| Hæ, hæ, ég heiti Rakel Mirra Njálsdóttir | |
|
|
| Ég er yndisleg 4 ára prinsessa:) | |
|
Um mig:
Ég fæddist á Sjúkrahúsinu á Akranesi á þeim merkisdegi 10.
September 2005 klukkan 17.42. Ljósmóðirin sem tók á móti mér heiti Helga Höskuldsdóttir og hún var algjört æði. Ég var rosalega stór og kröftug stelpa, ég var hvorki meira né minna en 4325 gr og 55 cm. Ég var með blá augu og mikið dökkt hár. Ég var búin að láta bíða lengi eftir mér þannig að það voru allir alveg rosalega spenntir að fá að sjá mig. Mömmu og pabba fannst ég lang flottust og voru ekkert smá ánægð með mig, enda ekki við öðru að búast þar sem ég er yndisleg í alla staði:) Ég var skírð því fallega nafni Rakel Mirra þann 15. október 2005. Eðvarð Ingólfsson skírði mig og skírnin fór fram heima hjá ömmu minni og afa á Akranesi. Það komu margir gestir í skírnina mína, bæði vinir og ættingjar. Athöfnin var mjög falleg og það voru allir rosalega ánægði með nafnið mitt. Skírnavottar voru ömmur mínar. Mamma hélt á mér undir skírn og Elfa söng mjög fallega 3 lög. Ég fékk margt fallegt í skírnagjöf og það voru allir mjög ánægðir með daginn, ég var alveg eins og engill, svo stillt og góð. |
|
|
|
|
|
Annað:
Mamma mín heitir Sólveig og pabbi minn heitir Njáll Vikar. Þau eru bæði frá Akranesi, en núna eigum við heima í Reykjavík. Pabbi er að læra læknisfræði í HÍ og mamma er að læra félagsráðgjöf líka í HÍ. Ég er alveg rosalega rík stelpa því ég á stóra og góða fjölskyldu.
2ja ára: Ég er orðin rosalega stór og dugleg stelpa. Ég er orðin altalandi og ég hætti með bleyju fyrir 4 mánuðum (20 mánaða gömul). Ég er á leikskóla og mér finnst það þvílíkt gaman. Ég er komin í sér herbergi og sef þar allar nætur. Það skemmtilegasta sem ég geri er að leika mér í dúkkuleik og að vera á Akranesi hjá skyldmönnum mínum, reyndar segist ég alltaf eiga heima á Akranesi ef ég er spurð;) 3 ára: Nú er ég orðin 3 ára gömul og kann allt og get allt - að mínu mati allavega;) Ég er alveg rosalega skýr og dugleg stelpa og það er ætíð miklar pælingar í gangi um lífið og tilveruna. Ég er búin að læra að skrifa stafinn minn og er alltaf tilbúin að læra eitthvað nýtt og spennandi. Mér finnst ótrúlega gaman að syngja, leika við aðra krakka og ég er enn þá mjög mikið fyrir dúkkuleiki, get alveg gleymt mér í að gefa dúkkunum að borða, skipta á þeim og svæfa;) 4 ára: Nú er orðin hvorki meira né minna en 4 ára og ég er sko þvílíkt dugleg og klár stelpa. Mamma og pabbi eru alltaf jafn hissa á öllu sem ég veit og kann. Ég er að æfa sund með KR og mér finnst það æðislegt, ég er nánast orðin synd. Ég er líka að læra stafina á fullu og mun trúlega læra að lesa fljótlega. Mér finnst líka mjög gaman að spila fótbolta og gera hinar ýmsu leikfimisæfingar;) Ég er enn þá mjög dugleg að hugsa um dúkkurnar mínar og leik mér mikið með þær. Ég á líka fullt af góðum vinum sem mér finnst rosalega gaman að heimsækja og leika við;) Kvæði frá langömmu minni: Mirra litla, Mirra mín Mirran best af öllum, sólskinsbarn, sem ætíð skín skært, með gleðiköllum. Ekki vera feimin við að senda mömmu póst ef þið viljið fá lykilorðið;) Munið að skrifa í gestabókina |
|
| Þú ert gestur nr. 42892 |