Það er mikið að gerast hjá Hafdísi þessa dagana, hún er á leið í aðra aðgerð útaf eyrunum sínum. Svo fer henni svo mikið fram, hún er kominn með 4 framtennur í efrigóm og svo 4 í neðrigóm en einnig eru komnir upp jaxlar beggja meginn uppi. Hún er farinn að babla og babla og reynir að herma eftir þeim orðum sem maður segir við hana.
Hún er dálítil skellibjalla og er mjög duglega að tæta allt út úr öllum skápum þar sem að hún kemur, hún reynir að klifra upp á allt sem að hún kemst nálægt og ef að útidyrahurðin opnast þá er hún farinn út. og hleypur hér um götuna og reynir að banka uppá hjá nágrönnunum.
Það skemmtilegasta sem að hún gerir er að fá að horfa á söngvaborg í sjónvarpinu þá dillar hún sér og klappar með, það er eina sjónvarpsefnið sem að hún hefur áhuga á. Henni finnst líka alveg ofboðslega gaman að skoða bækur og getur setið og flett bókum fram og til baka. Að raða formuðum kubbum í réttu götin á kúlu er líka spennandi. Hún er ný búinn að uppgvöta dásemdir baðkarsins og vill núna fá að fara í baðið að busla á hverju kvöldi og þá er sko hamagangur.