| |
|
|
| Við erum systkinin Birkir Atli, Arnar Freyr og Tinna Björg | |
|
Um okkur:
Birkir Atli fæddist á Sjúkrahúsi Akraness þann 24. nóvember 2005. Hann var 3135gr og 48,5cm. Hann fæddist með blá augu og pínulítið ljóst hár.
Hér er Birkir Atli ca 9 mánaða Arnar Freyr fæddist 28. júlí 2008. Hann fæddist líka á Sjúkrahúsinu á Akranesi. Hann var 3460gr og 51cm. Hann fæddist líka með blá augu en mikið og dökkt hár.
Hér er Arnar Freyr ca 9 mánaða Tinna Björg fæddist 16.ágúst 2010 á sjúkrahúsina á Akranesi. Hún var 3290 gr og 50 cm. Hún fæddist með blá augu og ljóst hár.
Hér er Tinna ca 9 mánaða Þetta eru fallegustu systkinin í heiminum og pabbi og mamma eru rosalega stolt af þeim. Mamma heitir Sigríður Þorsteinsdóttir og er fædd ´83 (Sigga) og pabbi heitir Brynjar Atli Kristinsson og er fæddur ´76 (Binni). Við búum á Akranesi.
KÆRU FORELDRAR. EKKI TELJA EFTIR ÞESSA FÁU MÁNUÐI SEM VIÐ ÞÖRFNUMST ÓSKIPTRAR ATHYGLI YKKAR. VIÐ HÖFUM MEIRA AÐ GERA EN NOKKRU SINNI VIÐ AÐ VAXA OG BÚA OKUR UNDIR FRAMTÍÐINA. EN VIÐ SÝNUM YKKUR ÞAKKLÆTI OKKAR. Á HVERJUM DEGI FÆRUM VIÐ YKKUR EITTHVAÐ NÝTT, EINHVERJA DÁSEMD, EINHVER MERKI UM FRAMFÖR. VIÐ ERUM SMÁBÖRN SVO SKAMMAN TÍMA. NÝTIÐ HANN EINS VEL OG VIÐ. VIÐ STÆKKUM OG HVERFUM Á BRAUT ÁÐUR EN ÞIÐ VITIÐ AF. |
|
|
|
|
Mamma er Konan Sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda. Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda. Þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til. Mamma er besta kona í heimi. Pabbi er Maðurinn Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður en það tekur hann bara nokkra daga að komast niður á jörðina aftur. Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað sofið alla nóttina og kúkað í klósett eins og annað fólk. Samt veit hann allt !! Svo þegar maður verður aðeins eldri og þá er hægt að fara að leika við mann og kenna manni ýmislegt þá finnst honum rosa gaman. Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar á þarf að halda. Pabbi er besti maður í heimi.
| |
| Þú ert gestur nr. 6727 |