Velkomin á heimasíðuna okkar


Við erum systkinin Gissur Máni og Kara Sól





Loft

Kara= Tvíburi
Gissur = Vog

Hugurinn

Hugurinn ber mig hálfa leið er eitthvað sem á við litlu loftbörnin enda eru þau búin sterkri hugarorku, þar liggur styrkur þeirra. Stundum óska þau sér þess að þurfa ekki að dröslast með þennan þunga og klunnalega líkama hvert sem þau fara! Fyrir vikið eru þau ekki með sterka tilfinningu fyrir líkamanum og hunsa stundum þarfir hans.

Loft er léttasta elementið enda loftbörnin sveigjanleg og oftast létt í lund. Þau eru fljót að læra enda yfirleitt spurul og málglöð. Loft táknar hugann og hugsunina þannig litlu loftkrílin eru stillt inn á vitsmunahlið lífsins, hafa áhuga á púsli og hverskonar þrautum sem reynir á hugann. Þau þurfa því á vitsmunalegri örvun að halda til þess að styrkja lífsorkuna sína og öðlast heilbrigt sjálfstraust. Það má segja að skólakerfið sé sniðið fyrir loftbörnin því gengur þeim oftast vel í skóla. Þau hafa liðugan huga og fljót að sjá tengsl milli ólíkra hluta og drekka í sig upplýsingar á ógnarhraða. Litlu loftkrílin eru fíngerð bæði í efni og anda nema að jarðaráhrifa gæti við fæðingu þeirra. Þau þola illa árásargirni og ósanngirni og eru sjálf oftast tillitsöm og umburðarlynd gagnvart öðrum börnum. Þau þurfa sitt rými og er illa við að láta stjórna sér stundum vilja þau bara fá að vera í friði með sínar abstrakt pælingar. Þrátt fyrir félagslyndið eða þörf þeirra fyrir að miðla upplýsingum eiga þau gott með að vera ein því þau tengjast ekki sterkum tilfinningaböndum heldur frekar hugarböndum og það er hægt að gera úr fjarlægð. Stundum hefur þeim verið lýst sem fjarhuga eða sveimhuga, en það er satt þau hugsa mikið og þurfa stundum að ferðast langt í huganum til þess að komast að niðurstöðu. Þeir sem hafa skemmtilegar og áhugaverðar hugmyndir heilla loftbörnin mest.

Mikilvægt er fyrir foreldra að tala við þau eins og manneskjur og útskýra reglurnar og hegðunina sem þau eiga að fylgja. Loftbörnin þurfa rök þetta eru börnin sem spyrja afhverju? Þótt loftbörnin séu frekar róleg og kurteis, eiga þau til að hunsa reglur ef þeim finnst þær fáránlegar og settar á röngum forsendum.
Þú ert gestur nr. 56580