![]() |
| Ég er leikskólastelpan Þóranna Vala :) |
|
|
Ég er lítil prinsessa sem heitir því fallega nafni Þóranna Vala, ég er skýrð í höfuðið á báðum ömmum mínum. Ég kom í heiminn þann 05.10.2005 klukkan 21:10 á Landspítalanum í Reykjavík. Ég var 3655 gr. og 53 cm. alveg glæsileg stelpa með mikið dökkt hár, slétt og fín. Mér gekk vel að koma í heiminn en þurfti aðeins að stríða mömmu og pabba og vildi ekki festa mig í grindinni, en með smá aðstoð frá fæðingalækninum á Lansanum gekk allt að óskum. Svo á ég foreldra, ömmur, afa, frænkur og frændur sem elska mig alveg rosalega mikið og ég líka þau. Mamma hefur nú læst albúminu mínu en verið alveg ófeimin við að spyrja um lykilorðið. Endilega kvittið í gestabókina, okkur finnst svo gaman að fá kveðju :)
Til þín elsku Þóranna Vala Áður en þú varst til þráðum við þig. Áður en þú komst í heiminn elskuðum við þig. Áður en þú hafðir lifað eina stund hefðum við fúslega dáið fyrir þig. Þú ert kraftaverk lífsins Takk fyrir að vera til |
|
|
ELSKU MAMMA OG PABBI... Ég er með svo litlar hendur,ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni. Fæturnir á mér eru svo stuttir,farðu hægar svo ég geti fylgt þér. Ekki slá á hendurnar mínar þegar ég snerti eitthvað fallegt,ég skil það ekki. Horfðu á mig þegar ég er að tala við þig,þá veit ég að þú ert að hlusta. Ég hef viðkvæmar tilfinningar,ekki vera alltaf að skamma mig. Leyfðu mér að gera eitthvað vitlaust án þess að þér finnist ég vitlaus. Ekki búast við því að myndin sem ég teikna eða rúmið sem ég bý um sé fullkomið. Elskaðu mig bara fyrir að reyna.
23. september - 23. október Börn í vogarmerkinu eru oft glaðleg og broshýr og eru oftar en ekki börnin sem fá bros frá hinum sem bíða á biðstofu læknisins. Þau eru sjarmerandi og heilla aðra upp úr skónum. Félagslyndi einkennir vogina frá fyrstu tíð og litla vogin elskar að hafa margt fólk í kringum sig. Vogarbarn sem þarf að búa við einangrun getur orðið geðstirt, innhverft og óöruggt en þegar allt leikur í lyndi er það opið og hresst. Vogin á mjög erfitt með að gera upp hug sinn og virðist oft hafa lítinn viljastyrk. Þess vegna er mikilvægt að foreldrar hjálpi voginni að rækta með sér sjálfstæði og ákveðni meðal annars með því að fela henni ákveðin verkefni sem reyna á ákvarðanatöku. Líklegt er að Vogin spyrji álits og því er hægt að svara með því að spyrja: ?Hvað finnst þér?? Síðan þarf að gefa henni næði til að vega og meta hlutina áður en hún tekur ákvörðun. Vogin er listræn í eðli sínu og mikilvægt að hlúa að þeim eiginleikum og skapa henni aðstöðu til að þroska listræna hæfileika sína.
MAMMA ER KONAN.... Sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda. Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda. Þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til. Mamma er besta kona í heimi.
PABBI ER MAÐURINN.... Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður en það tekur hann bara nokkra daga að komast niður á jörðina aftur. Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað sofið alla nóttina og kúkað í klósett eins og annað fólk. Samt veit hann allt !! Svo þegar maður verður aðeins eldri og þá er hægt að fara að leika við mann og kenna manni ýmislegt þá finnst honum rosa gaman. Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar á þarf að halda. Pabbi er besti maður í heimi.
Adam Freyr stóri frændi Eyrún Bríet vinkona mín Jón Finnur frændi minn Dagur Nökkvi Ísak Leó frændi Sóley Ásta frænka mín
|
| Þú ert gestur nr. 13618 |