Október 2008
Jóhann Breki var á leið í háttinn...
Móðir kemur með náttföt og bleyju
JB: Mamma ég er stór strákur, ég nota ekki bleyju
M: Já en ástin mín, þú mátt þá ekki pissa í rúmið hennar mömmu (Hann passar ból föður síns)
JB: Ég pissa ekki í rúmið, typpið pissar í rúmið!!
M: Klæðir son í náttföt, les sögu og býður góða nótt
JB: Svífur inn í draumaheiminn
M: Læðist inn og setur bleyju á dreymandi soninn
Kl:7:15 vekjaraklukka hringir
M: Fer á fætur
JB: Kallar: Mamma, mamma typpið pissaði í bleyjuna þú verður að taka hana!!!
M: Kemur inn og segir syni að hann verði að segja typpinu að hætta að pissa á nóttunni...
JB: Sest í indjánastellingu horfir á sökudólginn og segir: Þú verður að hætta að pissa á nóttunni!!!