Við erum Arey Rakel, Darri Þór og Emil Víkingur og eigum þessa fínu síðu. Í ágúst 2009 fluttum við fjölskyldan til Þýskalands. Borgin okkar heitir Heidelberg og er í suður - Þýskalandi.

Arey Rakel er fædd 13. febrúar 2002 og því að verða 9 ára stór stelpa. Í september 2010 byrjaði hún í IGH í Heidelberg, heilsdagsgrunnskóla og stendur sig afskaplega vel. En hún hefur alltaf verið svo svakalega dugleg stelpa, var orðin læs 4 ára og skrifar svo og reiknar eins og herforingi. Hún er líka ofboðslega dugleg að passa bróður sinn og allt og alla í kringum sig.
Hún er algjör félagsvera og veit ekki neitt leiðinlegra en að hafa ekki neinn að leika við. Arey Rakel æfir blak einu sinni í viku með TSG Rohrbach, hverfisliðinu okkar.

Darri Þór er fæddur 16. nóvember 2005 og er því nýorðinn 5 ára. Hann er á leikskóla við hliðina á skólanum hennar Areyjar og elskar að vera þar. Á góða vini og algjörlega blómstrar. Hann er kominn í skólahóp og er stoltur af því.
Hann er algjör gaur en getur dundað sér tímunum saman með bíla og playmo, alveg ótrúlega duglegur eins og systir sín, hætti með bleyju fyrir 2 ára, altalandi og hjólar eins og herforingi. Darri Þór er í Turnen með TSG Rohrback einu sinni í viku og finnst það mjög skemmtilegt.

Minnsti prinsinn hann Emil Víkingur fæddist 18. nóvember 2010. Hann er dökkhærður, krúttlegur og finnst best í heiminum að drekka og sofa. Lítið annað er hann búinn að læra að gera.

Foreldrar okkar heita Arna og Guðni og eru bæði frá Ísafirði.
Síðan er læst en endilega óskið eftir lykilorði og mamma svarar um hæl.
Og svo megið þið að sjálfsögðu ekki gleyma gestabókinni, Areyju Rakel finnst svo gaman að lesa kveðjurnar.




Þú ert gestur nr. 69417