![]() |
||
|
Um okkur:
við fæddumst báðir á sjúkrahúsi Akranes ingvi þór fæddist 22 mars 2000 kl 06.43 og var 2980 og 50 cm hann var með ljóst hár og blá augu og Hafðór blær fæddist 16 ágúst 2004 kl 09.03 og var 2910 og 48 cm og fæddist hann líka með ljósan koll og blá augu og ferlega sætir Ingvi er á leikskóla sem heitir teigasel og deilldin hans heitir hákot og Hafþór er heima og skemmtir mömmu allan daginn Mamma okkar heitir Sigurrós ingigerðardóttir og Pabbi heitir Albert ingi gunnarsson
|
||
|
|
||
Gömul þjóðsaga Segir frá barni sem var við það að fæðast. Barnið snýr sér að Guði og segir: Mér er sagt að ég verði sendur á jörðina á morgun, en hvernig get ég lifað eins lítill og ósjálfbjarga sem ég er? Ég hef valið engil fyrir þig úr hópi engla og hann bíður eftir þér. Þessi engill mun sjá um þig. En segðu mér, hérna á himnum geri ég ekkert annað en að syngja og brosa og það er nóg til þess að vera hamingjusamur? Engillinn þinn kemur til með að syngja fyrir þig, hann brosir til þín alla daga og þú verður umlukinn ást hans og þannig verður þú hamingjusamur. En hvernig get ég skilið þegar fólkið talar við mig þar sem ég þekki ekki tungumálið sem mennirnir tala? Engillinn þinn segir falleg orð við þig, fallegustu orð sem þú hefur nokkurn tímann heyrt og með mikilli þolinmæði og kærleik kennir hann þér að tala. En hvað geri ég ef ég vil tala við þig? Þá setur engillinn þinn hendurnar þínar saman og kennir þér að biðja. Ég hef heyrt að á jörðinni séu til vondir menn. Hver getur varið mig? Engillinn þinn mun verja þig, þó svo það kosti hann lífið. En ég verð alltaf sorgmæddur því ég sé þig ekki oftar? Engillinn þinn á eftir að segja þér frá mér og vísa þér veginn í áttina til mín, en þó mun ég alltaf vera við hlið þér. Á þessu andartaki færðist ró yfir himininn og guðdómlegar raddir heyrðust og barnið sagði: Kæri Herra, þar sem ég er að fara segðu mér, hvað heitir engillinn minn? Nafn hans skiptir ekki máli, þú kallar hann bara ,,mömmu"
Fyrir mæður drengja!!! Drengir eru breytilegir að stærð, þyngd og lit. Þeir eru alls staðar - uppi á öllu og niðri í öllu, klifrandi, hlaupandi og stökkvandi. Mæður elska þá, eldri systur og bræður umbera þá, fullorðnir virða þá ekki viðlits, og Drottinn verndar þá. Drengur er Sannleikur með óhreinindi í andlitinu, Viska með tuggugúmmí í hárinu og Von framtíðarinnar með ánamaðk í vasanum. Drengur hefur matarlyst eins og hestur, meltingu eins og sverðagleypir, orku eins og vasaatómsprengja, rödd eins og einræðisherra. Hann er gæddur forvitni kattarins, ímyndunarafli skáldsins, feimni fjólunnar, viðbragðsflýti veiðibogans, funa flugeldsins, og þegar hann býr eitthvað til, hefur hann fimm þumalfingur á hvorri hendi. Hann kann vel að meta rjómaís, hnífa, sagir, myndabækur, skóga, vatn (í sínu náttúrulega umhverfi), stór dýr, pabba, bíla, laugardagsmorgna og brunabíla. Hann er lítið fyrir sunnudagaskóla, barnaskóla, myndalausar bækur, spilatíma, hálsbindi, rakara, stelpur, frakka, fullorðna eða háttatíma. Enginn er eins árrisull, og enginn eins síðbúinn til matar og hann. Enginn nema hann getur troðið í einn vasa ryðguðum hníf, hálfétnu epli, þriggja feta snærisspotta, þremur blossateinum, tuttuguogfimmeyringi, vatnsbyssu, og dularfullu áhaldi, sem enginn þekkir nema hann. Drengur er sannkölluð töfravera - þú getur lokað hann úti úr vinnustofunni þinni, en þú getur ekki lokað hann út úr hjarta þínu. Þú getur fengið hann burtu úr skrifstofunni þinn, en þú getur ekki fengið hann burtu úr huga þér. Það er eins gott að gefast upp strax - hann er fangavörður þinn, húsbóndi og herra - freknóttur ólátabelgur. En þegar þú kemur heim á kvöldin með allar borgir vona þinna og drauma hrundar, getur hann reist þær aftur með tveim töfraorðum - "Halló mamma!"
Alexander helgi Haukur logi Grímur ingi Aron ingi Aldís ínga Börkur bernharð Arnor Breki frændi
|
||
| Þú ert gestur nr. 6904 |