|
|
Um mig:
Við erum bestustu bræðurnir þeir Mikael Grétar og Marinó Hrafn.
Mikael Grétar stóri bróðir fæddist 31. Október 2005 klukkan 09:22. Hann var 15 merkur (3800 g) og 51 cm. Hann er mjög duglegur, flinkur og skemmtilegur strákur og að sjálfsögðu lang besti stóri bróðirinn! Marinó Hrafn litli bróðir fæddist 22. Júlí 2009 klukkan 17:50. Hann var tæpar 14 merkur (3405 g) og 49 cm. Hann er mjög vær, þroskaður og sætur lítill strákur og auðvitað lang besti litli bróðirinn í heiminum! Við erum litlir sérvisku púkar en við þurftum að láta hafa svolítið fyrir okkur þegar við vorum að koma í heiminn. Stóri bróðir sat bara sem fastast og þurfti því að skera mömmuna en litli bróðir var tekinn með sogklukku. Mamma okkar heitir Rakel og pabbi Fannar Geir og þau elska okkur alveg ofboðslega mikið enda erum við fallegastir og bestir....það segir mamma allavega :) Svo eigum við líka fullt af æðislegum frænkum og frændum sem spilla okkur eins mikið og þau geta....! Og ekki má gleyma ömmum okkar og öfum sem eru lang best! Við eigum heima á Selfossi.
Adam Freyr, Patrekur Þór og Áslaug Hulda Máría Líney |
|
|
|
Sæt saga!!
Gömul þjóðsaga segir frá barni sem var við það að fæðast. Barnið snýr sér að Guði og segir:
Mér er sagt að ég verði sendur á jörðina á morgun, en hvernig get ég lifað eins lítill og ósjálfbjarga sem ég er ? Ég hef valið engil fyrir þig úr hópi engla og hann bíður eftir þér. Þessi engill mun sjá um þig. En segðu mér, hérna á himninum geri ég ekkert annað en að syngja og brosa og það er nóg til þess að vera hamingjusamur. Engillinn þinn kemur til með að syngja fyrir þig, hann brosir til þín alla daga og þú verður umlukinn ást hans og þannig verðurðu hamingjusamur. En hvernig get ég skilið þegar fólkið talar við mig þar sem ég þekki ekki tungumálið sem mennirnir tala ? Engillinn þinn segir falleg orð við þig, fallegustu orð sem þú hefur nokkur tíma heyrt og með mikilli þolinmæði og kærleik kennir hann þér að tala. En hvað geri ég ef ég vil tala við þig ? Þá setur engillinn þinn hendurnar þínar saman og kennir þér að biðja. Ég hef heyrt að á jörðinni séu til vondir menn. Hver getur varið mig ? Engillinn þinn mun verja þig, þó svo það kosti hann lífið. En ég verð alltaf sorgmæddur því ég sé þig ekki oftar? Engillinn þinn á eftir að segja þér frá mér og vísa þér veginn í áttina til mín, en þó mun ég alltaf vera við hlið þér. Á þessu andartaki færðist ró yfir himininn og guðdómlegar raddir heyrðust og barnið sagði: Kæri Herra, þar sem ég er að fara segðu mér, hvað heitir engillinn minn ? Nafn hans skiptir ekki máli, þú kallar hann bara ,,Mömmu" |
| Þú ert gestur nr. 13078 |