Hæj hæj ég heiti Heiða Lára Bjarnadóttir og er fædd 16 mars árið 2006. Mamma mín heitir Anna Greta og Pabbi minn heitir Bjarni Jóhannesson, ég er fyrsta barnið þeirra ;)
Heiða
Nafn þetta er stytting á nöfnum sem enda á "-heiður" og merkir björt, - skær.
Lára
Nafn þetta kemur frá latneska nafninu "Laurentia" sem merkir sú sem ber lárviðarkrans.
Hið dæmigerða fiskabarn er yfirleitt hæfileikaríkt og vel gefið en viðkvæmt og ekki ólíklegt að það missi stjórn á tilfinningum sínum og bresti í grát af engri sjáanlegri ástæðu. Fiskar eru gjarnir á að fórna sér fyrir aðra. Mikilvægt er að fara varlega að fiskunum og varast að særa tilfinningar þeirra með vanhugsuðum orðum. Fiskar eru mjög skapandi og þeir geta skapað sinn eigin heim þar sem þeir finna til öryggis þegar hinn harði heimur reynist þeim ofviða þá flýja þeir inn í sinn eigin. Því er mikilvægt að hvetja litla fiskinn til að koma út úr skel sinni og takast á við lífið, hvetja hann til að segja skoðun sína hreint út. Foreldrar ættu einnig að hlúa að listrænum hæfileikum barnsins ef þeir koma fram. Fiskurinn er í eðli sínu vingjarnlegur og skilningsríkur en jafnframt umburðarlyndur. Hann á t.d. erfitt með að trúa nokkru misjöfnu um aðra og er því alltaf jákvæður í fyrstu gagnvart ókunnugum.
MAMMA ER KONAN
Sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda. Þegar maður eldist og ætti kannski að geta hugsað meira um sig sjálfur, til dæmis að vera í hreinum fötum og laga til í herberginu sínu, leyfir mamma manni það ekki því hún er vön að hugsa svo vel
um barnið sitt. Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda, þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til.
Takk fyrir að vera mamma mín.
PABBI ER MAÐURINN
Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður. En það tekur hann bara nokkra daga að komast niður á jörðina aftur. Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað sofið alla nóttina og kúkað í klósett eins og annað fólk. Samt veit hann allt. Svo þegar maður verður aðeins eldri og það er hægt að fara að leika við mann og kenna manni ýmislegt finnst honum rosa gaman. Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar á þarf að halda.
Takk fyrir að vera pabbi minn.