Vildi bara láta vita að við erum búin að gera myndband til minningar um hann sindrann okkar og er það á youtube undir,minning um sindra dag garðarsson.
9.mánuðir á morgun síðan hetjan okkar kvaddi þennann heim,ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða.En þessi 9.mánuðir eru búnir að vera ansi skrítnir og er maður ennþá að læra að lifa uppá nítt en lífið snerist svo mikið um hann og svo bara var hann svo sterkur karatter,húmorinn hans og ærðuleysið sem hann síndi í öllu þessu stríði,hvað hann var alltaf jákvæður og sá alltaf eitthvað jákvætt við hlutina þótt allt væri á móti honum.Bara það að vinna olsen olsen þá var hann svo heppinn, að fá kökubita þá var hann svo heppinn líka,já það þurfti ekki mikið til að gleðja hann.
Þann 28.febrúar hefði hann orðið 15.ára og eyddum við deginum uppá barnaspítala en við söfnuðum fyrir 42."flatskjá og dvd tæki á gáfum á barnadeildina og svo fengum við Skoppu og Skrítlu til að koma og skemmta börnunum og fengum við líka Íþróttaáfinn og Sollu stirðu til að koma og heppnaðist dagurinn bara mjög vel.En hann hélt mikið upp á Skoppu og Skrítlu enda voru þær miklar vinkonur hans og hann hélt lika mikið uppá Latabæ.
Kominn tími á smá fréttir af okkur.Þá eru fyrstu jólin að líða sitt skeið án Sindrans okkar,ansi skrítin jól og erfið en allt hafðist þetta nú samt en erfitt.Fyrri hlutin af Desember var nú samt ekki svo erfiður nóg að gera til að dreifa huganum, tókum t.d hestana inn 11.des en við erum með 3.hesta í vetur og erum við búinn að kaupa hlut í hesthúsi svo við erum laus við það að þurfa að leigja pláss.En það er samt tómlegt að hafa ekki hana Iðunni okkar en það var merin hans Sindra en hún dó nokkrum dögum eftir að hann dó.En við keiptum í sumar aðra meri sem er 7.vetra en það þarf að þjálfa hana aðeins upp.Dagarnir liðu svo við jólaundirbúning,vinnu og að sinna hestunum.
Þann 17.des lést svo lítil vinkona okkar sem var héðan af skaganum,en hún var bara 3.ára,hún og Sindri voru oft saman í Rjóðrinu.Þá brotnaði maður svoldið niður,okkur langaði að fara í jarðarförina en treistum okkur bara ekki til þess en við erum viss um það að Sindrinn okkar hefur tekið vel á móti henni og passi hana vel, eins og hann gerði í Rjóðrinu.Við getum allavega huggað okkur við það að þau þurfa ekki að þjást lengur og eru með fallegestu englunum í himnaríki.
Svo má ekki gleima því að krakkarnir á sérdeildinni eða þau sem voru mest með honum,bjuggu til voða fallegt ker undir útikerti,svo fóru þau ásamt konunum í sérdeildinni og okkur að leiðinu með kerið og sungu nokkur jólalög bara yndislegt og svo fóru þau líka með starfsfólkinu í dagvistinni með stand undir kerti og var sett mynd af honum ásamt textanum sól sól skín á mig með standinum en það var eitt af uppáhalds lögunum hans.Þótti okkur auðvitað voða vænt um þetta.
Við settum svo mót af hjarta sem við settum steina í og svo settu jólasveinarnir alltaf eina jólastittu fram að jólum en það var alltaf mikill spenningur hjá honum hvað hann fengi nú í skóinn og líka hvenær ætti að setja skóinn út í glugga.
jæja hef þetta ekki lengra núna en ætla að setja inn myndir af fallega leiðinu hans, óska ykkur öllum gleðlegra jóla og farsældar á nýju ári þó að seint sé.
Jæja þá gerir maður enn eina tilraunina til að skrifa en er búin að setjast oft við tölvuna og ætla skrifa á síðuna hans en hef ekki komið neinu frá mér.
En ef ég byrja bara frá því ég skrifaði seinast,þá er þetta ein erfiðasta ákvörðun sem við höfum þurft að taka en við gátum ekki horft á hann þjást vitandi það að það væri enginn lækning til og svo var Sindrinn okkar eins og við þekktum hann horfinn.Þegar við sögðum honum frá því að enn eitt æxlið væri komið í höfuðið á honum og ekkert hægt að gera,þá var eins og eitthvað sloknaði hjá honum og var hann voða sár að meiga ekki fara í aðra geislameðferð og spurði oft afhverju hann mætti ekki fara í hana aftur.
En við vitum samt að það var allt gert sem hægt var fyrir hann á Barnaspítalanum og var gott fólk sem sinti honum þarna um morgunin og svo um hálf átta kom á vaktina læknir úr krabbameinsteiminu sem við þekkjum vel og svo um 8:00 mættu svo Ragnar innkyrtlasérfræðingur og Gylfi hjartalæknirinn hans og var mér mjög létt að sjá þá og voru þeir hjá honum þangað til yfirlauk.Ég var hjá honum alla nóttina og auðvitað þegar hann kvaddi,hélt í hendina hans,mátti ekki orðið mikið koma við hann en öll snerting virtist kvelja hann mikið.Tek það líka fram að það var auðvitað allt gert í Rjóðrinu fyrir hann þessa nótt og auðvitað seinustu vikurnar sem hann var þar, bara yndislegt starfsfólk sem vinnur þar og eigum við svo margt að þakka öllu þessu fólki að hafa hugsað svona vel um hetjuna okkar öll þessi ár.
En eftir að hann kvaddi var mér auðvitað boðið að tala við prestinn og þáði ég það enda bara yndislegur maður þar á ferð og buinn að fylgja okkur lengi,svo kom pabbi hans rétt yfir 9:30 og kom þá aðstoðarpresturinn okkar hérna á skaganum en hún var stödd á spítalanum svo hún kom fljótt til okkar.En Eðvarð presturinn okkar var í sumarfríi og staddur út á spáni.
Jarðarförin gekk vel og erum við mjög sátt við allt í kringum hana enda reyndum við að gera hana eftir hans höfði.Við létum syngja í einsöng söknuð,lítill drengur og kveðja og svo voru allir beðnir að standa meðan kórinn söng jesús er besti vinur barnana og allir voru beðnir að syngja með en þetta vers var í miklu uppáhaldi hjá Sindra og söng hann þetta oft þegar hann var yngri.Svo söng kórinn snert hörpu mína,Í bljúgri bæn og svo Megi gæfan þig geyma.Við báðum svo konurnar í sérdeildinni að bera kistuna út í bíl og tóku þær auðvitað vel í það og bárum við svo ásamt fleirum í fjölskyldunni út í garði.Við höfðum svo erfiðsdrykkju á eftir og tók hún Dóra okkar,kennarinn hans hana alveg að sér en það voru margir úr skólanum sem bökuðu og hjálpuðu til við það.
Við höfum svo stofnað mynningarsjóð Sindra Dags og erum við búin að gefa Rjóðrinu hægindastól með lyftubúnaði og svo höfum við gefið sérdeildini 42"flatskjá og dvd tæki.Nr. á reikningnum er 552-14-601309 kt:111177-5709.
Hef þetta ekki lengra núna Guðleif
Lokksins kemur maður sér í það að skrifa.Þetta eru búnar að vera ósköp skrítnar seinustu vikurnar en það er svo tómlegt og manni fynnst maður alltaf eiga eftir að gera eitthvað,en umönunninn var orðinn svo mikil og líka bara þetta venjulega lyfjagjafir og að gefa næringu,þetta var alltaf á vissum tímum.
En seinustu vikurnar hans Sindra voru upp og niður,hann var þokkalega hress í byrjun júní og tókum við hann heim yfir eina nótt og fórum við með hann á skólaslitinn en hann hafði nú ekki úthald til að vera allann tímann en hann allvega hitta suma krakkana og kennarana sína.Svo fékk hann skemmtilega heimsókn í Rjóðrið í byrjun júní en hann Björgvin Frans leikari hafði samband við okkur , en hann kom til hans sumarið 2006 upp á spítala sem Benidikt búálfur en hafði haft fréttir af því hversu veikur hann væri orðinn og langaði til að heimsækja Sindra og kom hann aftur sem Benidikt búálfur og skemmti honum og krökkunum sem voru í Rjóðrinu þá öllum til mikillar gleði og var Sindri voða ánægður með þessa heimsókn og erum við alveg ofsalega þakklát Björgvini fyrir að hafa gefið sér tíma til að gleðja hann.En eins og ég sagði áðan þá voru seinustu vikurnar upp og niður.
Í annari vikuni ættluðum við að reyna að taka hann heim í 1-3 daga en hann fékk heiftarlegan niðurgang og sveppasíkingu svo ekkert varð úr því.Hann var settur á sveppalyf sem virkuðu nú fljótt á hann en hann var orðinn samt eitt sár á rassinum og leið auðvitað mjög illa út af því.Svo viku áður enn hann dó þá féll hann í natríum alveg niður í 124 sem er mjög lágt en hann var nú fljótur að ná því upp með réttri meðhöndlun var orðinn góður á tveimur dögum.Þann 20.júní var svo haldinn fundur með læknateiminu hans í Rjóðrinu en það var verið að undirbúa heimkomu en Rjóðrið var lokað í 3.vikur í júlí og átti hann að koma heim þann 30.júní.Svo var líka ákveðið að setja hann á morfínplástra en við töldum að hann væri með miklu meiri verki en hann vildi viðurkenna.En hann átti mjög erfitt með svefn þótt hann væri mikið búið að trappa sterana enda fyrstu nóttina sem hann var með plástur þá svaf hann alla nóttina.
Daginn eftir fundinn þá ákvað ég að sækja hann um morguninn og vera með hann heima um daginn og var hann kominn heim um hádegið og eiddi hann deginum heima en ég fór svo með hann í Rjóðrið aftur eftir kvöldmat.En við fórum með hann að heimsækja vini sína í Þorpinu en þar er dagvistin fyrir fatlaða nemendur og náði hann að hitta alla vini sína og var hann voða glaður með það.Á miðvikudaginn fór hann svo til tannlæknis en það þurfti að draga úr honum endajaxl sem var orðinn ónítur og gera við 4.tennur, þetta þurfti auðvitað að gera í svæfingu og var þetta gert í fossvoginum og gekk þetta allt vel nema hitinn fór aðeins upp á við og þegar við vorum kominn í Rjóðrið aftur var hann kominn með 39.stiga hita og var frekar órólegur það sem eftir var dagsins.Pabbi hans var hjá honum svo aðfarnótt fimmtudagsins hjá honum og svaf hann bara nokkuð vel þá nótt og vaknaði hitalaus og hress, hann fer svo frá honum rétt fyrir hádegið og kveður Sindri pabba sinn með því að kalla á hann,pabbi og svo þegar hann svaraði já sindri minn þá skríkti í mínum ekkert, þá héldum við að hann væri að koma til baka.Hann átti svo mjög góðan dag á fimmtudeginum ég reyndar komst ekki til hans fyrr en um 22:00 um kvöldið og var hann sofnaður og virtist líða vel.En svo var það um miðnætti að hitinn fer að rjúka upp og var hann kominn yfir 41.stigs hita um 1.leitið og fórum við með hann út á pall og náðum við honum niður í 40.7 fórum við svo með hann aftur í sólstofuna því honum var auðvitað orðið skítkalt,honum var auðvitað gefið hitalækkandi lyf en ekkert virkaði,önduninn var orðin mjög hröð og var hann eiginlega farinn að ofanda.Það var svo eitthvað um 3:00 minni mig að hitinn var kominn upp í 42.gráður og reindum við allt til að kæla hann vorum með viftu yfir honum kalda þvottapoka og skipptum ört um þá svo það var um 4:00 sem var talað við lækni þegar við sáum það að ekkert var að virka og eina sem hann ráðlagði var að gefa meiri hitalækkandi lyf sem voru ekkert að virka svo það var kallað á sjúkrabíl rétt fyrir 5 og var hann kominn niður á bráðamóttöku milli 5:30 og 6:00.Þar var honum gefin kaldur vökvi beint í æð til að reyna að kæla hann en það var ekkert að virka svo var honum gefnir sterar beint í æð þá virtist öndunin aðeins vera að róast en það var rétt fyrir 8:00 en svo var rétt fyrir 9:00 að púlsinn fór upp úr öllu valdi eða upp í 260 minnir mig mest og svo var þetta búið.Við vorum búinn að ákveða í samráði við lækninn hans að það yrði ekki reynt neinar lífgunartilraunir og hann fengi alla meðferð fram að öndunarvél.En hann var kominn á líknandi meðferð.
Þetta er örugglega ein sú erfiðasta ákvörðun sem við höfum þurft að taka en við vildum ekki þurfa að horfa á hann þurfa að gagna fyrir vélum og svo líka vitum við ekkert hvernig við hefðum fengið hann til baka þótt að það hefði tekist að ná honum til baka.Honum var líka búið að hraka mikið síðan um áramót og var orðinn bara skugginn af sjálfum sér.Allavega færðist mikil ró yfir mig þegar þetta var allt afstaðið þótt maður var auðvitað dofinn og frosinn þá þurfti hann ekki að þjást meir en hann hefur örugglega þjáðst miklu meira en hann vildi viðurkenna.
Jæja hef þetta ekki lengra núna en ég er búinn að setja inn nokkrar myndir og mun ég svo setja inn meira næstu daga kveðja Guðleif.
Gleymdi að setja klukkan hvað útförin væri en hún er KL:14:oo á morgun.
Útför Sindra Dags fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn 5.júlí.
Við tókum þá ákvörðun að opna reikning í minningu hans en hann tilheirði svo mörgum félögum og var á svo mörgum stöðum að við gátum ekki verið að velja einhvern 1-2.Okkur langar til að styrkja alla þá sem komu að hans umönnum.
Seinustu dagar eru búnir að vera mjög skrítnir og erfiðir og ekki bætti úr skák að merinn hans Sindra féll frá í gær líka.En hún hafði ekki náð sér eftir að hún kjálkabrotnaði og eftir að hún kom út átti hún erfitt með að bíta og svo komum við að henni út í skurði í hádeginum á mánudaginn og veiktist hún eftir það og kvaddi okkur í gær.Þeim hefur örugglega verið að ætlað að fara saman .En honum þótti alveg óskaplega vænt um hana og var hún alltaf voða góð við hann enda ekki hægt að hugsa sér betra hross fyrir Sindra.
Sindri Dagur er látinn
Hann Sindri okkar kvaddi okkur í gærmorgun eftir erfiða baráttu gafst líkami hans upp.Hann var búinn að vera að mestu í Rjóðrinu síðustu 5.vikur út af fótbrotinu og átti hann að losna við gifsið í dag.Á miðvikudaginn fór hann í tannaðgerð eða það voru fjarlægðar 2.tennur og gert við nokkrar í svæfingu en hann var búinn að bíða eftir þessu í nokkrar vikur.Það var byrjuð að myndast einhver síking og er auðvitað ekki vitað hvort það sé orsökinn þótt það sé líklegt.Hann var bara orðinn það veikur að hann hefur ekki þolað það en hann var búinn að kljást við mikinn niðurgang lengi og fékk svo slæma sveppasíkingu fyrir hálfum mánuði,líkami hans hefur bara verið búinn að fá nóg.
Mamma er nú engann veginn að standa sig en það er svo sem alveg búið að vera nóg að gera hjá okkur.Svo hún hefur smá afsökun,en ég sé alltaf um það sé nóg að gera og pabbi kanski sma líka núna hehe.En eigum við að byrja á byrjuninni.
Pabbi greindist með góðkynja æxli við hægri munnvatnskyrtilinn fljótlega eftir páska og fór hann í aðgerð til að fjarlæga það og var tekið líka 90% af munnvatnskyrtlinum fyrir tæpum 12.dögum og gekk það allt vel.En ég þurfti líka athygli gat ekki látið pabba hafa hana alla hehe svo fyrir 16 dögum þá fótbraut ég mig á hægri fætinum semsagt braut sköflunginn neðarlega og var líka smá brot í öklaliðnum og er áætlað að þetta taki 6.vikur að gróa og á ég þá eftir 4.vikur í gifsi.En það voru teknar myndir af fætinum fyrir viku síðan og voru litlar breitingar og frá fyrstu myndum svo þetta gæti tekið lengri tíma en vonandi ekki.En það sem skeði var að ég datt bara heima en jafnvægið er orðið mjög lélegt og ég er ekki sá þolinmóðasti,var búinn að kalla á mömmu að sinna mér en hún komst ekki alveg á mínútunni þá fór ég bara af stað sjálfur með þessum afleiðingum,en beinin eru frekar viðkvæm út af sterunum og er hættara á að brotna út af því hvað ég er búinn að vera lengi á þeim.
Ég var fyrstu 11.dagana á barnaspítalanum og fór svo í Rjóðrið og var ég svo núna um helgina á spítalanum af því að það var allt fullt í Rjóðrinu en umönnuninn er auðvita mjög mikil núna og pabbi að jafna sig eftir aðgerð og má ekki gera mikið svo ég verð mikið í Rjóðrinu og ef það er fullt þar þá er það spítalainn.En mamma og pabbi ætla kanski að reyna að taka mig heim yfir eina nótt á fimmtudaginn svo ég komist nú á skólaslitinn,hef ekki komist lengi í skólann.
Jæja hef þetta ekki lengra núna bless bless ykkar Sindri Dagur
Kominn tími á smá féttir.Ég er búinn að vera þokkalegur til heilsunar seinustu vikur alla vega ekki þurft að leggjast inn á spítala.Í apríl var sú ákvörðun tekinn að hætta alveg með sterana og er verið að trappa þá niður og er ég kominn niður í 1/2 töflu á dag,en aukaverkanirnar eru bara það miklar að mamma,pabbi og læknirinn minn voru sammála um að það þjónaði engum tilgangi að láta mig vera á þeim.Svo núna er allri meðferð hætt og er bara að láta mér líða eins vel og hægt er.Mér hefur hrakað þónokkuð síðan að það var byrjað að trappa sterana niður.Ég fer svo alltaf reglulega í Rjóðrið og er ég að fara þangað á morgun og verð þar yfir helgina.
Jæja hef þetta ekki lengra núna bless bless Sindri Dagur
Jæja þá skrifar mamma lokksins fyrir mig er nú engan veginn að standa sig í þessu.En það er nú margt búið að ske síðan hún skrifaði seinast.Ég fermdist 20.feb en mamma og pabbi tóku þá ákvörðun að flíta henni út af því hvað mér var búið að hraka svo ég fengi nú fermingardaginn minn.Ég stóð mig eins og hetja eins og venjulega en athöfnin var gerð í venjulegri messu og svaf ég hana að mestu af mér en fór nú samt upp að altarinu og sagði já hátt og skírt og svo í altarisgönguni þá tók ég við brauðinu og víninu eins og ekkert væri kom mörgum á óvart með því.Svo var veisla heima og var ég nú eiginlega alveg búinn á því þegar við vorum komin heim úr kirkjuni og svaf ég næstum veisluna af mér en fékk mér nú samt smá kökubita.Í fermingargjöf fékk ég sæng,kodda og rúmföt frá Dagný ömmu,mp4spilara frá konunum á sérdeildini og svo höfðu þær tekið söng og kveðju frá vinunum mínum á sérdeildini á cd disk,Bubba safndisk og svo fékk ég hægindastól sem er með lyftubúnaði frá mömmu,pabba og systkinum mínum og svo fékk ég tæpar 200.000 þúsund.Ég var allavega alveg alsæll með allt saman og daginn.Svo er ég búinn að eiga afmæli orðinn 14.ára ,ég á nú eftir að halda upp á það en það verður gert seinna mamma er ennþá að jafna sig eftir fermingarveisluna hehe, en veisluna ætluðum við að vera með í sal en vegna veikinda minna þá varð hún að vera heima og færra fólki boðið og var þetta allt ákveðið með viku fyrir vara svo það var alveg nóg að gera að þrífa og að skipuleggja, en við fengjum góða hjálp frá mörgum og erum við ynnilega þakklát fyrir það.
En heilsan á mér er búin að vera þokkaleg seinustu daga er orðinn svoldi hressari fór í skólann á mánudaginn og þriðjudaginn í tæpa 2.tíma en var nú reyndar alveg búinn á því eftir það,en ég var settur á sterana aftur og er ég að taka 4.töflur á dag eða 2.mg og er ég samt að sofa ágætlega á nóttuni þrátt fyrir sterana.Ég fór svo til hans Ólafs í gær og var tekin blóðprufa og kom hún mjög vel út.Svo á mánudaginn fer ég í Rjóðrið og verður þá fundur með mömmu,pabba og forstöðukonuni í Rjóðrinu og Ólafi lækninum mínum með framhadið og verður þá farið yfir veikindin á mér líka, hvað er eiginlega í gangi en það voru lítil svör sem okkur var veitt þegar hann var inni á spýtalanum.
Jæja þetta er orðið ágætt núna bless og góða nótt ykkar Sindri Dagur
p.s mamma er búin að setja inn myndir af ferminguni
jæja þá kemur maður sér lokksins í það að skrifa en seinasta vika er búin að vera bara mjög erfið svo maður hefur ekki alveg verið í stuði til að setjast niður við tölvuna að skrifa.En Sindri er búinn að vera inniliggjandi á barnaspítalanu síðan á seinasta miðvikudag og var hann þá orðinn hættulega hár í natríum en hann var kominn upp í 155 sem er frekar hátt og var það víst út af því að hann var orðinn frekar þurr,sem við erum ekki að skilja því hann fær flest allann vökva og næringu um sonduna en hann er orðinn fínn af því núna.En honum er búið að hraka mikið seinustu daga og bara eftir áramótin hefur honum farið mikið aftur.Hann á orðið mjög erfitt með að tjá sig og er orðið mikið rugl á honum t.d. er hann að tala við fólk sem er bara ekki á staðnum og á maður stundum erfitt með að ná sambandi við hann.Skrifa meira í kvöld en þarf að fara upp á spítala til prinsins. kveðja Guðleif
Ég fékk að fara heim í gær en það fannst ekki neitt úr sínunum sem voru tekin,svo það fanst enginn skíring á þessum niðurgangi hjá mér en ég var orðinn nokkuð góður á þriðjudaginn og átti ég að fá að fara heim á miðvikudaginn.En á þriðjudagskvöldið þá var ég kominn með síkingu í blóðið og er ég á síklalyfjum núna og gefur heimahjúkrunin þau í lyfjabrunninn einu sinni á dag í 10.daga.
Mamma er nú ekkert að standa sig allt of vel að skrifa fyrir mig.En hvað um það, ég er búinn að vera nokkuð hress allavega var ég voða hress í nóvember eftir að náðist að ná tökum á síkingunni sem var við sondu hnappinn og hef ég líka verið hitalaus síðan þá.Jólin voru bara fín hjá mér og það var byrjað að trappa niður sterana hjá mér í byrjun des og virtist það allt ganga vel og var ákveðið að minka þá ennþá meira núna eftir áramót.
En seinasta fimmtudag þá þurfti að leggja mig inn á barnaspítalann en ég var þá búinn að vera með mikinn niðurgang í nokkra daga og var ég bara orðinn mjög slappur gat varla talað neitt og átti erfitt með að labba og var bara hundslappur.Ég er búinn að vera í einangrun alla tímann en það hefur ekki fundist nein síking ennþá en það var tekið þriðja sínið úr hægðunum hjá mér í gær og það tekur 2-3 daga að fá út úr því.Ég hef fengið bara vökva í æð til að ég falli nú ekki í söltunum en blóðprufurnar komu samt fínt út á fimmtudaginn en það er enginn séns tekinn með mig út af ástandinu.Svo á laugardaginn fór ég að kvarta um mikinn hausverk og vildi nú bara fara í myndatöku strax en það var búið að fá tíma í segulómun núna 25.jan,ég átti voða erfitt með að skilja það að það væri ekki hægt að gera þetta strax.
Mamma má svo ekki gleyma því að það er búið að ákveða fermingardaginn minn og verð ég fermdur 27.feb þar að segja ef ég verð ekki veikur svo núna er bara að krossa fingur og vona það besta.
Hef þetta ekki lengra núna bless bless ykkar Sindri Dagur
Jæja þá hefur mamma sig lokksins í það að skrifa fyrir mig.Heilsan á mér er búinn að vera upp og niður seinustu vikur.Ég hef verið að fá hita oft alveg vel yfir 39 , en það hefur verið einn til tvo sólahringa í viku.Seinustu 1 og hálfa viku þá er ég búinn að vera með stanslaust hita og seinasta mánudag fór pabbi með mig á bráðamóttökuna með 39.8 stiga hita en það kom allt vel út úr blóðprufunum nema hvítu voru örlítið hækkuð en það er eðlilegt út af sterunum.En það fanst síking í kringum sonduna en það er búið að vera mjög leiðinlegt lengi þar í kring en það var búið að vera leka gröftur með tappanum og svo fyrir tæpum hálfum mánuði þegar mamma skipti um tappa þá vall bara út gröftur og MIKILL GRÖFTUR,ég átti svo tíma hjá honum Ólafi nokkrum dögum seinna og var hann ekkert að hafa miklar áhyggjur af þessu.En svo var tekið síni úr þessu og kom þá í ljós að það var bullandi síking þarna í kring og voru tvær bakteríur að grassera í þessu svo núna er ég kominn á síklalyf og á að vera á því í 10 daga.
Annars er ég frekar hress miðað við allt, mamma og pabbi fengu svo að vita í byrjun september hvað kom út úr segulómmyndunum sem voru teknar í ágúst,en það voru því miður ekki góðar fréttir sem við fengum en æxlið sem var geislað í heilastofninum og læknarnir voru með mestar áhyggjur af er næstum horfið en þá er bara komið annað æxli rétt hjá sem hitt var og er það 1 og hálfur cm að stærð og var líka þónokkur bjúgur þarna líka þess vegna varð ég svona veikur í ágúst.Það er engin meðferðar úræði fyrir mig lengur en ég má ekki fara í meiri geisla fékk hámark skamt að geislum á þetta svæði,það er ekki hægt að skera og lyfjameðferð er ekki í boði eftir veikindin 2006 en ég fékk vægustu krabbameinslyf sem eru í boði og ég þoldi þau ekki.Svo það er ekkert hægt að gera meira fyrir mig.Læknarnir hafa mestar áhyggjur af því að ég eigi eftir að lamast ef æxlið stækkar meira og er ég alltaf að versna hægra meginn.En ég get allavega ennþá gengið við göngugrindina mína en á það til að detta samt stundum þá gefa lappirnar sig bara.Ég er ennþá á sterunum og er að taka 1 og hálfa töflu en það þurfti að auka þá á föstudaginn seinasta en ég er farinn að kvarta meira um höfuðverki.Svo núna er bara tekinn einn dagur í einu.
Ég fór í Rjóðrið á föstudaginn og verð ég þar í viku.Jæja segi bara bless og góða nótt ykkar Sindri Dagur