Mars mánuður skollinn á og Strákurinn orðinn 8 ára. Hann fékk að halda afmæli fyrir tae kwon do hópinn sinn og heppnaðist það rosalega vel. Honum gekk vel á mótinu í Keflavík og fékk hann Bronsverðlaun fyrir 3 sætið í sínum flokki. Skólinn gengur vel og er hann búinn að taka miklum framförum í lestir undan farið og er hann farinn að lesa bækur á fullu hérna heima. Uppáhaldsbækurnar eru núna Skúli skelfi, kaftein ofurbrók og svo auðvita syrpan.
Það sem að liggur fyrir næstu vikurnar er að Ingimar Örn ætlar að skipta um herbergi við hana systur sína og fara í littla herbergið. Þá fær hann nýtt rúm ( sem á að vera svart og rautt) með stórri skúffu undir allt legódótið en það er það allra vinsælasta hjá piltinum og getur hann dundað sér endalaust við að setja saman hin ýmsu tæki og tól úr legókubbum.