Velkomin á heimasíðuna mína
Ég heiti Arna Lind Kristinsdóttir. Mamma og pabbi hafa ákveðið að læsa síðunni minni en ykkur er velkomið að senda okkur póst og fá lykilorðið:) Munið þið að kvitta svo í gestabókina mína, það er svo gaman að sjá hverjir eru að fylgjast með:D


Um mig:
Ég heiti Arna Lind Kristinsdóttir og kom loksins í heiminn 20. mars eftir að mamma og pabbi voru búin að bíða eftir mér í 8 daga:) Fæðingin gekk vel og ég var komin í heiminn á 7 tímum. Ég var 3960gr. og 53cm, tæpar 16 merkur. Ég er með stór og falleg brún augu og fallegasta rauðbrúna hár í heimi:D Ég er sko ekki alveg búin að ákveða hvaða litur á að vera á hárinu mínu en ég er án efa fallegasta barn í öllum heiminum!! Það segja mamma og pabbi allavega:) og þau hafa alltaf rétt fyrir sér;) Mamma mín heitir Erla Þórhallsdóttir og pabbi minn heitir Kristinn V. Jóhannsson. Þau búa ekki lengur saman svo ég bý hjá pabba mínum og Unu í fínu íbúðinni okkar á Kambsveginum og líka hjá mömmu minni í Grafarholti. Ég bara stækka og stækka:D og er kominn í leikskóla sem heitir Hulduheimar. Deildin mín heitir Sólskinsbær og þar er rosa gaman:) En núna eftir sumarfrí þá fer ég á stóru deildina og nýja deildin mín heitir Kardemommubær;)




Nýfædd, státin mær á mynd
mörgum gaf til kynna,
að jafnan yrði Arna Lind
eftirlæti sinna.

Langamma og langafi á Húsavík
Þú ert gestur nr. 18419