Tristan Snær og Victoría Líf
![]() |
|
|
Um okkur:
Hæ Hæ jæja nu er ég loksins kominn í heiminn en ég lét nu bíða pínu eftir mer hehe . Ég var væntanlegur 20 des en kom ekki fyrr en 27 des. 2005. ég var 13 merkur og 51 cm og með pínu dökkt hár og dökk augu. svo sjáið þið bara restina í albúminu :). Litla systir mín fæddist 6 mai 2008. hun var 17 merkur og 52,5 cm og með dökkt hár og brún augu. foreldrar okkar heita Daníel Kristjansson og Sigrún Rúnarsdóttir. Barn í steingeit Barn fætt í steingeit hagar sér eins og fullorðinn frá því að það fæðist. Sá sem fylgist með verðbréfamarkaðnum fyrir fjölskylduna, litla viðskiptaveran á heimilinu. Þessi einstaklingur er fæddur frumkvöðull og er ávallt með áætlun í gangi. Áætlun um að vera kóngur í ríki sínu, ná á toppinn. Þú getur bókað að þessi áætlun er ítarlega útfærð og í smáatriðum. Við hverju máttu búast af barni fæddu í steingeit? Fyrst og fremst, viðskiptamanni með stórar viðskiptaáætlanir! Það er barn fætt í steingeit sem setur upp sölubás og ræður ?starfsmenn? til að vinna fyrir sig. En þú þarft ekki að óttast neitt, því að steingeitin er réttlát og hugsar vel um þá sem hjálpa henni. Varkárni og ábyrgð eru þessu barni eðlislægt og það fer ekki út í neitt sem á ekki góða möguleika á að ganga vel. Barn fætt í steingeit lætur aðra um að klífa fjöll og vill sjálft hafa báðar fætur á jörðinni (enda er steingeit jarðarmerki, þrátt fyrir allt). Ef þú ert að leita þér að einhverjum til að passa fyrir þig, þá er steingeitin góður kostur. Steingeitinni fer vel að hugsa um aðra og heldur öllu í röð og reglu. Þetta barn leitar ávallt að fullkomnun og vinnur mikið til að ná fullkomnun. Þetta barn skaltu taka alvarlega og fylgjast vel með, því það er líklegt til að ná mjög langt í lífinu.
Mamma og Pabbi: Þið verðið stundum vansæl, víst er ég ósköp lítill. Set merki um mig út um allt, ykkur þreytir vaskur trítill. En einn dag verð ég eldri, já einn dag er ég stór. Því tíminn líður skelfing hratt, þið undrist hvernig fór. Hér minnismerki fáið, þá munið þið vel og skiljið, hve litla hendur hafði ég þau ár sem ég var smár |
|
|
Annað:
Patrik Snæland |
| Þú ert gestur nr. 13164 |