Létt og nett - den danske :)


Uppskriftir úr ddv

Jarðaberjakaka (6 stykki)
Botn:
120 g gróftrifinn kúrbítur
45 g undanrennuduft
45 g hveiti
1 1/2 tsk lyftiduft
1 1/2 tsk vanilluessens
15 dropar möndluessens
ca. 1/2 - 1 tsk SØD eftir smekk
ef til vill. 1-2 tsk vatn

Krem:
300 g sýrður rjómi 10%
240 g létt ab, eða létt-súrmjólk
korn úr 1 vanillustöng
1 1/2 - 2 tsk frískpressaður limesafi (ca. 1/2 lime)
ca. 1-2 tsk SØD - eftir smekk
4 blöð matarlím
150 g frosin (eða fersk) jarðaber
ca. 1/2 - 3/4 dl vatn
2 blöð matarlím
SØD eftir smekk
300 g fersk jarðaber

Taktu mjólkurvörurnar úr ískápnum, þær mega ekki vera of kaldar þegar þær verða notaðar.
Skolaðu fersku jarðaberin og taktu blöðin af. Settu þau til hliðar, þar til þau verða notuð.

Taktu hýðið af kúrbítnum og fjarlægið kjarna og hýði áður en það er rifið gróft ? vigtaðu 120g af rifnum kúrbít. Afgangurinn af innihaldinu í deigið blandast saman, hrærið það vel þar til kúrbíturinn gefur af sér vökva. Setjið 1-2 tsk kalt vatn ef þörf þykir.
Setjið deigið í hringform eða kringlótt silikonform (ca 20cm þvermál) Notist hringform er gott að setja bökunarpappír í botninn. Setjið formið í miðjan ofn 175°C í 25-30 min.   Látið botninn kólna svolítið áður en hann er tekinn úr forminu og setjið botninn svo undir þungt skurðarbretti. Þvoið formið, það notið þið meira.
Settu frosnu jarðaberin í lítin pott ásamt vatninu og látið það sjóða í ca. 2 mínútur. Setjið til hliðar og látið kólna.   Leggið 6 matarlímsblöð í bleyti í kalt vatn.
Hrærið sýrða rjómanum og ab/súrmjólk saman og smakkið kremið til með limesafa, SØD og vanillu.
Pressið vökvann úr 4 matarlímsblöðum og bræðið í vatnsbaði eða í nokkrar sek í örbylgjuofni.   Látið matarlímið kólna aðeins. Hrærið tsk af jógúrtblöndunni saman við matarlímið, áður en matarlíminu er helt hægt út í jógúrtblönduna.Hrærið kröftuglega í með píski þegar matarlíminu er helt útí. Það er mikilvægt að matarlímið sé ekki of heitt og að jógúrtin sé ekki of köld, þegar þetta blandast saman, annars er hætt við að matarlímið hlaupi í kekki.
Sigtið vökvann frá jarðaberjunum og geymið. Stappið berin og smakkið til með smá SØD.
Leggið kældan botninn aftur í formið. Dreifið jarðaberjastöppunni yfir botninn. Síðan kemur kremið. Látið kremið stífna aðeins áður en fersk jarðaber eru sett ofan á kökuna.
Smakkið jarðaberjasafann til með smá SØD og hitið aftur upp. Bræddu 2 matarlímsblöð í safanum. Látið safann kólna aðeins áður en honum er helt yfir jarðaberin á kökunni.
Kælið kökuna í lámark 2 tíma, áður en hún á að borðast.
Gjarnan má búa kökuna til mörgum tímum áður og jafnvel daginn áður, þá verður hún ennþá betri.


Rommbomba
150g melóna
1/2 banani
Skorið niður í stóra skál
125ml fjörmjólk
10g rommbúðingsduft frá Odeker
sætuefni eftir smekk
Blandað saman í búðing og sett svo ofan á ávextina.
Þar ofan á kemur svo 2dl létt vanillujógúrt.

Súkkulaðikrem
30g klípa (hægt að setja minna ef lítið er eftir af fituskammti dagsins)
10g 100% kakó (setja 5g ef fituskammtur er minni)
Sætuefni eftir smekk
Rom- og rjómaessens (ca. hálf pípa)
Blandað saman og þynnt út með vatni og jafnvel er hægt að nota smá af vanillujógúrt eða annarri mjólkurvöru, þá verður kremið meira rjómasúkkulaðilegt.
Súkkulaðið sett ofan á allt hitt og skálinni skutlað í frysti í 1-2 tíma, njótið með góðum kaffibolla. :)



Súkkulaðikaka
12tsk léttmajo
4 egg
100g gróft rifnar gulrætur
1 fínt sneitt epli
80g klipptar sveskjur
Ca 3tsk fjótandi sætuefni
4tsk vanillukorn
80g undanrennuduft
2tsk kanill
ca 8tsk 100% kakó
2tsk lyftiduft
5tsk hveiti

Rifnar gulrætur, klipptar sveskjur og fínt sneitt epli er blandað saman við rauðurnar. Majónes, sætuefni og vanillukorn sett út í.
Allt nema eggjahvíturnar er síðan blandað saman við. Hvíturnar eru stífþeyttar og svo blandað saman við deigið.
Bakast í litlu formi í ca 60mín við 180°C.


Gerbollur
1/4dl volgt vatn
5g ger
1 tsk undanrennuduft
35g hveiti
15g majo
fljótandi sætuefni

Krem:
1tsk búðingsduft (odeker)
1/2dl fjörmjólk
fljótandi sætuefni
blandað saman og hitað

Gerið hrært í volga vatninu og rest bætt saman við. Formað í bollu með holu í miðjunni. Kremið sett í holuna og svo sulta ofan á það. Inn í ofn í 15min á 200°C.


Jarðarberjakaka
Botn:
2 egg
30g létt majones
9tsk hveiti
3tsk lyftiduft
Stífþeytið hvíturnar. Blandið öllu hinu saman við rauðurnar. Svo er öllu blandað saman. Skipta í tvo hluta og setja hvorn hluta fyrir sig á bökunarpappír í 200° heitan ofn í ca 10 mín.

Fylling:
1 1/4 dl sýrður rjómi 10%
100g ber
3 tsk sykurlaus sulta

Í uppskriftinni var gert ráð fyrir að maður stappaði berin saman, blandaði sultunni svo við en hægt að sleppa því.
Hræra sultuna saman við sýrða rjómann og dreifa helmingnum á annan botnin og setja berin ofaná og svo seinni botnin og kremið og loks berin.

 


Kanilepli
1 epli
30g sykurlaus sulta
20g smyrja
1/2 tsk vanillukorn
1tsk kanill
smá sítrónusafi

Skrælið eplin og skerið í litla bita. Setja í eldfast mót ásamt sultunni og sítrónusafanum. Bakist við 200° í ca 15 mín.
Hrærið saman smyrju, kanil og vanillukornum og hellið yfir eplin þegar þau eru tekin úr ofninum.
125g sýrðurrjómi er hrærður og settur yfir eplin, stráið smá kanil yfir.
Þá má rífa smá appelsínubörk yfir - einstaklega gott.
Má sleppa sítrónusafa og vanillukornum


Nál í heystakki
300g grænmeti, hvítkál, gulrætur, gúrka (mundu að gúrkan telur ekki)
1 30g brauðsneið ristuð vel og skorin í bita, blandað saman við grænmetið
2tsk olía úr fetaosti
2-3 bitar fetaostur
Svo er ekki úr vegi að krydda þetta með uppáhaldskryddinu þínu



Ávaxtaterta
30 g hveiti
30 g létt majones
Hrært saman og sett í lítið tertuform. Bakað við 180g í ca 10 mín.
Fyllið svo botnin með ávöxtum eða berjum, sem svara til eins ávaxtar, notið gjarnan kanil ofaná. Baka í 10 mín til viðbótar.
Bera fram með kremi:
125g sýrður rjómi 10%
Sætuefni og vanillukorn


Laugardagskvöldskaka
1 epli
100g ber
30g létt majones
20g hveiti
20g undanrennuduft
Ca 1/4 tsk ferskur engifer
Ca 10 dropar sætuefni
Skera epli í þunna báta og setja þau í lítið eldfast mót, setja bláber/ber ofaná. Búa til deig úr majo,hveiti, undanrennudufti, engifer og sætuefni. Setja deig í klöttum ofaná ávextina.180-200° í 20-30 mín.


Súr-sætt svín
Setja svínagúllas fyrir tvo í einn pott, krydda og setja lok á.
Í annan pott fer 600g af grænmeti (t.d. sveppum, kúrbít, rauðlauk), svissa það í 2tsk af olíu, bæti svo einni lítilli dós af ananasbitum í eigin safa útí ásamt sojasósu og læt það malla að vild. Krydda svo með því kryddi sem skap og hugmyndaflug leyfir.
Einfalt-þægilegt-fljótlegt og umfram allt gott!


Karrý-fiskur
600g ýsa
2dl súrmjólk
4msk léttmajó
2tsk karrý
100g sveppir

Fiskur settur í eldfast mót og sveppir þar ofaná. Sósa úr súrmjólk, majó og karrý sett ofaná. Bakað í miðjum ofni við 200° í 30-40 mín. Ef vill má sjóða hrísgrjón með og svo er ekki úr vegi fyrir þá sem vilja að setja ost ofaná, en DDV-konur verða þá að fá sér þennan fiskrétt í hádeginu.

 


Súkkusæla
Setja eina dós af léttvanillujógúrt í frysti 1 tíma áður en maður ætlar að fá sér þessa bombu. Síðan er að brytja eitt epli í eldfast mót og klippa niður 6 sveskjur í mótið líka. Blanda svo saman :

20g létt majo
15g undanrennuduft
15g hveiti
4tsk 100% kakó

Setja þetta ofaná í klumpum og inn í ofn í 15mín.....þetta er ekkert smá gott. Jafnvel að spá í að búa til deigið einhverntíman og baka það eitt og sér - þá verð ég komin með ,,smákökur"


Sveppapaté
200g fínt skornir sveppir
50g rifinn laukur
75g rifin ostur
1 egg
30g brauð (ristað og raspað)
50g sýrður rjómi 10%
1-2 hvítlauksrif
salt, pipar og annað krydd eftir smekk, hugmyndarflugi og fjölbreytileika kryddhillu heimilisins.
Allt hrært saman og setti í eldfast mót ínn í ofn 200° í 40mín
Í patéinu eru 250g grænmeti, brauðskammtur, egg, ostur og hluti af mjólkurskammtinum. Þannig að það þarf að bæta við 50g af grænmeti.



Kókóssúkkulaðikrem
10-15g smyrja
5g 100% kakó
Sætuefni eftir smekk
8-14dropar kókósessens
Hrært saman og þynnt með vatni eftir smekk. Gott að setja í kæli í smá tíma áður en það er borðað eða setja í frysti í litlum bitum og borða sem konfektbita eftir klukkutíma eða svo


Lakkrísís
2-3 mjólkurskammtar, ég blanda oftast einum af sýrðum rjóma og einum til tveimur af létt-vanillujógúrt.
10-15g DDV lakkrísduft
Blandað saman og fryst í 1-2 tíma, ágætt að hræra í af og til og þær sem eiga ísvél eru náttúrulega í góðum málum.


Bananaís
Taka einn banana og hluta í tvo parta.
Blanda saman 5g af 100% kakói, nokkrum dropum af sætuefni og vanilluessens, þynna út með vatni. Setja tannstöngul eða spítu í bananan, bera kremið á bananan og setja svo á bökunarpappír og inn í frysti í 1-2 tíma.



Kjúklingur í kók
170g kjúkling
1dl tómatsósa
1dl diet kók
rifinn engifer
pipar
tabasco
blanda þessu öllu saman og setja útá kjúllan og inn í ofn í 30 mín.


Bóndalax (Fyrir 6)
750g laxaflak
1 græn paprikka
1 rauð paprikka
1 chilipipar
1 rauðlaukur
Brokkoli (meðal stórt stykki)
hvítlaukur eftir smekk
1 fiskteningur

Fræhreinsa papriku og chilipipar. Setja allt nema fiskinn í matvinnsluvél og mauka. Setja laxaflakið á álpappír og smyrja hluta af grænmetisblöndunni ofan á. Baka við 170°C í 15-20 mín, fer eftir þykkt flaksins. Berið fram með afganganum af grænmetismaukinu, kartöflum og salati.


Hveitilausu kökurnar
2 egg
1/2dl undanrenna
5g lyftiduft
1tsk sætuefni
smá af vanillu- og möndluessens.
Öllu blandað saman og sett í form.

Ofan á krem úr:
Smá af undanrennu
1/2tsk neskaffi
1tsk kakó
Sætuefni
Þynna svo með vatni í rétta þykkt og setja ofná góð


Jarðaberjaæði
250ml fjörmjólk
20g búðingsduft (romm)
sætuefni eftir smekk
Blandað saman, hitað þar til það er nokkuð þykkt.
Sett í skál og 62g sýrður rjómi blandað saman við.
150g jarðaber sett þar ofan á (eða annar ávöxtur/ávextir)

Svo er búin til súkkulaðisósa úr
5-10g 100% kakó
15-30g klípa
sætu- og bragðefni eftir smekk
Þynnt með vatni í mátulega þykkt.
Sett ofaná jarðaberin og svo í frysti í 1/2-1klst

 


Ostakaka
100g létt smurostur
50g skyr
60g sýrður rjómi
Sætuefni og rommbragðefni eftir smekk.

Hrært saman, notið gjarnan töfrasprota. Ristið tvær brauðsneiðar vel og myljið 30g af þeim niður í skál. Setjið ostamassann yfir og skreytið með sultu. Svo væri ekki ekki galið að sjóða 150g af jarðaberjum eða 100g af hindberjum í massa og setja ofan á ostamassann. Svo er ekki galið að setja þetta í frysti í klukkutíma eða svo, gæti líka verið sniðugt að rífa smá af sítrónuberki útí ostamassann til þess að fá meira frískt bragð.


Eplabaka
1 epli í sneiðar
2 tsk plómumarmelaði eða 2 tsk sykurlaus sulta
kanill

Deig:
15 gr majónes
15 gr hveiti
10 gr undanrennuduft
125 gr sýrður rjómi 10%
kanill

Setjið eplið í lítið eldfast mót, dreyfið marmelaðinu yfir eplið og stráið kanil yfir.
Blandið majónesi, hveiti og undanrennudufti og stráið yfir eplin Bakið við 200° í ca 15 mín.
Berið fram með köldum sýrðum rjómanum Stráið smá kanil ofan á sýrða rjómann.


Winnies, súkkulaðistykki
15g DDV kakó eða VALHRONA
smá fjörmjólk
sætuefni
Mismunandi bragðefni t.d. vanilla, romm, piparmynta/kókósensens.
1). Hræra kakó og mjólk þar til það verður að mjúku kremi, setja litla mjólk í einu.
2). Smá sætuefni
3). Skipta í 2 jafna hluta og setja t.d. piparmyntusessens í annan hlutann og romm í hinn.
4). Setja í eggjabakka úr plasti fyrir 8 egg verður þá til 4 af hverri tegund.
5). Setja bakkann í frysti í ca. klukkutima
Mikilvægt að nota ekta kakó.



Laxapaté
120g lax
3 mtsk dill
1-2 tsk hveiti
sítrónusafi
salt og sitrónupipar
blanda og baka í eldföstu móti í 30 mín við 180°C.


Ömmukaka
Deig:
2 eggarauður
30g létt majónes
20g undanrennuduft
30g hveiti
1 tsk sætuefni
vanilludropar
ca ½ tsk möndludropar
2 tsk lyftiduft
2 eggahvitur
125g eplamauk
smá vanilla,vatn, sitrónusafi, sætuefni

Eplamauk
1 epli skorið smátt og sjóða það meyrt með smá vanillukornum, sitrónusafa og vatni.
Deigið hrært saman sett í form bakað svo í ca 20 min við 180°C. Eplamaukið er lagt ofaná kökuna. Þeyta eggahvitunar stifar, smá sætuefni í og lagt ofaná eplamaukið. Baka áfram í ca 10 min þangað til að marengsinn er orðinn gylltur. Passa að ekki baka of lengi.


Sveitabrauð
200g rúgmjöl
350g sigtmel (?)
120g 5-kornablanda
3 msk olia
3 dl jógurt (hreint) eða AB-mjólk með perum
1 dl volgt vatn
50g þurrger
gróft salt


Kjarnabrauð
50g þurrger
5 dl létt súrmjólk
3 mtsk olia
2 tsk gróft salt
650g 4kornamjöl, má nota venjulegt hveiti og blanda 120-150g af 5 kornablöndu við hveitið.
Má setja oregano, hörfræ eða hvað sem er fyrir 5 kornablandan.
Láta hefast í ca 45 min hnoða aftur, svo forma í brauð.


Pönnukökur
2 ½ dl súrmjólk
1 tsk lyftiduft
2 egg
60 g hveiti = 4 daga skammt
45g undanrennuduft
30g létt majónes
1 hádegisskammtur=2 egg
T.d. hægt er að fylla pönnukökunar með grænni fyllingu og borða með sultu og sitrónu/vanillukremi.


Græn fylling:
50g laukur
150g hvitkál í finum ræmum
100g baunaspirur
50g rifnar gulrætur
steikja grænmetið í sójasósu og setja þetta svo í pönnukökunar t.d. legga þær í eldfast fat og baka þær aftur þannig að þær verði girnilegar og stökkar.