Ég heiti I ð u n n


Lilypie 6th to 18th Ticker

Ég er fædd þann 27. desember 2000, kl. 00:17. Langamma Guðný Margrét á afmæli sama dag og þótti henni ekki slæmt að fá svona fína afmælisgjöf. Í dag er ég 7 ára gömul og er voðalega dugleg stelpa.


Ég geng í skóla sem heitir Selásskóli. Bekkurinn minn heitir 3-EH og þar þykir mér gott að vera. Mér gengur mjög vel og finnst alltaf gaman að fara í skólann. Svo æfi ég fimleika tvisvar í viku með Fylki og finnst það svakalega gaman. Má ekki missa af æfingu og ef það gerist þá skelli ég mér í fimleikabolinn og æfi mig heima í staðinn. Ég er líka komin í kór í Árbæjarkirkju einu sinni í viku.

Litli bróðir heitir Þorri og fæddist hann 27. apríl 2004. Mér þykir ofsa vænt um hann og elska að prakkarast með honum. Ef hann meiðir sig þá fer ég líka að gráta því ég vorkenni honum svo mikið. Svo er ég búin að eignast litla systur sem heitir Nína Rakel og er hún fædd 31. október 2008. Ég er alveg hæst ánægð með hana og elska að dúllast í henni.


Iðunn

Nafn þetta er komið úr norrænni goðafræði en Iðunn var gyðja sem gaf ásunum epli sem viðhéldu æsku þeirra.

Nafnið er samsett af forliðnum "Ið" sem merkir endurtekning, -aftur á ný og viðliðnum "unn" sem merkir unnir, - elskar, - ást.




Hér getið þið líka séð vini mína:

Anna Dúfa og Gunnar
Arndís María
Aron Bergur
Benedikt Snær
Bryndís Pálína og Katrín
Frosti & Fanney
Gunnhildur Bjarnveig og Kristófer Jónas
Hildur Embla
Hrafnkell Emil
Jakob Páll og Emilý
Júlíus Arnar
Sigmundur Nói
Tryggvi Gautur og Fjóla Rannveig

Og hér eru ættingjarnir:

Þorri bróðir
Agnes Halla
Aþena Ugla
Matthías Leó
Nína Rut
Diljá María
Hafsteinn Már
Ívan Elí
Sunneva Rún
Þröstur Jón
Æsa Sigurbjörg




STEINGEITIN

22. desember - 19. janúar

Steingeitin er alvarlegasta stjörnumerkið og oft er sagt að hún fæðist gömul og verði yngri eftir því sem árin færist yfir. Steingeitin er vel skipulögð og er ung að árum farin að taka þátt í rekstri heimilisins. Hún á stundum erfitt með að hafa gaman af lífinu og ekki er ólíklegt að barnið þitt velji frekar að raða fötunum sínum í skápinn en að fara út að leika. Mikilvægt er að foreldrar kenni börnum sínum að það er í lagi að slaka á og leika sér og að fullkomnun er ekki einungis ómöguleg heldur einnig mjög ópraktísk. Steingeitin er haldin fullkomnunaráráttu og óttast fátt meira en að missa sjálfsstjórn og þar með tök á tilverunni. Hún verður mjög óörugg ef hún hefur ekki gamalgrónar reglur og hefðir til að styðjast við og ef þær eru ekki til staðar er hún fljót að búa til reglur sjálf. Börn í steingeitinni eru mjög athugul, skynsöm og metnaðargjörn og dæmigerðar geitur vita allra merkja fyrst hvað þær ætla sér í lífinu. Mikilvægt er að kenna steingeitinni að tjá tilfinningar sínar, slaka á og sjá bjartari hliðar tilverunnar og ekki síst að ýta undir skopskyn hennar.




Þetta er sagt um afmælisdaginn minn:
27. desember

Þú ert iðinn, þolgóður og framsækinn, stundum dálítið ofstopafullur, en ágætur stjórnari. Þér hæfa bezt óháð störf. Þú ert heldur seintekinn til vináttu og ásta, og jafnvel tortrygginn, en ákaflega trúr og fastheldinn. Það er ekki ósennilegt að maki þinn verði eldri en þú og með gerólíkt skapferli.






Þú ert gestur nr. 72846