| Daníel Smári & Viktor Logi |
| Flottustu bræðurnir :) Litli bróðir kom í heiminn 31.05.11 |
|
|
Daníel Smári fæddist 17.07.07 kl 02:20 vóg 4385gr og 55 cm. Viktor Logi fæddist 31.05.11 kl 03:47 vóg 3580gr og 52 cm. Mamma og pabbi eru að springa úr monti með okkur, enda erum við allra flottustu bræður:) Pabbi okkar heitir Kjartan Sævar Magnússon og mamma okkar Sif Jónsdóttir, þau elska okkur útaf lífinu og sjá ekki sólina fyrir okkur. Við erum sannkallaðir gleðigjafar foreldra okkar:) Til þín Áður en þú varst til þráðum við þig. Áður en þú komst í heiminn elskuðum við þig. Áður en þú hafðir lifað eina stund hefðum við fúslega dáið fyrir þig. Þú ert kraftaverk lífsins Takk fyrir að vera til
Vinir mínir! Aron Bridde Ingason Þórhildur Sara og Þorsteinn Dagur Arnar Freyr Bjarkason Arndís Halla Guðlaugsdóttir Elvar Snær og Elísa Sif Ágústbörn Ólöf Sæunn Valdimarsdóttir Styrmir Snær & Brynjar Emil Helga María & Eiríkur Gylfi Írena Rut, Lúkas Aron & Baltasar Smári Ísold Freyja, Flosi Þór & Brynjar Óðinn Hafdís Una Birkisdóttir Helena Ósk & Hjörtur Bjarni og Gunnar Geir Arnór Ingi Davíðsson Sigurður Dagur og Helgi Rúnar Jóel & Kári Baldurssynir Einar Benedikt & Gísli Baldur Katla Eysteinsdóttir Védís og Arney tvíburasnúllur Elena Rún Marquez Gunnlaugsdóttir Margrét Rós Ágústsdóttir HIÐ DÆMIGERÐA BARN Í KRABBAMERKINU Er mislynt. Elskar mat,einkum sætindi Er heillað af litum og myndum. Þarf að láta faðma sig og hvetja. Dregur sig stundum í hlé. Eignast ósýnilega vini. Notar tár til þess að fá það sem það vill. Finnst gaman að sanka að sér hlutum. Hefur frábært minni. Sonur minn *Elsku yndislegi sonur minn* Ég veit að ég á ekki alltaf auðvelt með að tjá tilfinningar mínar. En nú langar mig til að segja þér hvað ég elska þig mikið. Mig langar til að segja þér hug minn. Ég veit ekki hvar ég væri ef ég hefði ekki fengið þig inn í líf mitt. Þú ert mér allt. Þú ert súrefnið mitt, andardrátturinn minn og löngun mín til að lifa. Hamingjan mín hófst með komu þinni í þennan heim. Í dag horfi ég á þig og er hissa á því hvað þú ert raunverulegur. Ég er svo ótrúlega heppin að hafa fengið þig inn í líf mitt, og að fá að hafa þig mér við hlið í gegnum lífið. Þú ert gullið mitt, fjársjóðurinn minn. Ég hef reynt að læra sem mest af þér í gegnum tíðina. Ég reyni að meta þig að verðleikum. Þú hefur kennt mér svo margt um lífið, sem ég annars hefði farið á mis við. Hvar væri ég án þín? *Ég elska þig elsku sonur minnn* Nú og að eilífu.
Nafnið mitt!! DANÍEL Daníel er íslenskt karlmannsnafn. Nafnið kemur úr hebresku og þýðir Guð er minn dómari. Þekktasti Daníel mannkynssögunnar er líklega sá Daníel sem kenndur er við ljónagryfju, Daníel í ljónagryfjunni. Saga hans er sögð í Daníelsbók í Biblíunni. SMÁRI Smári getur átt við eftirfarandi: Ýmsa smára s.s. rauðsmára eða hvítsmára Smára, rásaeiningu úr hálfleiðurum í rafeindafræði Mannsnafnið Smára Pabbi er maðurinn!
Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður en það tekur hann bara nokkra daga að komast niður á jörðina aftur. Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað sofið alla nóttina og kúkað í klósett eins og annað fólk. Samt veit hann allt !! Svo þegar maður verður aðeins eldri og þá er hægt að fara að leika við mann og kenna manni ýmislegt þá finnst honum rosa gaman. Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar á þarf að halda. Pabbi er besti maður í heimi. Mamma er konan
Sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda. Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda. Þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til. Mamma er besta kona í heimi. |
|
|
|
Takk fyrir komuna og munið að kvitta í gestabókina:=) |
| Þú ert gestur nr. 48485 |