Mamma ég elska ekki...
Maí 2010 - Hrafnkell var að borða banana og svo kom í ljóst smá brúnn blettur. Hrafnkell: "mamma ég elska ekki brúnan banana" Mamma: "ég skal bara taka brúna blettinn". Hrafnkell heldur áfram að borða bananann og missir hann svo í gólfið í öll hundahárin og mamman fer og skolar bananann og lætur Hrafnkel svo fá hann. Hrafnkell: "mamma ég elska ekki blauta banana" Mamman þurfti svo auðvitað að þurrka blauta bananann svo hann yrði ætur aftur.
Eins og fullorðið fólk
Maí 2010 - Hrafnkell ákvað að gefa Serenu að borða. Hann náði í matinn hennar, setti vatn í hann og bað mömmu svo að setja AB mjólk. Hrafnkell bað Serenu svo að setjast og sagði henni að gjöra svo vel. Serena borðaði svo með bestu lyst og þá sagði Hrafnkell "mamma núna var ég alveg eins og fullorðið fólk....er það ekki??"
VIÐ ERUM Á HÁRINU
Júlí 2009 - Hrafnkell, mamma og Kári eru í göngutúr og það er frekar gott veður. Allt í einu segir Hrafnkell "Mamma! Við erum bara á hárinu" Meinti að við værum ekki með húfu :)
ÞESSIR ERU ÆÐISLEGIR!!!
Júlí 2009 - Mamma, Auja og Hrafnkell eru í búðum á Laugaveginum og Hrafnkell sér Tómas lestarskó og segir við mömmu....."Þessir skór eru æðislegir mig langar í þá"
VIÐ BORÐUM KVÖLDMAT
Mars 2009 - Mamma og Hrafnkell eru að lesa bækur fyrir svefninn. Hrafnkell velur sér bókina "Dýraríkið" og mamma les um nokkur dýr og þar á meðal Sebrahesta sem borða gras. Mamma spyr þá Hrafnkel hvað við borðum og Hrafnkell er ekki lengi að svara því...."við borðum kvöldmat".
VILTU SKIPIÐ MITT Í BAÐIÐ PABBI
Desember 2008 - Pabbi kemur heim úr vinnunni drulluskítugur sem fyrr og segist ætla að drífa sig í sturtu. Þá segir Hrafnkell við pabba sinn "Pabbi...viltu taka skipið með þér í sturtu??". Hann var s.s. að bjóða pabba sínum að taka litla plastskipið með sér í baðið en Hrafnkell leikur sér oftar en ekki með það í baðinu.
HVAR FÆR MAMMA MJÓLKINA Í BRJÓSIN??
Janúar 2009 - Júlía og Hrafnkell voru að ræða saman. Júlía spyr svo Hrafnkel hvort hann viti hvað Kári fær að borða og Hrafnkell veit það alveg....hann fær mömmumjólk úr mömmubrjósti. Þá spyr Júlía hann hvar mamma fái eiginlega mjólkina í brjóstin og Hrafnkell svarar því að mamma fái mjólkina úti í búð. Júlía spyr þá hvernig mamma setji mjólkina í brjóstin. Hrafnkell hugsar sig um í smá stund og segir svo....."Hún ýtir bara á takka".
HVAÐ Á LITLI BRÓÐIR AÐ HEITA??
Október 2008 - Rétt eftir að litli bróðir fæddist þá spurðum við foreldrarnir hann hvað litli bróðir ætti að heita. Hrafnkell svarar fullum hálsi "Hann á að heita Jökull Smári". Jökull Smári er besti vinur hans á leikskólanum og því ekki verra að láta litla bróður heita það sama.
RAFHLÖÐUR-RAFMAGNSFLUGUR
OKTÓBER 2008 - Auður Sif og Gassi komu heim frá Spáni með þennan forláta "Leiftur McQueen" bíl sem var hægt að setja í gang og þá söng hann lög og keyrði um. Hrafnkell var ekki par hrifinn af bílnum...fannst hann vera of hávaðasamur. Pabbi hans prófaði að taka batteríin úr en allt kom fyrir ekki...hann vildi ekki leika með hann. Seinna meir þegar við vorum að tala um bílinn þá segir Hrafnkell..."Pabbi tók rafmagnsflugurnar úr bílnum svo hann hefði ekki hávaða."
HRAFNKELL AÐ FÍFLAST HEIMA
Nóvember 2008 - Hrafnkell var að fíflast og leika sér og kemur svo og segir við okkur...."Ég er ekki prins..ég er púki"
HVERJIR GERA HVAÐ
Ágúst 2008 - Mamma og Hrafnkell voru að spjalla um vini og ættingja og hvað þeir gerðu svona dags daglega. Mamma spyr Hrafnkel hvað Sóley gerir og hann svarar "hún leikur við Freyju", svo spyr mamma hvað Lóla voffi geri og hann svarar "hún gerir svona (og rekur út úr sér tunguna og andar eins og hundur)". Mamma spyr svo hvað Auja geri og hann svarar "hún skammar mig". Svo að lokum spyr hún Hrafnkel hvað Gassi geri og hann svarar "hann dansar og syngur hó hey"
HEITT Á HÚFUNNI
Vor 2008 - Hrafnkell og mamma eru að labba yfir til Erlu og Erlenar Ingu. Mamma vildi að Hrafnkell væri með húfu á hausnum en þá sagði hann "nei mamma mér er svo heitt á húfunni"