Ég heiti Jóhann Pétur Margeirsson og fæddist á landspítalanum 27 júlí 2005 klukkan 04.35. Ég var rúm 16 merkur (4190) og 54 cm. Ég og mamma sváfum á spítalanum í þrjár nætur af því að mér gekk soldið illa að komast í heiminn. En það var nú alveg yndislegt að komast svo loksins heim til pabba. Ég fæddist með blá augu og dökkt hár, en er alveg ljóshærður í dag og er alveg voðalega sætur. Mamma mín heitir Dagný og Pabbi minn Margeir, ég er fyrsta barnið þeirra og líka fyrsta barnabarnið í báðar ættir.
Ágúst Andri Margeirsson fæddist á landspítalanum þann 13. sept kl 17.08. Hann var 18 merkur(4490) og 52 cm. Alveg gullfallegur! okkur gekk svo vel að við fengum að fara í hreiðrið og svo heim daginn eftir. Ég er dökkhærður og með blá augu. Ég á besta bróðir í öllum heiminum sem þykir alveg rosalega vænt um mig
"Sú ákvörðun að eignast barn er einstök.
Að ákveða að um alla eilífð mun hjarta þitt
verða á gangi fyrir utan líkama þíns."
Jóhann
Nafn þetta er stytting á nafninu "Jóhannes" sem merkir Guð er náðugur.
Pétur
Nafn þetta er fengið úr biblíunni, er komið af gríska nafninu "Pétros" sem merkir klettur.
(Sjá Jóhannesarguðspjall 1:42)
Andri - andstæðingur, eða skíðamaður.
UM LITLA LJÓNSUNGA
Konungurinn í frumskóginum er mættur og vill einmitt vera meðhöndlaður í samræmi við tign sína. Litla ljónið þarfnast athygli (við erum að tala um að vera alltaf miðdepill athyglinnar!) og vill láta taka eftir sér og láta dást að sér. Það getur verið mikil vinna að eiga börn í ljónsmerkinu. Börnin eru oft hávaðasöm og mjög opin í tjáningu. Ef barnið er ánægt er það yndislegasta og fallegasta barn í heimi en ef það er óánægt öskrar það og lætur öllum illum látum. Heimilislífið kemur til með að snúast mikið í kringum kraftmikinn ljónsungann sem getur verið mjög stjórnsamur og frekur. Það þýðir ekki að segja ljóninu að læðast meðfram veggjum því slíkt er andstætt eðli þess og er ekki til annars en að brjóta það niður. Vingjarnleg ákveðni er það sem dugar best. Ljónið er merki stjórnunar og foreldrar þurfa að virða þörf þess fyrir persónulegt sjálfstæði og því er gott að fela því snemma ábyrgð. Mikilvægt er að kenna því að taka tillit til annarra. Það þarf að taka tillit til þess í uppeldi að ljónið er einstakt og veita því athygli, hvatningu og ekki síst að hrósa því þegar það hefur gert eitthvað jákvætt
MEYJAN
23. ágúst - 22. september
Hér er kominn einstaklingur sem vill hafa hlutina í röð og reglu og er mjög íhaldssamur. Litla meyjan er að öllu jöfnu auðveld í umgengni, samviskusöm, dugleg og hlýðin en oft á tíðum alvörugefin. Skynsemi meyjarinnar kemur yfirleitt fljótt í ljós og ef kæruleysi er ríkjandi í kringum hana er ekki ólíklegt að hún fari að siða fólk til í kringum sig og hafa vit fyrir því. Hún byrjar snemma að hjálpa til á heimilinu og er oft mjög handlagin. Hún er yfirleitt ekki mikið gefin fyrir að draga athyglina að sér og lítil meyjubörn geta oft haft ofan af fyrir sér sjálf í langan tíma. Foreldrar þurfa að draga fram hið jákvæða því litlar meyjur hafa oft áhyggjur af því að hlutirnir séu ekki nægilega vel gerðir. Því þarf að hjálpa þeim að sjá bjartari hliðar tilverunnar og læra að trúa á eigin getu. Ekki er verra að ýta undir skopskyn þeirra.
|