ekki hika við að senda mömmu mail til að fá nýja lykilorðið
Ég er lítil prinsessa sem kom í heiminn þann 28.júlí 2006. Ég átti að koma 20.júli, á afmælisdegi pabba en ég vildi minn dag og lét því bíða eftir mér :) Ég fæddist á landspítalanum og var ég 12 merkur og 51 cm.
Jóel Bjarki kom í heiminn 01.06.11. Hann fæddist á landspítalanum og var tæpar 14 merkur og 51 cm
Foreldrar okkar eru Valgý Arna Eiríksdóttir og Birkir Kristjánsson. Pabbi áttii fyrir hann Ívar stóra bróðir minn.
Elsku Hafdís Una okkar
Áður en þú varst til þráðum við þig.
Áður en þú komst í heiminn elskuðum við þig.
Áður en þú hafðir lifað eina stund hefðum við fúslega dáið fyrir þig.
Þú ert kraftaverk lífsins
Takk fyrir að vera til
Mamma og pabbi
Barn í ljónsmerki:
Barn í ljónsmerkinu elskar að vera á sviði meira en nokkuð annað. Ef þú ert að leita að barni til að leika aðalhlutverkið í skólaleikriti þá skaltu ekki leita frekar því að ljónið er til! Barn í ljónsmerkinu er mjög skapandi og það er líklegt til að setja sjálft upp leikrit og þá sér það um allar hliðar sjálft, þ.e. leikmyndina, leikinn, tónlistina o.s.frv. Þar sem ljónið er ávallt í forystu, þá á barn í ljónsmerkinu marga vini, eða eru þetta fylgjendur? Allavega, þá fer það ekki fram hjá neinum hver ræður hér! Ljónið er gjafmilt og líkar vel að deila frægð sinni með félögum sínum. Þú getur bókað að þetta barn slær í gegn, hvernig á það annars að verða Lion King? Helstu kostir ljónsins eru bjartsýni og gott lundarfar. Þetta barn trúir því almennt að lífið sé yndislegt og að hlutirnir gangi upp fyrir það. Barn í ljónsmerkinu hefur andstyggð á gagnrýni og vill helst ekkert af henni vita. Ljónið er einnig mjög stolt og vill standa sig vel, svo að þegar það kemur fram fyrir áhorfendahóp þá leggur það sig 100% fram. Einnig þegar barn í ljónsmerkinu fer í skóla þá stendur það sig vel, því það vill alltaf vera best. Ljónið er vinsælt og sjarmerandi og þú getur treyst lífi og fjöri í kringum þessi börn
Nafnið mitt:
Hafdís
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Haf" sem merkir sjór og viðliðnum "dís" sem merkir heilladís.
Una
Tvær hugmyndir eru uppi um uppruna og merkingu.
Annars vegar er talið að nafnið sé skylt sögninni "una" sem merkir að dvelja, - kunna vel við sig, og hinsvegar að nafnið tengist latneska orðinu "unus" sem merkir einn.
Pabbi er maðurinn!
Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður en það tekur hann bara nokkra daga að komast niður á jörðina aftur.
Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað sofið alla nóttina og kúkað í klósett eins og annað fólk.
Samt veit hann allt !!
Svo þegar maður verður aðeins eldri og þá er hægt að fara að leika við mann og kenna manni ýmislegt þá finnst honum rosa gaman.
Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar á þarf að halda.
Pabbi er besti maður í heimi.
Mamma er konan
Sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda.
Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda.
Þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til.
Mamma er besta kona í heimi.






|