Vefdagbók
Myndaalbúm
Kveðjur frá gestum
Gullkorn
Dagbók barnsins
Gleðigjafarnir Ásrún og Birna Vala
Gleðigjafarnir Ásrún og Birna Vala
Því miður er þessi bilun en í gangi, er frekar svekkt þar sem ég veit það að fullt af fólki sem hittir okkur sjaldan vil fylgjast með, finnst hálf tilgangslaust að setja inn myndir þegar þær eru læstar öllum, kann ekki einu sinni að breyta lykilorðinu og hvað þá að ég viti hvaða lykilorð er... hmm og ég er að borga fyrir þessar síður.
Dömurnar eru alveg æðislegar eins og alltaf. Þeim hlakkar báðum til að byrja í skólanum í haust og tala mikið um það, ég verð að láta það eftir þeim að heimsækja Reynisholt gamla leikskólann sinn áður en skólinn byrjar.
Skrifa meira þegar ég er búin að ná að koma síðunni í lag :)
0 | 24.4.2012 09:11:06 #

því miður er einhver bilun í gangi svo allar síður eru læstar hjá okkur, mamma er að vinna í því að finna út hvernig hún hefur þær opnar, vonandi sjá þeir þetta sem bíða eftir að nýjar myndir komi inn
0 | 9.4.2012 18:20:42 #

Ritari okkar skammast sín smá núna þegar kom í ljós að það er heilt ár frá því það var skrifað hérna síðast.

 

Við erum komnar í nýjan leikskóla, við höfum aðlagst vel þar inn en auðvita söknum við Reynisholts og allra þar.

Sumarið er búið að vera skemmtilegt, við fórum oft til Signýjar og nokkru sinnum til pabba, krissu mömmu og systra okkar þar. Það er mikil sæla að eiga pínku litla systir hana Tinnu (sérstaklega fyrir Ásrúnu) og svo eru Sara og Thelma auðvita algert æði líka.

Í sumar fórum við líka í útilegu að Hlöðum í Hvalfirði, fengum heila helgi af öllum tegundum rigningu og þá var nú gott að tjaldið okkar lak ekki :D

 

En já í dag er allavega 5 ára afmæli okkar við fengum báðar það sem var á óskalistanum

Ásrún: Irmu (nýja babyborn dúkkann) og hello kitty svefnpoka

Birna: Vidda búning (fékk kassann með vidda og bósa saman í) og hello kitty svefnpoka.

 

Annað sem var á listanum okkar fannst mömmu ekki alveg við hæfi. Gaman er þó að nefna eitt sem Birnu langaði mikið í. Sinn eigin hund, lifandi hund "SEM ÉG Á EIN" hahah eins og einn hundur sé ekki nóg :D

 

En já við fórum svo í búningunum í leikskólann. Álfurinn samþykkti strax að fara úr bósa búningnum þegar hún sá að það var einn litil gutti í leiksólanum dauðhræddur við þessar furðuverur, músin var aðeins tregari en samþykkti þó með semningi að skila grímunni ;)

0 | 31.8.2011 08:47:09 #

Elsku Ásrún Svava og Birna vala gangi ykkur vel á nýja leikskólanum. Knús til ykkar. Kveðja Ágústa á Reynisholti
Ágústa | 0 | 14.8.2011 22:07:41 #
hæ stelpur mínar til hamingju með afmælið í gær og vonadi var dagurin góður .knús og kram ykkar Gunna netvinkona mömmu
Gunna/Lillyann af er.is | 0 | 1.9.2010 19:19:00 #
hæhæhæhæhæhæhæhæ konfektmolarnir mínir...
| 0 | 19.6.2010 22:21:54 #
Takk fyrir kveðjuna :)
Sandra Ósk | 0 | 13.4.2010 14:12:48 #
Vá nú verður mamma að kvitta hjá ykkur! Annsi langt síðan hún kvittaði síðast, en vá hvað þið eruð orðnar stórar enda orðið frekar mjög ofbóðslega langt síðan við höfum hist :( vonandi sjáumst við fljótlega kveðja Björn þór.... gamla sendir kveðju líka :))
Björn Þór Gerðar Ásmundsson | 0 | 29.3.2010 17:38:05 #

Loksins eru komnar nýjar myndir af okkur, það er alltaf svo mikið að gera hjá okkur að það gefst ekki tími til að setja inn  myndir, hvað þá að skrifa um okkur. Í febrúar fengum við að vera í heila viku hjá ömmu og afa, það var ekki slæmt enda erum við dekraðar út í eitt þar.

Við förum svo 1 helgi í mánuði til Signý og Guðna í enþá meira dekur, við byrjum að telja niður á mánudögum þegar við erum að fara og iðum í skinninu á föstudögum spennan er orðin það mikil þá :D

0 | 29.3.2010 01:48:39 #

Gleðileg jól kæra fjölskylda og hafi það sem allra best :o) Kær kveðja Adam, Heiða Ósk, Þorsteinn Ingi, Tanja Björk og Hrafnkell Ingi.
Aðalheiður Ósk Þorsteinsdóttir | 0 | 25.12.2009 14:02:08 #

Hæhæ allir.

Af okkur er allt gott að frétta, við höfum stækka heil ósköp á þessu ári, það mikið að nú höfum við náð jafnöldrum okkar :) Við tölum og tölum út í eitt orðið og ekki vantar systrakærleikinn á milli okkar. Mamma hreint og beint bráðnar þegar við valhoppum hönd í hönd um íbúðina og skríkjum með. Já mamma bráðnar við skrækina í okkur, konan sem þolir ekki þau hljóð.

Jólasveininn er að gera mikla lukku hjá okkur, mamma segir jólasveininn er að koma og við rjúkum í rúmið með því sama lokum augunum og förum að sofa.

Svo er það keppni hjá okkur hver vaknar fyrst. Jóli er samt hættur að gefa okkur nammi í skóinn, hann gerði það bara einu sinni því ein okkar (Ásrún) vaknaði fyrst og át úr öllum skóm, sagðist svo bara hafa verið að smakka á namminu sem hinar ættu ;)

Enda er þessa dagana algengasta setningin hjá okkur "ég gerði það ekki"Laughing

 

Ætlum að láta þetta nægja

óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

0 | 22.12.2009 19:25:40 #