Ég heiti Ásta María Bragadóttir og er 5 ára :)


Ég er falleg prinsessa sem fæddist á Landspítalanum í Reykjavík
þriðjudaginn 22.ágúst 2006 kl.07:13 og var 3714.gr (15.merkur) og 50.cm. Ég var með dökk augu og svart hár þegar ég kom í heiminn. Eitt af því fyrsta sem mamma og pabbi tóku eftir var hvað ég er með stór og falleg augu.
Mamma mín heitir Rósa Svava Sigurðardóttir (83) og pabbi minn heitir Bragi Þór Kristinsson (78) Við búum í Vestmannaeyjum og þau sjá ekki sólina fyrir mér!
Ég var skírð Ásta María 7.október heima hjá Braga langafa af Sr. Einari Eyjólfssyni. Ég var rosalega góð alla athöfnina og grét ekki neitt :) Ásta er í höfuð á langömmu minni sem er uppi hjá Guði en María er útí loftið,pabba og mömmu fannst það passa svo vel við!




Elsku Ásta María...
Áður en þú varðst til, þráðum við þig
Áður en þú komst í heiminn, elskuðum við þig
Áður en þú hafðir lifað eina stund, hefðum við fúslega dáið fyrir þig.
Þú ert kraftaverk lífsins.
Við elskum þig
Mamma og pabbi


MAMMA MÍN ER KONAN

Mamma er konan sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn
fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og
ástúð sem lítið barn þarf á að halda.
Þegar maður eldist og ætti kannski að geta hugsa
meira um sig sjálfur, til dæmis að vera í hreinum
fötum, og laga til í herberginu sínu
leyfir mamma það ekki því hún er svo
vön að hugsa vel um barnið sitt.
Mamma er alltaf til staðar með
út rétta hjálparhönd þegar á þarf að halda,
þerra tárin þegar það er leiðinlegt og gleðjast
með manni þegar gaman er að vera til.

MAMMA ER BESTA KONA Í HEIMI!!!!


PABBI MINN ER MAÐURINN

Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að
það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður.
En það tekur hann bara nokkra daga að komast
niður á jörðina aftur.
Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað
sofið alla nóttina og kúkað í klósettt eins og
annað fólk.
Samt veit hann allt!! svo þegar maður verður
aðeins eldri og það er hægt að fara að leika
við mann og kenna manni ýmislegt finnst
honum rosa gaman.
Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar
á þarf að halda.

PABBI ER BESTI MAÐUR Í HEIMI !!!!!!!



- LJÓNIÐ 23. JÚLÍ - 22. ÁGÚST -

Konungurinn í frumskóginum er mættur og vill einmitt vera meðhöndlaður í samræmi við tign sína. Litla ljónið þarfnast athygli (við erum að tala um að vera alltaf miðdepill athyglinnar!) og vill láta taka eftir sér og láta dást að sér. Það getur verið mikil vinna að eiga börn í ljónsmerkinu. Börnin eru oft hávaðasöm og mjög opin í tjáningu. Ef barnið er ánægt er það yndislegasta og fallegasta barn í heimi en ef það er óánægt öskrar það og lætur öllum illum látum. Heimilislífið kemur til með að snúast mikið í kringum kraftmikinn ljónsungann sem getur verið mjög stjórnsamur og frekur. Það þýðir ekki að segja ljóninu að læðast meðfram veggjum því slíkt er andstætt eðli þess og er ekki til annars en að brjóta það niður. Vingjarnleg ákveðni er það sem dugar best. Ljónið er merki stjórnunar og foreldrar þurfa að virða þörf þess fyrir persónulegt sjálfstæði og því er gott að fela því snemma ábyrgð. Mikilvægt er að kenna því að taka tillit til annarra. Það þarf að taka tillit til þess í uppeldi að ljónið er einstakt og veita því athygli, hvatningu og ekki síst að hrósa því þegar það hefur gert eitthvað jákvætt.


Bara fyrir pabba :)


Þú ert gestur nr. 40601