Við erum systkinin Björn Máni, Marey Edda, Björgvin Þór og Marta Sóley
Við erum gullmolar mömmu og pabba


Um okkur:

Björn Máni var tekinn með keisara á sjúkrahúsi Akraness þann 14. nóvember árið 2000. Hann var 17 og hálf mörk og 54 cm. Hann var með gyllt hár þegar hann fæddist og var mjög líkur pabba sínum en mamma þykkist eiga pínu í honum núna.
Björn Máni er byrjaður í skóla. Skólinn hans heitir Egebjergskoli og er hann í 0 bekk. Honum gengur vel að læra að lesa og reikna. Við erum óendanlega stolt af stráknum okkar.

Marey Edda fæddist á sjúkrahúsi Akraness þann 11. febrúar árið 2004. Hún var 16 merkur og 53 cm. Hún var mjög dökk og með svart hár þegar hún fæddist og var og er mjög lík pabba sínum.
Marey Edda er byrjuð á leikskóla hérna í Horsens. Leikskólinn heitir Bornesyl. Hún er á deild þar sem börnin eru 3 - 6 ára. Henni gengur vel eins og bróður sínum að læra dönskuna. Við erum óendanlega stolt af stelpunni okkar.

Björgvin Þór var tekinn með keisara á sjúkrahúsinu í Horsens þann 18. júní árið 2007. Hann var 15 merkur og 52 cm. Hann var dökkur með skollitað hár þegar hann fæddist og eiga mamma og pabbi bæði eitthvað í honum.
Björgvin Þór dafnar vel og er duglegur að drekka brjóstið hjá mömmu sinni. Hann sefur mikið og líður greinilega mjög vel. Við erum óendanlega stolt af stráknum okkar.




Annað:

Við, mamma og pabbi búum núna í Danmörku.
Heimilisfangið okkar er
Engblommevej 107
8700 Horsens.
Símanúmerið okkar er (0045)75601987

Við ætlum að vera dugleg að nota þessa heimasíðu svo vinir og ættingjar geti fylgst með hvað við erum að bralla í útlandinu.
Mamma okkar heitir Hrefna (76) og er leikskólakennari. Pabbi okkar heitir Helgi (67) og hann er pípari en er í byggingafræði hérna í Horsens. Björn Máni á síðan annan pabba í Svíþjóð og hann heitir Andri.

Við höfum ákveðið að hafa heimasíðuna okkar lokaða en þeir sem þekkja okkur eða kannast við okkur sem vilja skoða sendið endilega póst og biðjið um lykilorðið.

Skrifið endilega í gestabókina okkar það er svo gaman að fá kveðjur frá ykkur.
Þú ert gestur nr. 16387