Við erum systurnar Matthildur Embla og Kolfinna Katla
Smá um okkur
Matthildur Embla kom í heiminn 23. júní 2006, hún var 3580 gr. og 52 cm
Kolfinna Katla kom í heiminn þann 15. apríl 2010, hún var 3700 g og 51 cm
Mamma okkar heitir Anna Barbara og pabbi okkar heitir Benedikt Bóas
Matthildur Embla var makalaust prúð
en mótmælti af festu og natni
er fjölskyldukór hóf upp söng undir súð
og sérann var skvettandi vatni.
Höf. Böddi frændi
NAFNIÐ HENNAR MATTHILDAR EMBLU ÞÝÐIR:
Matthildur
Nafn þetta er þýskt að uppruna og er sett saman af nafnorðinu "maht" sem merkir kraftur, - afl og nafnorðinu "hiltiu" sem merkir orrusta.
Embla
Embla er fyrsta konan í norrænni goðafræði, - viðarheiti.
Sagan segir að Óðinn og bræður hans hafi gefið tveimur trjám, Aski og Emblu líf og urðu þau fyrstu manneskjurnar og frá þeim á allt mannkyn að vera komið.
NAFNIÐ HENNAR KOLFINNU KÖTLU ÞÝÐIR:
Kolfinna - Dökkleit kona
Katla - dregið af nafninu Ketill, og af eldfjallinu Katla