Vefdagbók
Myndaalbúm
Kveðjur frá gestum
Gullkorn
Dagbók barnsins
Ágúst Davíð
Ágúst Davíð
Elsku Ágúst Davíð innilega til hamingju með 4 ára afmælið þitt :) Hlökkum til að koma og gefa þér pakka ;) Kv Rut, Jón Agnar og Kristinn Máni.
Rut Agnarsdóttir | 0 | 21.7.2010 23:12:39 #

Halló.

Ég var alveg rosalega ánægður í kvöld. Mamma og pabbi keyptu handa mér móturhjól (krossara)Laughing. Þau keyptu sér líka móturhjól. Þannig að ég,m+p og Sandra eigum blá móturhjól. Ég var fyrst ekki alveg viss hvernig ég ætti að vera. En svo fór ég að skoða hjólið betur og sá að það er hægt að setja bensín á það og setja það í gang þá kom ekkert smá bros á migLaughing. Mig hlakkar ekkert smá til að þegar ég get farið að nota það. Ég ætlaði á það í kvöld. Ég fékk að vera í bílskúrnum hjá pabba og gera hjólið mitt fínt. Þegar ég var búinn að því þá bað ég pabba að opna stóru hurðina,pabbi spurði til hvers, þá sagði ég við hann -: Ég ætla að keppa við þig. Pabbi hló bara og sagði að hann myndi keppa við mig þegar ég gæti farið að nota hjólið. Ég var fljótur að fara að sofa bara til að geta sagt öllum í leikskólanum mínum að ég eigi móturhjólLaughing.

Í gær þá fórum við fjölskyldan í sund. Ég er orðinn svo frakkur að ég var fljótur að stökkva út í laugina. Ég var svo þreyttur þegar við komum heim að ég var nærri því sofnaður þegar við fengum okkur að borða. Ég fékk að gista heima hjá ömmu og afa. Ekkert smá ánægður með það. Pabbi sótti mig í leikskólann. Afi kom og kíkti á okkur í dag. Ég fékk að fara með honum heim. Svo fékk ég að fara með ömmu og afa í búðina.

Kveðja Ágúst og mamma

0 | 19.1.2010 23:13:54 #

Halló.

Um daginn fór ég í bíó með mömmu,pabba og Bjössa brósa. Við fórum á Alli og íkornarnir 2. Ég skemmti mér ekkert smá velSmile. Í gær fór ég smá að labba með pabba en við vorum að hjálpa mömmu að bera út Skessuhornið fyrir hann Inga. Hann er í skólabúðum í Reykjum og kemur heim á morgun. Svo fór ég út að labba með mömmu,Sólrúnu,Jón Bjarna og Þóru Maríu. Við fórum í Skallagrímsgarðinn,þar fékk ég og Jón Bjarni að hlaupa um. Við komum við hjá Kristínu og Margréti Signý áður en við fórum heim. Mamma ætlar að reyna að fara með mig í sund um helgina. Við förum svo kannski til R.víkur að hitta Ernu áður en hún fer til Lúxemborgar sem aupair. En hún kemur svo aftur á klakann í Maí. Ég og mamma ætlum að hafa það bara kósý í kvöld enda verðum við bara ein heima. Pabbi er að fara á næturvakt í kvöld.

Kveðja Ágúst og mamma

0 | 14.1.2010 18:19:08 #

Halló.

Ég er lítill lasalingur núnaUndecided. Ég ældi í gær þegar ég var að fara að sofa en er orðinn hress núna. Vonandi að ég æli ekki meira. Það er búið að vera nóg að gera hjá mér síðustu daga. Á sunnudaginn fór ég,mamma,Ingi og Mæja að sjá kveikt á jólatrénu en komumst svo að því var frestað. Ég fékk að leika mér í snjónum í smá tíma hehehe. Á mánudeginum fórum að aftur til að sjá kveikt á jólatrénu og í þetta sinn var kveikt á því hahaha og pabbi kom með okkur. Ég sá jólasveina en vildi ekki fá epli hjá þeim. Pabbi fór á undan okkur heim. Fór fyrst að versla svo heim að gera heitt súkkulaði handa okkur. Þegar allt var búið kom hann að sækja okkur og við fengum okkur heitt súkkulaði,köku og brauð með. Ég fór með mömmu og pabba til R.víkur á þriðjudaginn að versla. Mamma og pabbi keyptu snjóþotu handa mér. Þegar við fórum í Kringluna þá fékk ég að fara í Ævintýraland að leika mér þar á meðan mamma og pabbi röltu um. Ég skemmti mér ekkert smá þar og var ekki tilbúinn að fara strax þaðanSmile. Deginum eftir þá fór ég og mamma að renna okkur á nýju snjóþotunni minni. Það fannst mér ekkert smá gaman hahaha. Það var farið að hvessa og snjó svo við fórum inn. Ég hlakka til að fara aftur að renna mér.

Kveðja Ágúst og mamma

0 | 4.12.2009 12:53:49 #

Mamma, pabbi er að setja krem á bílinn!
Fór með okkur að þvo bílinn og var alveg hissa þegar hann sá pabbi sinn setja sápufroðu á bílinn.
0 | 13.11.2009 22:35:59 #
Flottar myndir af þér krúttið mitt ég sakna þin ekkert smá mikið, vona að fá fleiri myndir af ykkur öllum ég bið að heilsa pabba,írisi og inga :)
Sandra Björk | 0 | 1.11.2009 19:47:13 #

Halló.

Þetta var alveg æðisleg helgi hjá mér. Á föstudaginn fór ég,mamma og pabbi að sækja Ernu. Ég fékk að fara í bíó og fannst það alveg æðislegt. Við fórum á Ísöldina 3. Það var svo æðislegt að ég er búinn að segja nokkrum 2svar sinnum að ég hafi farið í bíó. Á laugardaginn var sauðamessa. Ég,mamma,Mæja,Sólrún,Jón Bjarni og Þóra María löbbuðum saman héðan í Skallagrímsgarðinn. Við vorum þarna í þó nokkra stund en svo ákvað mamma og Mæja að labba heim þar sem við vorum orðin rennandi blaut í gegn. Meira segja ég þó svo ég hafði verið í pollagalla. Pabbi kom og pikkaði okkur upp. Ég fékk að fara og versla með honum. Við fórum heim og mamma og pabbi bökuðu vöfflur. Í dag þá fórum við að skutla Ernu til baka. Bjöggi frændi fékk far með okkur. Mig langaði að fara aftur í bíó. Mamma sagði að við færum bara seinna. Þegar við komum í nesið þá sóttum við Inga heim (hann var búinn að vera hjá pabba sínum) og fórum (nema pabbi hann var heima því hann var svo þreyttur) til ömmu og afa í mat. Horfðum svo á Hamarinn og Fangavaktina með þeim. Jaaahh aðalega mamma og Ingi ég nennti ekki að horfa mikið á þetta. Ég var orðinn mjög þreyttur þegar við komum heim þó svo ég hafði fengið mér lúr á leiðinni til R.víkur. Ég var fljótur að sofna þegar ég lagðist á koddan eftir að mamma var búin að lesa fyrir mig.

Kveðja Ágúst og mamma

0 | 18.10.2009 22:45:23 #

Elsku stúfueunn minn. Amma saknar strákanna á efrihæðum. Nú eruð þið fluttir í stórt hús og hefur nóg pláss. Það verða vonandi tíðar ferður á milli Kveldúlfsgötu og Hrafnarkletts. Amma á kaffi og ömmudjús. Knús og kiss.
amma | 0 | 29.9.2009 11:28:19 #

Halló.

Jæja ég verð að fara reka hana mömmu mína í það að fara vera duglegri að skrifa hér inn fyrir mig. Hún er orðin allt of löt við þettaWink. Við erum flutt í stærra húsnæði og okkur líður mjög vel hér. Fyrstu dagana kom fyrir að ég þurfti að leita af klósettinu þó svo það eru 2 hérnaTongue out.  Ég er með 2 herbergi, eitt svefnherbergi og eitt leikherbergi. Mamma og pabbi keyptu handa mér nýtt hjól sem ég hjóla á hér á fullu. Sandra og Bjössi eru flutt til Bandaríkjanna ( Omaha Nebraska). Þau munu búa þar í 2 ár. Þau koma til Íslands í sumar svo ég vona að þau verði eitthvað hjá okkur. Þar sem þau geta sofið í sér herbergi. Erna fór líka með þeim en hún kemur aftur 3 Október og ætlar að kíkja á okkur. Ég var fyrst alltaf að spyrja um þau en núna er ég hættur því. Núna er rosalegt sport hjá mér að fá að hjálpa mömmu að elda og baka. Og hjálpa pabba í bílskúrnum, alltaf kem ég mjööög skítgur inn mömmu til mikillar gleði Sealed. Amma og afi sakna þess að hafa okkur á efri hæðinni og við söknum þess að hafa þau ekki á neðri hæðinni. En þetta er samt yndislegt að vera hér í svona stóru húsi. Mömmu dreymir um að kaupa þetta hús. Ég er búinn að fara nokkrum sinnum labbandi eða hjólandi með mömmu í búðina enda er þetta svo stutt að fara. 

Kveðja þangað til næst

Ágúst Davíð  og mamma.

P.s Vonandi líst ykkur vel á nýja lúkkið á síðunni minniSmile

0 | 17.9.2009 22:25:01 #

Halló.

Jæja það er greinilegt að það er langt síðan mamma skirfaði hér inn fyrir mig hahaha. Það er margt búið að gerast hjá mér síðan síðast. Ég er alltaf jafn hress og kátur. Og alltaf sami grallarinn hahaha. Ég er kominn á aðra deild í leikskólanum. Er ekki lengur á Ólátagarði. Ég er kominn á Kattholt og er mjög ánægður þarLaughing. Við erum að fara að flytja í byrjun Ágúst. Okkur hlakkar ekkert smá til. Það erum svo mörg herbergi í þessu húsi að við fáum öll sér herbergi. Þar að segja ég,Ingi,Sandra,mamma og pabbi.Það verður svo gaman að komast loksins í stærra húsnæði. Mamma er svo spennt að hún getur varla beðið hehe. Á föstudaginn næsta þá fer ég,mamma og Ingi í sumarbústað fyrir norðan með ömmu og afa. Pabbi og Helgi frændi koma svo á miðvikudaginn næsta. Þeir verða að vinna þangað til þá. Jæja mamma ætlar að láta þetta duga í bili og ætlar að reyna að verða duglegri að skrifa og setja myndir hér á síðuna mína.

Kveðja Ágúst Davíð og mamma

0 | 14.6.2009 22:40:47 #

Hææj sætastur þú ert orðinn svo stór. sakna þín
Sandra | 0 | 26.2.2009 23:41:59 #
Gleðilegt nýtt ár. Vonum að vi sjáumst að nýu ári. Kv. Lena Lind. e.s. Mamma biður að helsa mömmu þinni.
Særún Arna Bergdal | 0 | 31.12.2008 06:14:19 #

Gleðileg jól allir samanLaughing.

Það er greinilega kominn tími á að mamma skrifi smá fréttir af mér hérna inn. Eins og allir vita þá er ég í leikskóla og gengur bara mjög vel þar. Ég er mjög ánægður í Ólátagarði. Jólin er búin að vera mjög góð hjá mér. Ég fékk fullt af flottum gjöfum og er ánægður með þær allar. Ég er orðinn svo mikill grallari að ég stalst til að opna einn pakka á meðan mamma,pabbi og Ingi voru að klára að borða. Pabbi náði að stoppa mig áður en ég opnaði annan pakka. Pakkinn sem ég opnaði var til mömmu og pabba hehe. Svo þegar við vorum að opna pakkana þá var ég orðinn svo æstur að ég var farinn að ráðast á pakkana sem Ingi var að opna. Við fórum svo niður til ömmu og afa. Bjöggi og Helgi voru þar. Við óskuðum öllum gleðilegra jóla og þökkuðum fyrir okkur. 

Í dag þá var ég að flakka mikið. Var að fara til ömmu og afa af og til. Afi sendi mig til að láta mömmu og Inga vita að þau gætu komið og fengið súkkulaði og rjóma. Á leiðinni upp stigann þá muldraði ég: súkkulaði-rjómi svo ég myndi ekki gleyma þessu. Ég náði ekki að opna hurðina heima því það er svo mikill gegnum trekkur en mamma opnaði fyrir mig og fyrsta sem ég sagði við hana SÚKKULAÐI-RJÓMI. Sagði þetta frekar hátt og hratt. Mamma skildi vissi hvað ég átti við. Hún og Ingi fórum með mér niður til ömmu og afa. Við fengum okkur heitt súkkulaði með rjóma og kökur. Ég og mamma förum svo á jólaball þann 28 og eftir það þá förum við í jólaboð.

Kveðja Ágúst og mammaSmile

0 | 26.12.2008 01:29:20 #

hæ sæti strákur bara að kvitta fyrir okkur kv Hafdís, Elínborg og Ásdís Eva
systurnar niðri | 0 | 9.12.2008 20:52:22 #