Við bræðurnir heitum Unnar karl og Hilmar Logi. Velkomin á síðuna okkar


Unnar Karl fæddist 16 ágúst á fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Hann var 14 merkur og 51 cm. Hilmar Logi fæddist 9 september á fjórðungsskjúkrahúsinu á Akureyri. Hann var 16 merkur og 52 cm. Foreldrarnir eru Bylgja Dröfn og Bryngeir Daði. litla fjölskyldan býr á Ullartanga 9 í Fellabæ.








LJÓNIÐ 22 JÚLÍ-23 ÁGÚST

Ljónið er ákveðið og stjórnsamt, en einnig opið, hlýtt og einlægt í skapi. Það er í eðli sínu lifandi og hefur líka þörf fyrir að vera áberandi og í miðju umhverfi sínu. Það fer því stundum mikið fyrir því. Þegar það er ánægt, geislar af því gleði, en það sýnir einnig óánægju og vanlíðan og á til að verða þungt. Ljónið hefur ákveðnar skoðanir og telur sig oftast vita hvað sé rétt og hvað er rangt. Það er lítið fyrir að hlusta á aðra eða slá af sannfæringu sinni. Hið dæmigerða ljón er orkumikið, og hefur getu til að hrinda stórum áformum í framkvæmd, en á milli vill það slappa af og njóta lífsins. Verkefni ljónsins verða vera lifandi, skemmtileg og skapandi. Það verður að leggja sitt persónulega mark á viðfangsefni sín, annars verður það orkulítið og áhugalaust. Ljónið er stolt og gjafmilt, laðast aðð því sem er glæsilegt, litríkt og stórt í sniðum. það er fast fyrir, traust og tryggilynt.

MEYJAN 23. ÁGÚST - 22. SEPTEMBER

Hér er kominn einstaklingur sem vill hafa hlutina í röð og reglu og er mjög íhaldssamur. Litla meyjan er að öllu jöfnu auðveld í umgengni, samviskusöm, dugleg og hlýðin en oft á tíðum alvörugefin. Skynsemi meyjarinnar kemur yfirleitt fljótt í ljós og ef kæruleysi er ríkjandi í kringum hana er ekki ólíklegt að hún fari að siða fólk til í kringum sig og hafa vit fyrir því. Hún byrjar snemma að hjálpa til á heimilinu og er oft mjög handlagin. Hún er yfirleitt ekki mikið gefin fyrir að draga athyglina að sér og lítil meyjubörn geta oft haft ofan af fyrir sér sjálf í langan tíma. Foreldrar þurfa að draga fram hið jákvæða því litlar meyjur hafa oft áhyggjur af því að hlutirnir séu ekki nægilega vel gerðir. Því þarf að hjálpa þeim að sjá bjartari hliðar tilverunnar og læra að trúa á eigin getu. Ekki er verra að ýta undir skopskyn þeirra.





LJÓNIÐ:

Glæsilegur
Skapandi
Kærulaus
Þver
Skipandi
Sterkur
Ásthneigður
Rómantískur
Hégómlegur













Þú ert gestur nr. 10025