Ég heiti Ísak Ernir ~nýjar myndir~


Um mig:
Ég fæddist þann 5 október 2005 kl. 06:23 á sjúkrahúsinu á Akranesi. Hárið mitt var dökk brúnt og augun mín voru mjög dökk! Ég var ofsa fínn og flottur alveg 51 cm og 3560 grömm.
Ég á eina stóra systir sem að heitir Emma Karen og litla systir sem heitir Katla Ísold:) Pabbi minn heitir Kjartan og mamma mín heitir Katrín. Við búum á Hvammstanga.
Ég er ofsalega hress og skemmtilegur lítill kútur sem að mamma, pabbi og stóra systir elska út af lífinu. Ég er alltaf svo kátur og glaður með stórt og fallegt bros! Mjög knúsulegur strákur með stór blá augu sem að sjarma fólk upp úr skónum.

Lilypie 2nd Birthday Ticker



emmakaren.barnaland.is

katlaisold.barnaland.is





Annað:



Til þín Ísak Ernir
frá mömmu og pabba

Áður en þú varðst til þráðum við þig
Áður en þú komst í heiminn elskaðum við þig
Áður en þú hafðir lifað eina stund
hefðum við fúslega dáið fyrir þig
þú ert kraftaverk lífsins
Takk fyrir að vera til!





Til þín frá ma&pa

Undir þínum áhrifum

ég er ofurseldur þér og uni vel
það er annað finnst mér allt mitt hugarþel
sem ég horfi á þig sofa finnst mér að
það brotið nú í lífi mínu blað

ég beðið nokkuð lengi eftir þér
svo ég segi það hreint alveg eins og er
og ég hugsa alla daga til þín heitt
alveg ótrúlegt hvað allt er orðið breytt

það er varla nokkur heppnari en ég
þessi tilfinning er ævintýraleg
ég er undir þínum áhrifum í dag
og verð áfram enginn vafi er um það

þú ert nátturunnar undurfagra smíð
verður hörpu minnar strengur alla tíð
það er ekki nokkur sem að brosir eins og þú
og ég lofa gjafir lífsins fyrr og nú

þú hefur löngu sigrað mig
takmarkalaust ég trúi á þig
mitt allt er þitt og verður
um ókominn ár

ég mun elska þig allt fram að hinstu stund
uns ég held um síð á feðra minna fund
en að líkum hef ég tímann fyrir mér
og ég hlakka til að eyða honum með þér


Þú ert gestur nr. 26006