|
|
Ég fæddist þann 16. apríl 2006, klukkan 14:00 á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Við fæðingu var ég 3535 gr og 51 cm, hárið mitt rautt og augun mín grá. Foreldrar mínir eru Monika Dröfn (1985) og Þórhallur (1980).
MAMMA ER KONAN Sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda. Þegar maður eldist og ætti kannski að geta hugsað meira um sig sjálfur, til dæmis að vera í hreinum fötum og laga til í herberginu sínu, leyfir mamma manni það ekki því hún er vön að hugsa svo vel um barnið sitt. Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda, þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til. Takk fyrir að vera mamma mín.
PABBI ER MAÐURINN Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður. En það tekur hann bara nokkra daga að komast niður á jörðina aftur. Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað sofið alla nóttina og kúkað í klósett eins og annað fólk. Samt veit hann allt. Svo þegar maður verður aðeins eldri og það er hægt að fara að leika við mann og kenna manni ýmislegt finnst honum rosa gaman. Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar á þarf að halda. Takk fyrir að vera pabbi minn.
Brosið Brosið kostar ekkert en gefur mikið, brosið auðgar viðtakandann, án þess að gera gefandann fátækari, ef til vill varar það bara örlitla stund, en minningin um það getur varað að eilífu. Enginn er svo ríkur að hann getur án þess verið og enginn er svo fátækur að hann sé þess ekki verður. Brosið skapar hamingju heima og auðveldar viðskipti. Brosið er viðkvæmt vináttutákn, brosið veitir þeim þreytta hvíld, það uppörvar þann sem er þunglyndastur. Enginn getur keypt það fengið það að láni eða stolið því, ef þú hittir einhverntíma menneskju sem kann ekki lengur að brosa, þá skaltu af örlæti gefa henni brosið þitt því enginn annar þarfnast þess meir en sá sem ekki lengur getur gefið það öðrum. Brostu í dag og alla daga :)
Hrúturinn 21. mars - 19. apríl Rambó leikfélaganna er mættur á svæðið. Með barn í hrútsmerkinu mega foreldrar búast við miklu fjöri á heimilinu því það ríkir engin lognmolla í kringum hrútinn. Ekki ætlast til þess að barnið sitji kyrrt með hringlu. Þetta er barnið sem veifar þér ofan af hæsta tré, alls óhrætt við að taka áhættu. Hrútsbarnið er allt annað en hljóðlátt og lætur oft vel í sér heyra. Sem eldsmerki er hrúturinn orkumikill og hefur ávallt eitthvað fyrir stafni. Verður erfitt að ráða við litla hrúta? Það er líklegra en ekki. Foreldrar ættu eins fljótt og hægt er að kenna þessu barni að vinna með öðrum börnum. Að deila einhverju með öðrum er eitthvað sem kemur ekki af sjálfu sér ? það þarf að kenna litlum hrútum. Þeir eru einnig ákaflega tapsárir. Þeir þrá athygli og eiga mjög auðvelt með að verða sér úti um hana með ýmsum aðferðum. Hrútar eru fæddir leiðtogar og ef þú ætlar að hafa eitthvað að segja er betra að láta þá vita með afgerandi hætti hver er við stjórnvölinn því annars er eins líklegt að stjórnin verði tekin úr þínum höndum. Lítill hrútur er oft eins og ótemja, lítið gefinn fyrir að hlýða reglum og vera þægur nema þegar honum hentar. Vegna þess hve hann er orkumikill er nauðsynlegt að hann fái mikla hreyfingu. Hann verður að fá að hlaupa um og róta til heima hjá sér. Ef hann fær ekki útrás fyrir orkuna verður hann pirraður og ergilegur. Honum líður best í lifandi og fjörugu umhverfi. Þar sem fljótfærni og óþolinmæði eru meðal veikleika hans þarf að kenna honum að hægja á sér og telja upp að tíu áður en hann rýkur af stað. Einnig þarf að venja hann á að ljúka því sem hann byrjar á. |
|
|
ELSKU BARNIÐ OKKAR! Ást okkar verður með þér hvenær sem þú þarfnast hennar. Ást okkar verður með þér þegar gleðin ber þig ofurliði. Ást okkar verður með þér þegar erfileikarnir eru að buga þig. Ást okkar verður með þér þegar þú óttast lífið. Ást okkar verður með þér í dag og alla daga.
Leó Örn Signý Lind Almar Máni Eyjólfur Már og Ágúst Máni Benjamín Darri og Aldís Þröstur Ben og Björn Jónatan
|
| Þú ert gestur nr. 10806 |