Við erum systkinin Rakel Sif og Viktor Smári og við erum lang sætust:)


Rakel Sif fæddist á FSA laugardaginn 08.10.05 klukkan 01:28.
Hún var rúmlega 18 merkur (4.6kg) og 54 cm. Rakel Sif fæddist með mikið brúnt hár og blá augu.
Hún var sko ekkert að flýta sér í heiminn og lét mömmu og pabba bíða í 10 daga eftir sér, það var svo notalegt að kúra í mallnum hennar mömmu.

Viktor Smári fæddist á FSA miðvikudaginn 13.02.08 klukkan 02:09. Hann var 16 og hálf mörk og 52 cm. Hann fæddist með mikið brúnt hár og blá augu. Prinsinn lét sko ekki bíða eftir sér kom á réttum tíma í heiminn.

Foreldrar okkar heita Katrín Ingólfsdóttir('85) og Davíð Már Sigurðsson('83) og búum við á Sauðárkróki.





Elsku mamma og pabbi!!

Ég er með svo litlar hendur
að ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni.

Fæturnir á mér eru svo stuttir,
farðu hægt svo að ég geti fylgt þer eftir.

Ekki slá á hendurnar á mér þegar ég snerti eitthvað fallegt,
eg skil það ekki

Horfðu á mig þegar ég er að tala við þig.
Þá veit ég að þú ert að hlusta.

Ég er með svo viðkvæmar tilfinningar,
ekki skamma mig, leyfðu mér að gera mistök,
án þess að mér finnist ég vitlaus.

Ekki búast við að myndin sem ég teikna,
eða rúmið sem ég bý um verði fullkomið,
elskaðu mig bara fyrir að reyna.

Mundu að ég er barn, ekki lítil fullorðin vera,
stundum skil ég ekki það sem þu segjir.

Ég elska þig svo mikið, elskaðu mig bara fyrir að vera ég.
Ekki fyrir það sem ég geri.



ELSKU BARN.

Ást mín verður með þér
hvenær sem þú þarfnast hennar.

Ást mín verður með þér
þegar gleðin ber þig ofurliði.

Ást mín verður með þér
þegar erfileikarnir eru að buga þig .

Ást mín verður með þér
þegar þú óttast lífið .

Ást mín verður með þér
í dag og alla daga.






Vogin

Börn í vogarmerkinu eru oft glaðleg og broshýr og eru oftar en ekki börnin sem fá bros frá hinum sem bíða á biðstofu læknisins.
Þau eru sjarmerandi og heilla aðra upp úr skónum. Félagslyndi einkennir vogina frá fyrstu tíð og litla vogin elskar að hafa margt fólk í kringum sig.
Vogarbarn sem þarf að búa við einangrun getur orðið geðstirt, innhverft og óöruggt en þegar allt leikur í lyndi er það opið og hresst. Vogin á mjög erfitt með að gera upp hug sinn og virðist oft hafa lítinn viljastyrk.
Þess vegna er mikilvægt að foreldrar hjálpi voginni að rækta með sér sjálfstæði og ákveðni meðal annars með því að fela henni ákveðin verkefni sem reyna á ákvarðanatöku.
Líklegt er að Vogin spyrji álits og því er hægt að svara með því að spyrja: ?Hvað finnst þér?? Síðan þarf að gefa henni næði til að vega og meta hlutina áður en hún tekur ákvörðun. Vogin er listræn í eðli sínu og mikilvægt að hlúa að þeim eiginleikum og skapa henni aðstöðu til að þroska listræna hæfileika sína.





Kristel Eva

Eyþór og Katrín Sara

Ísak Júlíus

Fannar Ingi

Kristín Erla

Björgvin og Eysteinn Bessi
























Þú ert gestur nr. 39298