| Velkomin/nn á heimasíðu Jóhanns Breka :) |
| NÝ SÍÐA!! http://johannbreki.123.is/ |
|
|
Um mig:
Ég fæddist á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupsstað 3 september 2005 kl 01:02, ég var 16 merkur og 57cm.
Mamma mín er Elsa Jóhannsdóttir og pabbi minn Þórhallur Skúlason. MEYJAN 23. ágúst - 22. september Hér er kominn einstaklingur sem vill hafa hlutina í röð og reglu og er mjög íhaldssamur. Litla meyjan er að öllu jöfnu auðveld í umgengni, samviskusöm, dugleg og hlýðin en oft á tíðum alvörugefin. Skynsemi meyjarinnar kemur yfirleitt fljótt í ljós og ef kæruleysi er ríkjandi í kringum hana er ekki ólíklegt að hún fari að siða fólk til í kringum sig og hafa vit fyrir því. Hún byrjar snemma að hjálpa til á heimilinu og er oft mjög handlagin. Hún er yfirleitt ekki mikið gefin fyrir að draga athyglina að sér og lítil meyjubörn geta oft haft ofan af fyrir sér sjálf í langan tíma. Foreldrar þurfa að draga fram hið jákvæða því litlar meyjur hafa oft áhyggjur af því að hlutirnir séu ekki nægilega vel gerðir. Því þarf að hjálpa þeim að sjá bjartari hliðar tilverunnar og læra að trúa á eigin getu. Ekki er verra að ýta undir skopskyn þeirra. |
|
|
|
ELSKU BARN. Ást mín verður með þér hvenær sem þú þarfnast hennar. Ást mín verður með þér þegar gleðin ber þig ofurliði. Ást mín verður með þér þegar erfileikarnir eru að buga þig . Ást mín verður með þér þegar þú óttast lífið . Ást mín verður með þér í dag og alla daga. |
| Þú ert gestur nr. 27991 |