Velkominn á heimasíðuna mína
Ég er Guðjón Daníel


Um mig:
Mamma mín heitir Auður Ester Guðlaugsdóttir og pabbi minn Bjarni Þór Jónsson. Ég er fyrsta barnið þeirra svo þið getið rétt ímyndað ykkur hvað þau voru spennt fyrir að sjá mig í fyrsta skipti.

Ég var í maganum á mömmu í 40 vikur og 3 daga. Ég átti að fæðast 17 maí en það er þjóðhátiðisdagur Norðmanna, mömmu til mikillar gleði því hún er ofsa mikill Norðmaður í sér. En ég var ekki alveg tilbúinn að koma þá. Þegar komnar voru 40 vikur og 2 dagar þá fór legvatnið hjá mömmu en ég var samt ekkert á leiðinni út. Hvítklædda fólkið á Landspítalanum sögðu mömmu að hún yrði sett á stað ef ég sýndi mig ekki á næstu 24 tímum... út af sýkingarhættu. Alla veganna ég var ekkert að drífa mig þannig að mamma var sett á stað um hádegi sunnudagsins 21.maí og rétt fyrir kl 23 þá mætti ég í heiminn.





Tvíburamerkið:

Barn í tvíburamerkinu er snöggt í hreyfingum eins og svipu sé veifað, þó svo að flestar hreyfingar séu uppávið. Þetta barn er alltaf á leiðinni upp á eitthvað. Talandi um orku og virkni! Þetta barn fer létt með að gera 3 hluti í einu og er líklegt til að gera þá alla vel. Hægt er að segja um barn í tvíburamerkinu að það sé mjög klókt og komi sífellt á óvart. Það er einnig ósvífið og gæti komið heim með kettling með slaufu um hálsinn (sem það fann) og fært mömmu sinni að “gjöf”. Sætt, ekki satt? Það sem þessu barni leiðist er að hafa ekkert að gera, svo vertu viss um að stundatafla þess sé alveg þétt skipuð (íþróttir, klúbbar, útivist o.s.frv.) Vegna þess hve barnið er upptekið og hefur margt fyrir stafni þá eignast það marga vini. Tvíburanum líkar að vera trúðurinn í bekknum og gerir í því að gretta sig og segja brandara. Tvíburinn er fyndinn og býr yfir góðum húmor. Hugur hans ferðast á ógnarhraða og auðvelt að örva. Vertu viss um að hann hafi alltaf nóg að lesa. Fyrir utan lestur þá hefur barn í tvíburamerkinu einnig mikla unun af því að tala, segja brandara og taka þátt í íþróttum, og það vill gera þetta allt núna strax. Þegar þú reynir að sjá fyrir þér barn í tvíburamerkinu þá skaltu hugsa um Línu Langsokk. Hallaðu þér aftur, dragðu andann djúpt og taktu þátt í fjörinu.
Þú ert gestur nr. 17911